Fréttir

true

Samfelld tónlistarveisla á afmæli Tónlistarfélags Borgarfjarðar

Á uppstigningardag hélt Tónlistarfélag Borgarfjarðar upp á hálfra aldar afmæli sitt með því að bjóða til tónlistarviðburða þann dag allan. Áætlað er að um 600 gestir hafi mætt á viðburðina sem í boði voru víðsvegar um Borgarnes. Dagskráin hófst með söng Söngbræðra í Brákarhlíð, síðan sat Birgir Þórisson við flygill Barónsins á Hvítárvöllum í Safnahúsinu.…Lesa meira

true

Frumflutti Tegami-bréfið

  Á helgistund í Hjarðarholtskirkju í Dölum fyrr í þessum mánuði frumflutti Helga Möller söngkona lagið Tegami-bréfið eftir japanska tónlistarmanninn Ryoichi Higuchi við texta Þorsteins Eggertssonar. Tegami-bréfið er boðskapur um ást og virðingu fyrir fullorðnu fólki og biðlar það til okkar að sýna fólkinu okkar virðingu á efri árum. Listamaðurinn Ryoichi Higuchi hefur flutt Tegami-bréfið…Lesa meira

true

Reka kaffihús og sinna upplýsingagjöf

Kaffi Emil hefur opnað á nýjan leik en veitingastaðurinn er staðsettur í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði. Það eru mæðgurnar Olga Sædís Aðalsteinsdóttir og Elsa Fanney Grétarsdóttir sem munu reka kaffihúsið í sumar. Þær mæðgur eru með fyrirtækið Svansskála ehf sem heldur utan um reksturinn. Létt var yfir þeim mæðgum þegar fréttaritari Skessuhorns kíkti við og fékk…Lesa meira

true

Tjaldsvæðið var opnað fyrir Hvítasunnu

Tjaldsvæðið við Kalmansvík á Akranesi var formlega opnað á föstudaginn. Fyrstu gestirnir mættu hinsvegar á svæðið kvöldið áður og voru búnir að koma sér vel fyrir tímanlega fyrir hvítasunnuhelgina. Að sögn Regínu Ásvaldsdóttur bæjarstjóra verða í sumar starfsmenn sem koma a.m.k. tvisvar á dag til að sinna þjónustu á svæðinu sem felur í sér ræstingar…Lesa meira

true

Víkingur sigraði Vesturlandsslaginn

Víkingur Ólafsvík og ÍA mættust í Vesturlandsslag í Pepsi deild karla í knattspyrnu í kvöld. Aðstæður til knattspyrnuiðkunar í Ólafsvík voru prýðilegar. Völlurinn góður og örlítil gola. Heimamenn voru betri allan leikinn og sigruðu að lokum með þremur mörkum gegn engu. Víkingar komust yfir strax á 5. mínútu leiksins og þar var á ferðinni William…Lesa meira

true

Sóttu vélarvana skemmtibát inn í Hvalfjörð

  Sjóflokkur Björgunarfélags Akraness var kallaður út klukkan 1:30 í nótt til aðstoðar vélarvana skemmtibát sem staddur var á Hvalfirði, skammt inn af Grundartanga. Að sögn Jóns Gunnars Ingibergssonar hjá björgunarfélaginu sigldu þeir á Margréti Guðbrandsdóttur frá Akranesi og inn á fjörð. Einnig var björgunarsveitarbíll sendur inn á Grundartanga til að svipast um eftir bátnum.…Lesa meira

true

Vesturlandsslagur í boltanum í kvöld

Skagamenn leggja land undir fót og heimsækja nágranna sína í Víkingi í Ólafsvík í kvöld.  Búast má við hörkuleik í þessu Vesturlandsslag en Víkingur hefur farið vel af stað í deildinni og eru með sjö stig eftir þrjá leiki á meðan Skagamenn eru með þrjú stig.  Nokkuð er um meiðsli í leikmannahópi beggja liða. Leikurinn…Lesa meira

true

Iain Williamson til liðs við ÍA

ÍA hefur fengið Skotann Iain James Williamson að láni frá Víkingi Reykjavík. Iain er leikreyndur 28 ára miðjumaður sem hefur spilað með Grindavík, Val og Víking hér á landi og skosku liðunum Dunfermline og Raith Rovers. Arnar Már Guðjónsson miðjumaður ÍA meiddist í leiknum gegn Fjölni en auk hans hefur Hallur Flosason átt við meiðsli…Lesa meira

true

Tap í fyrsta leik

ÍA lék sinn fyrsta leik í Pepsi deild kvenna í knattspyrnu á Akranesvelli í dag þegar FH-ingar komu í heimsókn. Um nýliðaslag var að ræða, en bæði lið tryggðu sér sæti í deild þeirra bestu fyrir þetta keppnistímabil. Skagakonur fengu ekki sína óskabyrjun í Íslandsmótinu þetta árið, því FH-ingar sigruðu með einu marki gegn engu.…Lesa meira

true

Skagakonur leika sinn fyrsta leik í dag

Fyrsti leikur ÍA í Pepsi deild kvenna í knattspyrnu fer fram í dag þegar liðið tekur á móti FH klukkan 14. Liðin eru bæði nýliðar í deild þeirra bestu en þau mættust einmitt síðasta haust í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitil 1. deildar á Akranesvelli. Þann leik sigraði ÍA 1-0 með marki frá Megan Dunnigan. Lið ÍA hefur gengið…Lesa meira