Fréttir

true

Styrkir til íþrótta- og tómstundafélaga á Akranesi

Opnað hefur verið fyrir styrkumsóknir til íþrótta- og tómstundafélaga á Akranesi vegna starfs síðasta árs. Markmið styrkjanna er að styðja virk íþrótta- og tómstundafélög í bænum til að halda uppi íþrótta-, félags- og tómstundastarfi fyrir börn og unglinga. Eru styrkirnir veittir til þjálfunar og leiðsagnar barna og unglinga á aldrinum þriggja til 18 ára. Heildarverðmæti…Lesa meira

true

Áratugur án fjarveruslysa í kersmiðju

Starfsfólk í kersmiðju álvers Norðuráls á Grundartanga hélt nýlega upp á góðan árangur í öryggismálum. „Hópurinn hefur verið til mikillar fyrirmyndar, stundað örugg vinnubrögð og verið án fjarveruslysa í 10 ár,“ segir í tilkynningu frá Norðuráli. Þar kemur einnig fram að árið 2011 tók Norðurál upp sérstakt nám í öryggismálum. Miðar það að því að…Lesa meira

true

Rúmlega 135 milljónir í rannsóknir ferðaþjónustu

Markhópagreining, vöktun á ástandi ferðamannastaða og samfélagsleg áhrif ferðaþjónustu eru á meðal tíu rannsóknaverkefna sem atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur ákveðið að styrkja um samtals 135,3 milljónir króna á næstu mánuðum. Í tilkynningu frá ráðuneytinu kemur fram að iðnaðar- og viðskiptaráðherra hafi staðfest tillögu Stjórnstöðvar ferðamála um hverjir hljóti þessa styrki. Fjármögnun er á fjárlögum sem…Lesa meira

true

Útskrifað úr Stóriðjuskóla Norðuráls

Síðastliðinn fimmtudag var útskrift úr Stóriðjuskóla Norðuráls á Grundartanga. Þá luku 15 starfsmenn grunnnámi en í heildina hafa 62 starfsmenn lokið því frá því skólinn tók til starfa í byrjun árs 2012 eftir að Norðurál, Verkalýðsfélag Akraness og Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi gerðu samning þar að lútandi haustið áður. Við sama tækifæri útskrifuðust einnig starfsmenn í…Lesa meira

true

Umsnúningur hjá húsnæðissamvinnufélaginu Búmenn

Í september 2015 var kjörinn nýr formaður stjórnar samvinnufélagsins Búmanna, stjórn endurnýjuð að hluta og öll varastjórn húsnæðissamvinnufélagsins endurnýjuð. „Þegar stjórnin tók við var félagið í frjálsu falli, það var í greiðslustöðvun og ekkert annað blasti við en gjaldþrot félagsins. Ný stjórn hafði það erfiða verk fyrir höndum að bjarga félaginu frá gjaldþroti,“ var meðal…Lesa meira

true

Víkingar fengu skell gegn Fjölni

Draumabyrjun Víkings Ólafsvíkur í Pepsi deild karla í knattspyrnu tók enda í kvöld. Liðið mætti Fjölni í Grafarvoginum og fékk skell, tapaði með 5 mörkum gegn einu. Jafnræði var með liðunum framan af fyrri hálfleik, eða allt þar til Martin Lund Petersen kom Fjölni yfir á 28. mínútu eftir langa sendingu frá hægri. Aðeins tveimur…Lesa meira

true

Hreyfivika á ýmsum stöðum á Vesturlandi

Hin árlega Hreyfivika, MOVE WEEK hefst á morgun, mánudaginn 23. maí. Verkefnið er hluti af stærstu lýðheilsuherferð í Evrópu en árið 2015 voru yfir milljón þátttakendur. Markmið verkefnisins er að fjölga íbúum í Evrópu sem hreyfa sig reglulega. Nokkur sveitarfélög á Vesturlandi ætla að taka þátt í Hreyfivikunni með því að bjóða upp á fjölbreytta…Lesa meira

true

Slökkvilið kallað að Hvalstöðinni

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar fékk í morgun útkall að Hvalstöðinni í Hvalfirði. Vegfarandi hafði séð opinn eld og reyk og gerði viðvart í 112. Slökkvilið var fljótt á staðinn og gekk slökkvistarf vel. Í ljós kom að kviknað hafði í út frá rafstrengjum sem liggja grunnt í jörðu út á bryggjuna þar sem hvalveiðiskipin leggja…Lesa meira

true

Sigmundur Davíð ósammála því að kosið verði í haust

Sigmundur Davíð Gunnlaugssson formaður Framsóknarflokks og fyrrverandi forsætisráðherra var gestur Páls Magnússonar í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Hann kemur  úr fríi í dag og sest að nýju á þing, nú sem óbreyttur þingmaður. Í þættinum lét hann ýmis ummæli falla, meðal annars þau að hann væri ekki sammála því að boðað yrði til…Lesa meira

true

Tíu skiluðu inn gögnum til framboðs

Nú eru frambjóðendur til embættis forseta Íslands komnir á ferð og flug til að kynna stefnumál sín. Tíu frambjóðendur skiluðu inn gögnum vegna framboðs og fylla því mögulega kjörseðilinn 25. júní næstkomandi. Þetta eru í stafrófsröð: Andri Snær Magnason, Ástþór Magnússon, Davíð Oddsson, Elísabet Kristín Jökulsdóttir, Guðni Th. Jóhannesson, Guðrún Margrét Pálsdóttir, Halla Tómasdóttir, Hildur Þórðardóttir,…Lesa meira