
Umsóknarfrestur í samstarfsverkefnið Startup Tourism rennur út 16. janúar næstkomandi, en þetta er í annað skipti sem hægt er að sækja um þátttöku. Startup Tourism er tíu vikna viðskiptahraðall þar sem tíu valin fyrirtæki í ferðaþjónustu fá tækifæri til að þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar undir leiðsögn reyndra frumkvöðla, fjárfesta og annarra sérfræðinga þeim að kostnaðarlausu.…Lesa meira








