Fréttir

true

Snjóþekja og hálka á vegum

Snjóþekja eða hálka er á flestum vegum á Vesturlandi, samkvæmt samantekt Vegagerðarinnar. Á Vestfjörðum er snjóþekja eða hálka, þungfært á Þröskuldum og þæfingur í Ísafjarðardjúpi.Lesa meira

true

Gjörbreyta áherslum í samningum við bændur

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar undir forystu Sjálfstæðisflokksins er tekinn af allur vafi um að breytingar verða gerðar á búvörusamningum við bændur. Þeir munu því ekki geta vænst óbreytts stuðningskerfis eftir að núverandi búvörusamningur rennur út 2019. Í sáttmála væntanlegra stjórnarflokka segir: „Leggja ber áherslu á að draga ekki úr hagkvæmni og styðja áfram við jafna stöðu…Lesa meira

true

Svarti galdur frumsýndur í Landnámssetrinu

Föstudaginn 13. janúar kl. 20:00 verður frumsýnt á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi leikverkið Svarti galdur. Í kynningu segir: „Svarti galdur á Íslandi er einleikur Geirs Konráðs Theodórssonar, sem vefur saman þremur þekktum þjóðsögum sem ömmur hafa notað í gegnum aldirnar til að hræða börn fyrir svefninn.“ Þannig má segja að það sé afar viðeigandi að…Lesa meira

true

Viðræður sjómanna í uppnámi haldi meint verkfallsbrot áfram

Dragnótarbáturinn Steinunn SH réri í morgun frá Ólafsvík þrátt fyrir að verkfall sjómanna standi enn yfir og kjaradeilan hafi verið óleyst síðan verkfall hófst 14. desember sl. Útgerð Steinunnar SH er fjölskyldufyrirtæki og á þeirri forsendu að áhafnarmeðlimir væru jafnframt útgerðaraðilar var haldið til veiða í morgun. Fjöldi sjómanna tók í kvöld á móti Steinunn…Lesa meira

true

Skipan ráðherra liggur fyrir

Formenn flokkanna sem mynda væntanlega ríkisstjórn hafa nú kynnt hverjir verða ráðherrar í nýrri ríkisstjórn. Sjálfstæðisflokkur fær sex ráðherra, Viðreisn þrjá og Björt framtíð tvo. Úr Norðvesturkjördæmi verður Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir nýliði á Alþingi gerð að ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar í uppsplittuðu innanríkisráðuneyti. Samkvæmt heimildum Skessuhorns er skipan hennar gerð að tillögu Haraldar…Lesa meira

true

Ný ríkisstjórn að fæðast

Formenn Sjálfstæðisflokks, Bjartrar framtíðar og Viðreisnar kynntu í dag stjórnarsáttmála þessara flokka. Á morgun stendur svo til að birta endanlegan ráðherralista nýrrar ríkisstjórnar. Fyrir lá í dag að formenn samstarfsflokkanna taka sæti í stjórninni, en að öðru leyti var engu slegið föstu. Síðdegis, þegar Skessuhorn hafði samband, kvaðst til dæmis Haraldur Benediktsson oddviti Sjálfstæðisflokks í…Lesa meira

true

Vesturland í hópi 17 áhugaverðustu staða í heimi að mati CNN-Travel

Fjölmiðlarisinn CNN-Travel útnefndi fyrr í vikunni 17 athyglisverðustu staði í heimi fyrir ferðafólk að skoða á þessu ári, eða „17 best places to visit in 2017.“ Þar var Vesturland í hópi fjölmargra áhugaverðra staða í öllum byggðum heimsálfum. Þrír aðrir staðir í Evrópu eru tilnefndir. Það eru Albanía, Bordeoux í Frakklandi og Árósar í Danmörku.…Lesa meira

true

Þingmenn VG húsvitja á Akranesi

Á sama tíma og forusta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar bagsar við að koma saman ríkisstjórn í námunda við Austurvöll er forystufólk Vinstri hreifingarinnar græns framboðs í heimsóknum á Akranesi. Á meðfylgjandi mynd er hópurinn í kaffi á skrifstofum Akraneskaupstaðar. Þarna eru meðal annarra þau Katrín Jakobsdóttir formaður VG, Andrés Ingi Jónsson alþingismaður, Bjarki Þór…Lesa meira

true

Hægt að sækja um í verkefnið Startup Tourism

Umsóknarfrestur í samstarfsverkefnið Startup Tourism rennur út 16. janúar næstkomandi, en þetta er í annað skipti sem hægt er að sækja um þátttöku. Startup Tourism er tíu vikna viðskiptahraðall þar sem tíu valin fyrirtæki í ferðaþjónustu fá tækifæri til að þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar undir leiðsögn reyndra frumkvöðla, fjárfesta og annarra sérfræðinga þeim að kostnaðarlausu.…Lesa meira

true

Ölvun og vetrarfærð kom við sögu í dagbók lögreglu

Sex umferðaróhöpp komu inn á borð Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku, öll án teljandi meiðsla á fólki. Vetrarfærð kom að einhverju leyti við sögu í þessum málum. Að sögn lögreglu er grunur um ölvun við akstur í einu óhappinu en tveir aðilar voru þar á ferð og báðir grunaður um að vera ölvaðir og/eða…Lesa meira