Fréttir

true
Fréttir

Vegleg hátíðarhöld til að minnast þess að tíu ár eru frá Mýraeldum

Búnaðarfélag Mýramanna mun halda Mýraeldahátíð í reiðhöllinni Faxaborg í Borgarnesi og síðan um kvöldið í Lyngbrekku laugardaginn 9. apríl næstkomandi. Hátíðin er haldin annað hvert ár til að minnast sinubrunans mikla sem varð í Hraunhreppi í Mýrasýslu fyrir tíu árum, dagana 30. mars til 2. apríl árið 2006. Eldarnir voru jafnframt stærstu einstöku gróðureldar sem…Lesa meira

true
Fréttir

Undankeppni Nótunnar á Vesturlandi og Vestfjörðum

Laugardagurinn 12. mars var mikill hátíðisdagur í Stykkishólmskirkju en þá voru haldnir svæðistónleikar Nótunnar, uppskeruhátíðar tónlistarskólanna, fyrir Vestfirði og Vesturland. Fjöldi nemenda af öllum stigum tónlistarnámsins kom fram og voru atriðin afar fjölbreytileg, sem gerði tónleikana einstaklega skemmtilega og áhugaverða. Viðurkenningar voru veittar fyrir framúrskarandi atriði og þrjú atriði valin til þátttöku á lokatónleikum Nótunnar…Lesa meira

true
Fréttir

Kristín er rósahafi vikunnar í Vetrarkærleiknum

Kristín Thorlacius fékk rós vikunnar í Vetrar-Kærleiknum sem Blómasetrið – Kaffi kyrrð stendur fyrir. Rósina fékk hún fyrir, eins og segir orðrétt í tilnefningunni: „Umhyggjusemi, jákvæðni og lífsgleði, fyrir að leggja sitt að mörkum að menntun og fræðslu í bæjarfélaginu. Hún er traust vinkona, fróð og vel gerð. Hún er öflug kona.“  Lesa meira

true
Fréttir

Veðrið í aðalhlutverki á loðnumiðunum

Tólf uppsjávarveiðiskip bíða þess nú í vari við norðanvert Snæfellsnes að veðrið gangi niður þannig að hægt verði að leita að loðnu í veiðanlegu magni á Breiðafirði. Skipin eru út af Ólafsvík og að sögn Alberts Sveinssonar, skipstjóra á Víkingi AK, ætti að viðra vel til veiða seint í kvöld og nótt. Í samtali við tíðindamann…Lesa meira

true
Fréttir

Skallagrímur berst enn um heimaleikjarétt

Síðastliðinn föstudag tók Skallagrímur á móti Hamri í 1. deild karla í körfuknattleik. Fyrir leikinn höfðu Skallagrímsmenn þegar tryggt sér sæti í úrslitakeppninni en kepptu að heimaleikjarétti í keppninni. Hamarsmenn höfðu hins vegar misst af lestinni. Skallagrímsmenn byrjuðu af krafti en misstu flugið um miðjan fyrsta leikhlutann. Betri stígandi var í leik gestanna sem nýttu…Lesa meira

true
Fréttir

Hafa þátttökurétt á bikarmóti Íslands í klifri

Íslandsmeistaramótaröðinni í klifri lauk á sunnudaginn síðastliðinn í Klifurhúsinu í Reykjavík. ÍA átti hátt í tuttugu keppendur á mótinu á aldrinum 6 til 16 ára og hafa þeir aldrei verið fleiri. Í keppni um Íslandsmeistaratitil í unglingaflokki, 13-15 ára, hafnaði Brimrún Eir Óðinsdóttir í fjórða sæti og Ástrós Elísabet Ástþórsdóttir í því þriðja og þar…Lesa meira

true
Fréttir

Byggðasafni Dalamanna áskotnast lögreglubúningur

Eins og Skessuhorn hefur áður greint frá lét Jóhannes Björgvinsson lögregluþjónn af störfum um áramótin eftir 36 ár í lögreglunni. Þar af þjónaði hann sem lögregluþjónn í Dölum í ellefu ár. Í síðastliðinni viku færði Jóhannes Byggðasafni Dalamanna veglega gjöf en þangað lét hann til varðveislu hátíðarbúning sinn úr lögreglunni ásamt lögreglufrakka frá árinu 1979.…Lesa meira

true
Fréttir

Fjölmörg óveðursútköll

Björgunarsveitir Landsbjargar sinntu fjölmörgum aðgerðum vegna óveðursaðstoðar í gær og fram á nóttina, þegar djúp lægð gekk yfir vestan- og norðvestanvert landið. Meðal annars voru björgunarsveitir í Stykkishólmi, Borgarnesi, Akranesi og Reykholti kallaðar út í gær og svo sveitir um norðanvert landið og á Vestfjörðum þegar leið á nóttina. Beiðnir um verkefni hættu að berast…Lesa meira

true
Fréttir

Velta gerð Sundabrautar fyrir sér

Að frumkvæði lögfræðistofunnar Lex og fjárfestingafélagsins Gamma er nú unnið að myndun vinnuhóps sem gera á frumathuganir á mögulegri byggingu Sundabrautar. Þannig er verið að dusta rykið af verkefni sem legið hefur í láginni um árabil. Óskað hefur verið eftir aðkomu Faxaflóahafna, en stjórnarformaður Lex og forstjóri Gamma segja í bréfi til Gísla Gíslasonar hafnarstjóra…Lesa meira

true
Fréttir

Ingi Þór framlengir við Snæfell

Ingi Þór Steinþórsson körfuboltaþjálfari er búinn að framlengja samning sinn við Snæfell til næstu tveggja ára. Á Karfan.is er greint frá því að Snæfell og Ingi Þór hafi orðið sammála um að stefna að minnst níu ára veru kappans í Stykkishólmi sem stjórinn yfir Snæfellsliðunum knáu. Ingi verður áfram með bæði karla- og kvennalið félagsins…Lesa meira