Fréttir

true

Skiptir miklu máli að hafa með sér gott fólk

– segir Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir nýskipaður forstjóri HVE   Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir hjúkrunarfræðingur var sett í starf forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vesturlands 1. febrúar síðastliðinn. Jóhanna er fædd og uppalin á Akranesi og hefur starfað við stofnunina frá árinu 1981. Lengst af var hún deildarstjóri á lyflækningardeild en hefur auk þess verið verkefnastjóri þróunar- og gæðamála, hjúkrunarforstjóri,…Lesa meira

true

Dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni

Héraðsdómur Vesturlands sakfelldi á dögunum karlmann fyrir brot gegn valdstjórninni með því að veitast með ofbeldi að tveimur lögreglumönnum. Atvikið átti sér stað á veitingastaðnum Skökkinni á Akranesi í nóvember 2015. Málsatvik voru þau að lögregla var kölluð á veitingastaðinn vegna manns sem lét ófriðlega og var æstur vegna þess að mistök höfðu verið gerð…Lesa meira

true

Naglaframleiðslan heyrir brátt sögunni til í Borgarnesi

Í Límtré Vírneti í Borgarnesi er hin fræga naglaframleiðsla til húsa. Framleiðsla á nöglum var einmitt upphafið að rekstri Vírnets árið 1956 og fagnaði þessi hluti starfseminnar því 60 ára afmæli á síðasta ári. Stefán Logi Haraldsson framkvæmdastjóri segir að senn verði þessi framleiðsla nagla aflögð og marki það vissulega tímamót í sögu fyrirtækisins. „Það…Lesa meira

true

Tveggja daga Vesturlandsorrusta í körfunni

Keppni í Domino‘s deildum karla og kvenna hefst á ný eftir bikarviku í dag og á morgun. Í kvöld tekur Skallagrímur á móti Val í Domino‘s deild kvenna en Snæfell sækir nýkrýnda bikarmeistara Keflavíkur heim. Karlamegin tekur Snæfell á móti Tindastóli á morgun, fimmtudaginn 16. febrúar og Skallagrímsmenn heimsækja Keflvíkinga. Sömuleiðis er keppt í 1.…Lesa meira

true

Snæfellsjökulshlaupið valið utanvegahlaup ársins

Snæfellsjökulshlaupið fékk góða viðurkenningu á dögunum þegar það var valið utanvegahlaup ársins af hlaup.is og lesendum vefjarins. Verðlaunin voru afhent síðastliðinn sunnudag. Þetta var í áttunda skipti sem verðlaun þessi eru afhent. Fjögurra skóga hlaupið varð í öðru sæti og Gullspretturinn í þriðja. Í flokki götuhlaupa var Vestmannaeyjahlaupið valið besta hlaupið, í öðru sæti Fossvogshlaupið…Lesa meira

true

Leggja til að loðnukvótinn verði 300 þúsund tonn

Í ljósi þess að mikið magn kynþroska loðnu fannst í loðnuleit norður og austur af landinu dagana 3.-11. febrúar sl. hefur Hafrannsóknastofnun nú lagt til í dag að aflamark á vertíðinni verði fimmfaldað, eða aukið í 299 þúsund tonn. Áður hafði stofnunin lagt til að heildaraflamark á vertíðinni yrði 57 þúsund tonn. Um 815 þúsund…Lesa meira

true

Frumkvöðull heimsækir átthagana og miðlar af reynslu sinni

Hjálmar Gíslason frumkvöðull flytur í kvöld klukkan 20:30 fyrirlestur í bókhlöðu Snorrastofu í Reykholti. Heimsókn Hjálmars er samvinnuverkefni Snorrastofu og Framfarafélags Borgfirðinga og er fyrsti fyrirlestur ársins í röðinni, Fyrirlestrar í héraði.  Hjálmar er Hvanneyringur að uppruna og hefur frá unglingsaldri fengist við nýsköpun á sviði upplýsingatækni og stofnað allnokkur fyrirtæki, sem öll hafa vakið…Lesa meira

true

Rippa og flokka efni í Ólafsvíkurenni

Mikið er um að vera í austanverðu Ólafsvíkurenni. Þar hefur á undanförnum árum verið tekið talsvert af efni. Tvær beltagröfur frá B.Vigfússon hafa að undanförnu verið notaðar til að rippa og flokka efni sem á að fara í þekjuna í höfninni í Rifi. Þurfti að flokka stórgrýtið frá og koma efninu niður þar sem því…Lesa meira

true

Breytt skipulag á öskudag

Öskudagurinn verður miðvikudaginn 1. mars. Hann verður með breyttu sniði í grunnskólum á Akranesi að þessu sinni. „Fram að þessu hefur öskudagur verið frídagur í skólunum en þetta skólaárið verður prófað nýtt fyrirkomulag sem felst í því að börnin verða í skólanum frá klukkan 8:00-12:30. Dagskráin þennan dag mun miða að því að gera öskudaginn…Lesa meira

true

Kynna áætlanir um tvö svæði

Akraneskaupstaður hefur boðað til opins kynningarfundar á skipulagslýsingum fyrir Sementsreit annars vegar og Dalbraut – Þjóðbraut hins vegar. Fundurinn verður fimmtudaginn 16. febrúar í sal Grundaskóla og áætlað að hann standi yfir frá klukkan 18:00 til 20:00.Lesa meira