Fréttir

true

Úrkoma þegar líður á daginn – snjór til fjalla

Samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni eru vegir að mestu auðir á Suður- og Vesturlandi en hálkublettir eru á Holtavörðuheiði. Í dag koma skil lægðar úr suðvestri með úrkomu um sunnan- og vestanvert landið.  Á láglendi hlánar samhliða slyddu eða rigningu en á fjallvegum mun snjóa.Lesa meira

true

Vill friða þrjá vestlenska vita

Húsafriðunarnefnd ákvað á síðasta fundi sínum að samþykkja tillögur að friðlýsingu ellefu vita víðs vegar um landið. Tillögur nefndarinnar byggja að mestu á mati Guðmundar L. Hafsteinssonar frá 2003, en árið 2015 bað núverandi húsafriðunarnefnd hann um að endurskoða þær og leggja fram að nýju. Voru þær kynntar stjórn Íslenska vitafélagsins sem tók undir þær…Lesa meira

true

Páskablað Skessuhorns kemur út á morgun

Til að Skessuhorn vikunnar berist áskrifendum í tæka tíð fyrir hátíðina sem í hönd fer, verður það sent í prentun í kvöld, mánudag. Blaðinu verður síðan dreift á þriðjudag og miðvikudag. Af þessum sökum er auglýsendum og þeim sem þurfa að koma efni á framfæri, bent á að panta þarf pláss í síðasta lagi í…Lesa meira

true

Hætt kominn við köfun

Maður var hætt komin þegar hann var við köfun í Reyðarvatni, efst í Lundarreykjadal í Borgarfirði, síðdegis á laugardaginn. Maðurinn mun hafa misst meðvitund þegar hann var við köfun í vatninu. Menn sem voru á svæðinu hófu þegar endurlífgun og hlúðu að manninum. Hann var fluttur með hraði áleiðis til Þingvalla þangað sem sjúkrabíll tók…Lesa meira

true

Verulegur hagnaður af rekstri sveitarsjóðs Borgarbyggðar

Ársreikningur Borgarbyggðar fyrir árið 2016 var lagður fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn síðastliðinn föstudag. Samkvæmt honum varð mesti hagnaður í sögu Borgarbyggðar frá sameiningu sveitarfélaga 2006. Samanlagður A og B hluti sveitarsjóðs skilaði 427 milljónum króna í hagnað og skuldir lækkuðu um 273 milljónir. Handbært fé var 557 milljónir í árslok og veltufé frá…Lesa meira

true

Höfða mál vegna þjóðlendna í Langavatnsdal

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar síðastliðinn föstudag var samþykkt samhljóða að fela sveitarstjóra í samvinnu við þá lögmenn sem unnu að vörn vegna krafna ríkissjóðs í þjóðlendumálum, að höfða mál fyrir héraðsdómi samkvæmt kröfulýsingu til ógildingar þeim úrskurðum Óbyggðanefndar frá 30. október 2016 á svæðum sem tilgreind eru í þjóðlendumálum nr. 1 og 3/2014 í Borgarbyggð.…Lesa meira

true

Birgir Leifur ráðinn íþróttastjóri Golfklúbbsins Leynis

Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur og sjöfaldur Íslandsmeistari í golfi hefur verið ráðinn íþróttastjóri hjá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi. Mun hann hafa yfirumsjón með allri þjálfun hjá félaginu. Birgir Leifur mun vinna sem íþróttastjóri samhliða atvinnumennsku í golfi á Áskorendamótaröðinni (European Challenge Tour) þar sem hann er með keppnisrétt. Hann starfaði nú síðast hjá GKG og…Lesa meira

true

Fjórtán sæmd bandalagsmerki ÍA

Ársþing Íþróttabandalags Akraness var haldið 73. sinni í gærkvöldi. Þingið var haldið í hátíðarsal ÍA að Jaðarsbökkum og var vel sótt. Helga Sjöfn Jóhannsdóttir formaður fór yfir það helsta í starfsemi liðins árs og Svava Huld Þórðardóttir fór yfir ársreikninga félagsins, auk ársskýrslu og -reikninga aðildarfélaga. Rekstur ÍA var í ágætu jafnvægi á árinu 2016.…Lesa meira

true

Engey siglt til Reykjavíkur í dag

Skaginn 3X er nú langt komið með uppsetningu vinnslubúnaðar og lestarkerfis í Engey RE, nýjan ísfisktogara HB Granda. Skipið hefur verið í Akraneshöfn síðan í febrúar, var siglt þangað eftir komuna til landsins. HB Grandi hefur í dag móttöku við Norðurgarð í Reykjavík vegna komu skipsins til heimahafnar. Engey RE verður höfð til sýnis í…Lesa meira

true

Skallagrímur með bakið upp við vegg

Þriðji leikur Skallagríms og Keflavíkur í undanúrslitum Íslandsmóts kvenna í körfuknattleik fór fram í Keflavík í gærkvöldi. Fyrir leikinn í gær var staðan í undanúrslitunum jöfn, 1-1 en með 65-52 sigri náðu Keflvíkingar yfirhöndinni í einvíginu. Skallagrímskonur byrjuðu betur, skoruðu fyrstu sex stigin og héldu Keflavík án stiga þar til um miðjan upphafsfjórðunginn. Þá jöfnuðu…Lesa meira