Fréttir

true

Einstaklingsframtak í tilefni af degi umhverfisins

Dagur umhverfisins var 25. apríl en þann dag hóf Landvernd nýtt átak: Hreinsum Ísland. Í ár er athygli sérstaklega dregin að þeim hættum sem fylgja plastmengun í hafi. Í tilefni af degi umhverfisins setti Kristján Ingi Arnarsson, byggingafulltrúi Dalabyggðar, inn færslu á Facebook síðu sem er ætluð íbúum búsettum í Dalabyggð. Þar hvatti hann íbúa…Lesa meira

true

150 ára afmælis Borgarness fagnað á hátíðarsamkomu

Mikið var um dýrðir á laugardaginn þegar sveitarfélagið Borgarbyggð efndi til hátíðardagskrár í tilefni af 150 ára afmæli Borgarness. Dagskráin hófst með opnun sýningar í Íþróttamiðstöðinni tengd ljóðum, list og íþróttum. Opnuð var sýning á ljóðum annars vegar eftir Borgnesingana Ásbjörn Jónsson, Finn Torfa Hjörleifsson og Jón Þ. Björnsson og Mýramanninn Egil Skallagrímssona. Hins vegar…Lesa meira

true

Stofnvísitala rækju undir meðallagi

Hafrannsóknastofnun hefur gefið út ráðleggingar um að leyfðar verði veiðar á 698 tonnum af rækju við Snæfellsnes á tímabilinu frá 1. maí 2017 til 15. mars 2018. „Stofnvísitala rækju við Snæfellsnes var undir meðallagi og mældist minna af rækju í Breiðafirði en undanfarin þrjú ár. Lítið var af fiski á slóðinni,“ segir í tilkynningu frá…Lesa meira

true

Gullaldarliðsins minnst og Ármann heiðraður

ÍA mætti FH í fyrsta leik sumarsins í Pepsi deild karla í knattspyrnu síðastliðinn sunnudag. Leikurinn fór fram á Akranesvelli og bar FH sigur úr býtum, 2-4. Fyrir leikinn var gullaldarliðs ÍA minnst með stuttri tölu og síðan mínútu þögn, en nú eru allir þeir knattspyrnukappar sem skipuðu Íslandsmeistaralið ÍA frá 1951 fallnir frá. Í…Lesa meira

true

Samfylking heldur kjördæmisráðsþing

Kjördæmisráð Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi boðar til aðalfundar sunnudaginn 7. maí kl. 12-16 í húsnæði Samfylkingarinnar Stillholti 16-18 á Akranesi. „Á aðalfundi verða hefðbundin aðalfundarstörf. Guðjón S. Brjánsson, þingmaður kjördæmisins, og Logi Már Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, ávarpa fundinn og taka þátt í umræðum. Stjórn kjördæmisráðs hvetur alla félagsmenn til að mæta á aðalfundinn og taka þátt…Lesa meira

true

Hvetja ríkisstjórnina til að hverfa frá boðaðri hækkun virðisaukaskatts

Á fjölmennum fundi hjá Ferðamálasamtökum Snæfellsness sem nýverið fór fram var samþykkt að álykta gegn þeim hluta fjármálaáætlunar ríkissjóðs 2018-2022 sem snýr að hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustu: „Ferðamálasamtök Snæfellsness mótmæla áformum ríkisstjórnar um hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustu. Samtökin telja að fyrirhuguð hækkun ofan á hraða styrkingu krónunnar muni hafa mjög neikvæð áhrif á rekstur og…Lesa meira

true

Skráning hafin á íþróttamót Faxa og Skugga

Mótanefnd hestamannafélaganna Faxa og Skugga stendur fyrir opnu íþróttamóti á félagssvæði Skugga í Borgarnesi dagana 6. og 7. maí. Mótið nefnist Arionbankamót Faxa og Skugga. Mótshald hefst klukkan 10 á laugardeginum. Keppt verður í Pollatölti en í Barnaflokki verður keppt í fjörgangi V2 og tölti T3. Í Unglingaflokki verður keppt í fjórgangi V2 og Tölti…Lesa meira

true

Greitt ekið um vegina

Í gærkvöldi var ökumaður sem leið átti um Vesturlandsveg stöðvaður á 150 km/klst. Var honum gerð grein fyrir því að sektin fyrir brot af þessu tagi væri 130 þúsund krónur, einn mánuður í ökuleyfissviptingu og þrír punktar í ökuferilsskrá. Fyrir helgi var annar ökumaður stöðvaður fyrir að aka á 148 km/klst í umdæmi Lögreglunnar á…Lesa meira

true

Ný ráðuneyti tóku til starfa í gær

Ný ráðuneyti tóku formlega til starfa í gær, mánudaginn, 1. maí. Dómsmálaráðuneyti annars vegar og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti hins vegar. Koma þau í stað innanríkisráðuneytisins. Breytingin byggist á ákvörðun ríkisstjórnarinnar og samþykki Alþingis á þingsályktun um skiptingu innanríkisráðuneytisins. Í framhaldi af þessu staðfesti forseti Íslands þann 7. apríl síðastliðinn tillögur forsætisráðherra um breytt skipulag Stjórnarráðs…Lesa meira

true

Varð fyrstur til að ná dagsskammtinum

Standveiðar hófust í gærmorgun þar sem gaf til sjós vegna veðurs. Skarphéðinn Ólafsson á Þresti SH-19 í Grundarfirði fór út um klukkan 6 í morgun og var kominn að landi aftur um níuleitið, fyrstu manna, með fullan dagsskammt. Sverrir Karlsson tók þessa mynd af Skarphéðni nú fyrir stundu.Lesa meira