Fréttir

true

Mælti fyrir heilbrigðisáætlun á þingi

Elsa Lára Arnardóttir þingmaður Framsóknarflokksins í NV kjördæmi mælti í gær fyrir heilbrigðisáætlun á Alþingi. Heilbrigðisáætlunin hefur það að markmiði að hafin verði vinna við gerð heilbrigðisáætlunar fyrir Ísland. Lagt er til að áætlunin verði unnin af hálfu heilbrigðisráðherra í samráði við fagfólk í heilbrigðisstéttum. „Við gerð heilbrigðisáætlunar verði m.a. tekið tillit til landfræðilegra þátta…Lesa meira

true

Sigló Hótel býður sérstakan Skessuhornsafslátt

Eins og lesendur Skessuhorns geta séð í blaði vikunnar býður hið glæsilega Sigló Hótel Vestlendingum sérstakan Skessuhorns afslátt fram til 7. febrúar næstkomandi. Tilboðin gilda frá og með deginum í dag og til 29. mars. Í boði er 10% auka afsláttur til viðbótar við aðra vetrarafslætti sem í gildi eru á hótelinu í mat og…Lesa meira

true

Bæjarstjórar á Snæfellsnesi lýsa þungum áhyggjum vegna sjómannaverkfalls

Nú hefur verkfall sjómanna staðið í sjö vikur. Það hefur veruleg áhrif á launþega til lands og sjávar. Jafnframt eru áhrifin orðin alvarleg fyrir rekstur fyrirtækja í sjávarútvegi og hjá aðilum sem þjónusta sjávarútveg á einn eða annan veg. Bæjarstjórar þriggja stærstu sveitarfélaganna á Snæfellsnesi hafa sent frá sér sameiginlega ályktun vegna ástandsins sem verkfallið…Lesa meira

true

Óvissa um framtíð fiskþurrkunar á Akranesi

Eins og greint er frá í Skessuhorni í dag hafa fyrirhugaðar framkvæmdir við fiskþurrkun HB Granda á Akranesi verið lagðar til hliðar. Ástæður þess eru erfiðar markaðsaðstæður vegna lítillar kaupgetu í Nígeríu, sem er langstærsti kaupandi þurrkaðra fiskafurða frá Íslandi. Aðstæður á þeim markaði hafa verið erfiðar frá því síðasta vor. Varð það til þess…Lesa meira

true

Hraðfrystihús Hellissands kaupir kvóta

Hraðfrystihús Hellissands keypti á dögunum bátinn Ask GK-65 sem er snurvoðarbátur. Bátnum fylgdu 400 þorskígildistonn sem uppistaðan er þorskur, eða rúmlega 300 tonn. Báturinn verður þó ekki gerður út af HH heldur festi fyrirtækið kaup á honum til að nýta kvótann yfir á önnur skip í eigu þess. Hraðfrystihús Hellissands var með 3.297 þorskígildistonn fyrir…Lesa meira

true

Hlýjasta árið frá upphafi mælinga í Stykkishólmi

Mælingar Veðurstofunnar sýna að árið 2016 var það hlýjasta í Stykkishólmi í 171 árs sögu samfelldra veðurmælinga þar.  Árshitinn mældist 5,6 gráður að jafnaði. „Eðlilegt er að líta á þá hlýnun sem orðið hefur í Stykkishólmi síðan mælingar hófust, sem sambland af áratuga löngum hitasveiflum og hnattrænni hlýnun. Meðan ekki dregur úr hnattrænni hlýnun er…Lesa meira

true

Afar umfangsmiklar breytingar á Fosshótel Reykholti

Á þriðja tug iðnaðarmanna leggur þessa dagana nótt við dag við breytingar á Fosshótel Reykholti. Hótelinu var lokað í haust þegar framkvæmdir hófust en stefnt er á að ljúka fyrsta áfanga breytinganna fyrir lok apríl í vor þannig að hægt verði að taka við gestum að nýju. Áætlað er að framkvæmdirnar kosti 1,3 milljarða króna…Lesa meira

true

Hálka á fjallvegum og upp til landsins

Í tilkynningu frá Vegagerðinni í morgun kemur fram að allar aðalleiðir eru greiðfærar á Suður- og Vesturlandi. Hálka og hálkublettir eru þó á nokkrum útvegum og á einstaka fjallvegum á Vesturlandi.Lesa meira

true

Lúðrasveitarfólk fjölmennir á Akranes um helgina

Landsmót Sambands íslenskra skólalúðrasveita fyrir C sveitir verður haldið á Akranesi um helgina, dagana 3.-5. febrúar. Svokallaðar C sveitir eru skipaðar ungu fólki á aldrinum 14 til 20 ára sem er komið vel á veg í sínu tónlistarnámi. Von er á um 200 hljóðfæraleikurum víðs vegar af landinu sem hafa skráð sig á mótið, en…Lesa meira

true

Ókeypis heilsufarsmælingar á Snæfellsnesi um helgina

SÍBS hefur verið á ferð um Vesturland í vetur og boðið almenningi ókeypis heilsufarsmælingar og ráðgjöf tengda lífsstíl. Alls þáðu 389 einstaklingar ókeypis mælingu þegar SÍBS og Hjartaheill voru á ferð um Akranes og Borgarnes fyrir jólin og nú um helgina bætast við Ólafsvík, Grundarfjörður og Stykkishólmur. Þetta segir Guðmundur Löve framkvæmdastjóri SÍBS í samtali…Lesa meira