Fréttir

true

Næg verkefni á vélaverkstæðinu í Vélabæ

Björn Björnsson verkstæðisformaður í Vélabæ í Borgarfirði segir að mikið sé að gera hjá þeim. Þar hafa menn ekki þurft að kvíða verkefnaskorti. Stór hluti vinnunnar er viðhald og viðgerðir á tækjum bænda, en vaxandi hluti verkefnanna tengist þó viðgerðum á bílum ferðamanna sem leið eiga um Borgarfjörð. „Það er nóg að gera og líklega…Lesa meira

true

Flytja brot úr atvinnusögu Reykholts

Vorboðinn í fyrirlestrum Snorrastofu að þessu sinni verður erindi Guðmundar Inga Kjerúlf um bílaverkstæði föður hans, Guðmundar Kjerúlf, sem stóð með miklum blóma í Reykholti um tveggja áratuga skeið, frá 1960 til 1981. Fyrirlesturinn verður í Bókhlöðunni þriðjudaginn 9. maí og hefst að venju kl. 20:30. Guðmundur Kjerúlf flutti í Reykholt árið 1936 með foreldrum…Lesa meira

true

Skraddaralýs þakka fyrir sig með höfðinglegri gjöf

Skraddaralýs, bútasaumsklúbbur í Hvalfjarðarsveit, færði leikskólanum Skýjaborg í gær að gjöf 16 bútasaumsteppi ásamt nokkrum koddastykkjum. Með gjöfinni vildu konurnar í klúbbnum sýna Hvalfjarðarsveit þakklæti sitt fyrir að fá afnot að félagsheimilinu Fannahlíð endurgjaldslaust. „Við þökkum þeim kærlega fyrir frábæra og nytsamlega gjöf,“ segir í frétt frá leikskólanum Skýjaborg. Meðfylgjandi myndir eru af myndasíðu Skýjaborgar.Lesa meira

true

Þorpið annast leikjanámskeið á Akranesi í sumar

Nú í sumar mun frístundamiðstöðin Þorpið á Akranesi sjá um framkvæmd leikjanámskeiða fyrir börn á aldrinum 6-10 ára (f. 2007-2011). Skátafélag Akraness hefur sinnt þessu verkefni um árabil en síðastliðið sumar, þegar þriggja ára samningur við Akraneskaupstað rann út, lýsti félagið því yfir að ekki væri áhugi að svo stöddu að endurnýja samninginn. Skóla- og…Lesa meira

true

Íþróttaþing hefst á föstudaginn

Íþróttaþing ÍSÍ verður haldið í Gullhömrum í Reykjavík dagana 5. – 6. maí nk. Íþróttaþing er æðsti vettvangur íslenskrar íþróttahreyfingar. Fyrir þinginu liggur tillaga um kosningu þriggja nýrra Heiðursfélaga ÍSÍ, sem borin verður upp í upphafi þingsins. Þá liggja fyrir þinginu margar tillögur um ýmis mál er varða málefni íþróttahreyfingarinnar. Öll þinggögn má finna á…Lesa meira

true

Hjóluðu af stað í vinnuna

Átakið hjólað í vinnuna hófst með formlegum hætti í morgun þegar Óttar Proppé heilbrigðisráðherra hjólaði ásamt fleirum af stað í vinnuna. Það er Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands sem stendur fyrir átakinu en um er að ræða heilbrigða vinnustaðakeppni sem stendur að þessu sinni yfir dagana 3. til 23. maí. „Landsmenn hafa tekið átakinu gríðarlega vel…Lesa meira

true

Atvinnuleysi ekki mælst minna í áratug

Atvinnuleysi nú reiknast til að vera 1,7% af vinnufærum mannafla og hefur ekki mælst jafn lágt í Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands síðan í nóvember 2007 þegar atvinnuleysi mældist 1,3%. Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn nú voru að jafnaði 202.800 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði í mars síðastliðnum, sem jafngildir 84,9% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 199.300 starfandi og…Lesa meira

true

Dregið í bikarkeppni karla

Dregið var í 32 liða úrslitum Borgunarbikars karla í knattspyrnu nú í hádeginu, en liðin í Pepsi deild karla koma inn í pottinn í 32 liða úrslitum. Þrjú lið af Vesturlandi voru í pottinum; ÍA, Víkingur Ó. og Kári, þar sem bæði Skallagrímur og sameiginlegt lið Snæfells/UDN féllu úr leik í fyrstu umferð bikarsins. Drátturinn…Lesa meira

true

Spánverjar smíða nýjan frystitogara fyrir HB Granda

Stjórn HB Granda hf. hefur ákveðið að ganga til samninga við spænsku skipasmíðastöðina Astilleros Armon Gijon, S.A. um smíði á nýjum frystitogara. Samið er við spænsku stöðina í kjölfar tilboðs um smíðina sem hljómar upp á um fimm milljarða króna. Áætlað er að gangi samningar eftir muni skipið verða afhent árið 2019. Togarinn er hannaður…Lesa meira

true

Ferðaþjónar óhressir með úthlutun lóða við Brákarsund

Rekstraraðilar Landnámsseturs Íslands og Egils Guesthouse/Kaffi Brákar í Borgarnesi hafa andmælt úthlutun Borgarbyggðar á lóðunum Brákarsundi 1 og 3 í Borgarnesi, sem samþykkt var að úthluta á fundi byggðarráðs 12. apríl sl. Eins og greint var frá í Skessuhorni nýverið var lóðunum úthlutað til byggingafélagsins Fylkis ehf. sem auk þess fær byggingarrétt á lóðinni Brákarsundi…Lesa meira