Fréttir

true

Gul viðvörun um vestanvert landið

Útlit er fyrir að óvenju hvasst verði í kvöld og nótt um mest allt landið. Vegagerðin beinir því til vegfarenda um allt land að hafa varann á vegna þessa. Gul viðvörun er um vestanvert landið fram á kvöld. Norðaustan 13-23 m/s við Faxaflóa með snörpum vindhviðum á sunnanverðu Snæfellsnesi. Við Breiðafjörð norðaustan 13-23 m/s, einnig…Lesa meira

true

Reykholtshátíð hefst í kvöld

Reykholtshátíð,sem haldin er síðustu helgina í júlí ár hvert, hefst í kvöld  og stendur til fram á sunnudag. Er þetta í 22. skipti sem hátíðin er haldin og að vanda er dagskráin afar fjölbreytt og skemmtilegt. „Í ár munu eingöngu koma fram íslenskir listamenn en bæði erlendir og íslenskir listamenn hafa komið fram á hátíðinni…Lesa meira

true

Í hrakningum á heiðinni

Fjórir hjólreiðamenn lentu í hrakningum á Arnarvatnsheiði í gærkvöldi. Höfðu þeir samband við neyðarlínu og óskaði eftir aðstoð. Leiðinlegt veður var á heiðinni þegar hjólreiðamennirnir voru á ferðinni, rok og rigning. Voru þeir því bæði blautir og hraktir en ekkert annað amaði að þeim. Björgunarsveitarmenn frá Hvammstanga fóru á vettvang til aðstoðar fólkinu.Lesa meira

true

Markalaust í toppslagnum

Víkingur Ó. gerði markalaust jafntefli við HK í toppslag 1. deilar karla á Ólafsvíkurvelli í gærkvöldi. Ólafsvíkingar voru heilt yfir sterkari en tókst ekki að skapa sér nein alvöru marktækifæri. Sterkur varnarleikur var enda aðalsmerki beggja liða í leiknum og helsta ástæða þess að ekkert mark var skorað. Heimamenn voru sterkari framan af fyrri hálfleik,…Lesa meira

true

Skaginn 3X gerir milljarðasamning í Rússlandi

Skaginn 3X hefur skrifað undir samning um heildarlausn í nýja verksmiðju sem fyrirtækið Lenin Kolkhoz er að byggja í Petropavlosk á Kamtsjatka-skaganum í Austur-Rússlandi. Skrifað var undir við hátíðlega athöfn í íslenska sendiráðinu í Moskvu á miðvikudag, 25. júlí. Kælismiðjan Frost mun sjá um allt kælikerfi verksmiðjunnar. Verður það að fullkomnustu gerð og mun standast…Lesa meira

true

Borgarbyggð birtir upplýsingar um fjárréttir í haust

Sveitarfélagið Borgarbyggð hefur birt upplýsingar um fyrirhugaðar fjárréttir í sveitarfélaginu í haust. Fyrst verður réttað í Kaldárbakkarétt 2. september og Oddsstaðarétt í Lundarreykjadal 5. september. Annars er listinn svona:   Fyrstu réttir Seinni réttir Oddsstaðarétt 5. sept. 30. sept. Rauðsgilsrétt 16. sept. 30. sept. Fljótstungurétt 9. sept. 22. sept. Nesmelsrétt 8. sept. Þverárrétt 10. sept.…Lesa meira

true

Byrjað að setja þak á nýtt fiskvinnsluhús G.Run

Framkvæmdir við nýtt fiskvinnsluhús Guðmundar Runólfssonar hf ganga vel en nú er komin mynd á bygginguna og byrjað að setja þakið. Skip útgerðarinnar; Helgi SH og Hringur SH fara á sjó á næstu dögum en vinnsla á að hefjast á mánudaginn. Það verður því væntanlega mikill hamagangur í öskjunni þegar vinnsla hefst með allar þessar…Lesa meira

true

Feðgar njóta góða veðursins

Einn besti dagur sumarsins veðurfarslega séð var á fimmtudaginn í liðinni viku. Þá þornaði um og glaðnaði til. Hér eiga feðgarnir Helgi Eyleifur Þorvaldsson í Brekkukoti og Þorlákur Hugberg sjö vikna sonur hans gæðastund saman skammt frá Paradísarlaut í Norðurárdal. Helgi var þá búinn með fyrri slátt á búinu og ákvað fjölskyldan að fara í…Lesa meira

true

Hótel í anda Kirkjufells á teikniborðinu

Landeigandi Skerðingstaða, sem er eyðibýli rétt vestan við Grundarfjörð, hefur látið frumteikna hótel á jörðinni sem er í anda Kirkjufells. Það eru Zeppelin arkitektar sem hafa hannað hótelbygginguna og hafa gefið út glæsilegt myndband til kynningar á verkefninu. Hótelið á að verða með 60 til 80 herbergjum og allt hið glæsilegasta. Bærinn Skerðingsstaðir er á…Lesa meira

true

Fjölbreytt dagskrá á Reykhóladögum um helgina

Reykhóladagar verða haldnir um næstu helgi og venju samkvæmt er fjölbreytt og skemmtileg dagskrá framundan alla helgina. Fyrsti dagskrárliður verður bátabíó á Báta- og hlunnindasýningunni á morgun, föstudag, klukkan 12. Þá taka við landbúnaðarleikarnir í Hvannagarðabrekkunni og þarabolti við Álftaland. Um kvöldið verður unglingapartý á Báta- og hlunnindasýningunni frá klukkan 19-21 þegar Halldóra Kristín Unnarsdóttir…Lesa meira