Fréttir

true

Nýr Vestfjarðarvegur mun koma upp við Skálanes í Gufudalssveit

Eins og lesendum Skessuhorns er sjálfsagt flestum kunnugt stendur til að leggja nýjan Vestfjarðarveg milli Bjarkalundar og Skálaness. Vegurinn sem nú liggur þar á milli er að stórum hluta illa farinn malarvegur sem ræður engan veginn við þá umferð sem þar fer um. Skiptar skoðanir hafa þó verið í Reykhólahreppi um hvar leggja skuli nýjan…Lesa meira

true

„Vonandi get ég starfað við handavinnu“

Ída María Brynjarsdóttir er 21 árs handavinnukona ættuð úr Dölunum þar sem hún bjó fyrstu fjögur ár ævinnar áður en hún flutti í Borgarfjörðinn. Hún er dóttir bændanna Önnu Lísu Hilmarsdóttur og Brynjars Bergssonar á Refsstöðum í Hálsasveit. Síðastliðinn vetur bjó Ída María í Danmörku þar sem hún stundaði nám við hönnunar- og handavinnuskólann Skals…Lesa meira

true

Á Góðri stund að bresta á í Grundarfirði

Bæjarhátíðin „Á góðri stund“ verður haldin um næstu helgi í Grundarfirði. Hátíðin fagnar 20 ára afmæli um þessar mundir og verður mikið um dýrðir um helgina. Hátíðartjaldið verður á sínum stað en dagskráin fer að mestu fram á hafnarsvæði bæjarins. „Það verður af nægu að taka hérna um helgina,“ segir Aldís Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri hátíðarinnar í…Lesa meira

true

Verkefni til að efla vitund um umhverfi

Síðastliðinn vetur sóttu Akraneskaupstaður og Landbúnaðarháskóli Íslands um styrk til Nýsköpunarsjóðs námsmanna til að vinna verkefnið: „Aðlaðandi bæir, umhverfisvæn endurnýjun og samkeppnishæfni í norrænum þéttbýlum. Bæir sem veita fólki góð lífsskilyrði.“ Sjóðurinn ákvað að styrkja verkefnið og vinnur Ása Katrín Bjarnadóttir, nemandi í Umhverfisskipulagi frá Landbúnaðarháskóla Íslands, að þessu verkefni í sumar en markmiðið er…Lesa meira

true

Veðrið háir ekki starfseminni í Gleym mér ei

Á hverju vori þegar næturfrostin eru liðin þá opnar Sædís Guðlaugsdóttir hliðið fyrir viðskiptavini sína að Gróðrarstöðinni Gleym-mér-ei við Sólbakka 18-22 í Borgarnesi. Sædís hefur þjónað fólki á Vesturlandi og víðar um sumarblóm og fjölæringa ásamt öðrum plöntum í hartnær 32 ár og segir sjálf að nú sé Gleym-mér-ei komin á draumastað. Blaðamaður kíkti í…Lesa meira

true

Mikil spenna á Íslandsmeistaramótinu í torfæru

Fjórða og fimmta umferð Íslandsmeistaramótsins í torfæru fór fram á Fellsenda við Akrafjall um síðustu helgi. Var það Torfæruklúbbur Suðulands sem hélt keppnina. Það rættist úr veðrinu báða mótsdaga en skipuleggjendur höfðu áhyggjur af mikilli rigningu sem hafði verið spáð. „Það er frekar mikil mold á þessu svæði svo við höfðum áhyggjur af því að…Lesa meira

true

Valdís Þóra keppir á Opna breska

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni hefur tryggt sér sæti á Opna breska meistaramótinu í golfi 2.-5. ágúst næstkomandi. Hún er í 17. sæti á stigalista Evrópumótaraðarinnar en efstu 25 kylfingarnir á þeim lista fá keppnisrétt á Opna breska. Mótið er eitt af fimm risamótum kvenna sem haldið er á ári hverju. Að þessu sinni…Lesa meira

true

Dalamenn verðlaunaðir fyrir snyrtimennsku og ljósmyndun

Á bæjarhátíðinni Heim í Búðardal, sem haldin var um miðjan júlí, voru veittar umhverfisviðurkenningar í þremur flokkum; snyrtilegasta bændabýlið, snyrtilegasta fyrirtækið og snyrtilegasti garðurinn. Skúli Hreinn Guðbjartsson, formaður byggðarráðs Dalabyggðar, greindi frá niðurstöðum dómnefndar og veitti viðurkenningarnar. Viðurkenningu fyrir snyrtilegasta býlið hlutu Sigurbjörn Sigurðarson og Melkorka Benediktsdóttir á Vígholtsstöðum í Laxárdal. Horfði dómnefnd til þess…Lesa meira

true

Rafmagnsbilanir í Borgarfirði

Í nótt og morgun var rafmagnslaust í Borgarnesi, á Hvanneyrarsvæði og í Skorradal. Hjá Rarik fengust upplýsingar um að búið væri að koma rafmagni á að nýju en nánari upplýsingar um orsök bilunar liggja ekki fyrir og ekki næst í bilanavakt Rarik á Vesturlandi. Samkvæmt óstaðfestum heimildum Skessuhorns er ástæða bilunarinnar sú að teinrofi gaf…Lesa meira

true

Upphaf vélvæðingar í íslenskum landbúnaði

Í ár eru liðin 100 ár síðan fyrsti traktorinn kom til landsins. Þar með var brotið blað í búnaðarsögu landsins. Dráttarvélinni var landað úr Gullfossi þann 12. ágúst 1918. Kaupendur voru tveir áhugamenn um íslenskan landbúnað, þeir Þórður Ásmundsson kaupmaður og útgerðarmaður og Bjarni Ólafsson, skipstjóri, báðir á Akranesi. Dráttarvélin, var amerísk af AVERY gerð, 16…Lesa meira