Fréttir

true

Vorhreinsun hefst á Akranesi á laugardaginn

Akraneskaupstaður beinir þeim tilmælum til íbúa að taka höndum saman um vorhreinsun í bæjarfélaginu og gera það hreint og snyrtilegt. Sérstakt átak í þá veru hefst á laugardaginn og verður til 7. maí. „Bæjarbúar, ungir sem aldnir, eru hvattir til að fagna vori og taka þátt í hreinsun og fegrun lóða og umhverfis í þágu…Lesa meira

true

Kólnar og hætt spáð snjókomu á fjallvegum

Vegagerðin vekur athygli vegfarenda á að suðvestan- og vestanlands kólnar skart næstu klukkustundirnar. Á Hellisheiði, í Þrengslum, á Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði kemur til með að snjóa nokkuð, einkum á milli klukkan 12 og 15, en éljagangur verður eftir það.  Einnig kólnar og hætt er við snjókomu um miðjan dag á Vatnaleið, Bröttubrekku og Holtavörðuheiði.Lesa meira

true

Inga Elín stefnir á að komast í sitt besta keppnisform

Inga Elín Cryer, sundkonan knáa frá Akranesi, hefur glímt við meiðsli og veikindi síðasta árið eða svo og lítið synt af þeim sökum. Engu að síður tók hún þátt í Íslandsmeistarmótinu í 50m laug sem fram fór í byrjun apríl. Þar hafnaði hún í öðru sæti í 50 og 100 metra flugsundi, háði meðal annars…Lesa meira

true

Lóðum úthlutað við Brákarsund

Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum 12. apríl síðastliðinn að úthluta tveimur lóðum við götuna Brákarsund í gamla bænum í Borgarnesi til félagsins Fylkis ehf. Umræddar lóðir eru Brákarsund 1 og 3 en að auki keypti Fylkir ehf. byggingarrétt á lóðinni Brákarsundi 5. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi er gert ráð fyrir íbúðarhúsum af sama toga og…Lesa meira

true

Jörfagleði haldin með pompi og prakt í Dölum

Nú í liðinni viku var Jörfagleði haldin í Dölum, en hátíðin er haldin annað hvert ár í kringum sumardaginn fyrsta. Mikið var um að vera vítt og breitt um Dalina, viðburðir á sviði menningar, íþrótta og önnur fjölbreytt skemmtun. Sjá ítarlega frétt og myndir í Skessuhorni vikunnar.Lesa meira

true

Hefja framkvæmdir við 2+1 á Vesturlandsvegi á næsta ári

Stjórnvöld gera ráð fyrir að verja 700 milljónum króna til að breikka Vesturlandsveg frá Kollafirði að Hvalfjarðargöngum í „2+1“ veg á næsta ári. Þetta kemur fram í svari Jóns Gunnarssonar samgönguráðherra við fyrirspurn Bjarna Jónssonar varaþingmanns Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi um vegabætur á Vesturlandsvegi og kostnað þar að lútandi. Svarið var birt á vef Alþingis…Lesa meira

true

Þörungaeitrun hefur verið viðvarandi í ellefu mánuði í Hvalfirði

Matvælastofnun og Hafrannsóknastofnun vakta þörungaeitur í bláskelinni, en svo er kræklingurinn einnig nefndur. Nú bregður svo við að varað er við neyslu á skelfiski úr Hvalfirði þar sem svonefnd DSP-eiturefni eru yfir viðmiðunarmörkum. Almenna þumalputtareglan þegar farið er í kræklingafjöru er að óhætt sé að tína kræklinginn í þeim mánuðum sem hafa „r“ í nafninu.…Lesa meira

true

Kanínurnar hans Arnars hrepptu bronsið

Borgfirðingurinn Arnar Guðjónsson, þjálfari Svendborg Rabbits, stýrði sínu liði til bronsverðlauna í dönsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Kanínur Arnars höfðu öruggan sigur  á SISU í bronsleiknum sem fram fór á mánudagskvöld, 87-72, en sterk hefð er fyrir því í Danmörku að liðin sem falla úr leik í undanúrslitum úrslitakeppninnar leiki einn leik um bronsið. Eru þetta…Lesa meira

true

Krefjast þess að Sabre fjölskyldan fái hæli á Íslandi

Michelle Bird, listakona í Borgarnesi, hefur hrundið af stað undirskriftarsöfnun þar sem skorað er á formann kærunefndar útlendingamála að veita Sabre fjölskyldunni fái hæli á Íslandi. Sabre fjölskyldan er kúrdísk, hælisleitendur frá Írak og þessa stundina búsett á Bifröst í Borgarfirði. Á mánudaginn fengu þau boð um að umsókn þeirra um hæli á Íslandi hafi…Lesa meira

true

Hylki með kannabisvökva komin í sölu

Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu segir í samtali við fjölmiðla að lögregla hafi orðið vör við að talsvert magn af kannabisvökva sé komið í sölu hér á landi. Það sem er nýtt við dreifingu vökvans og neyslu er að hann er reyktur með svokölluðu rafsígarettum. Til að deyfa lykt af reykingum efnisins er blandað saman…Lesa meira