
Búið er að opna fyrir umferð um Vesturlandsveg á Kjalarnesi þar sem alvarlegt umferðarslys varð í morgun. Aðgerðum lögreglu og vettvangsaðila er nú lokið.Lesa meira

Búið er að opna fyrir umferð um Vesturlandsveg á Kjalarnesi þar sem alvarlegt umferðarslys varð í morgun. Aðgerðum lögreglu og vettvangsaðila er nú lokið.Lesa meira

Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, gefur út dagatal fyrir árið 2018 með myndum af leiðsöguhundum. Tilgangurinn með útgáfu þess er að fjármagna kaup og þjálfun leiðasöguhunda fyrir blinda einstaklinga. „Blindrafélagið telur mikilvægt að tryggja stöðugt framboð leiðsöguhunda fyrir blinda hér á landi, eins og raunin er í nágrannalöndum okkar, enda hafa þeir margsannað…Lesa meira

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var í tvígang í gærkvöldi kallað út vegna gróðurelda á skógræktarsvæði bæjarbúa. Fyrra útkallið barst klukkan 8:30 og logaði þá í gróðri við undirgöngin við Klapparholt. Slökkvistarf gekk vel. Síðan klukkan 23:37 barst útkall að nýju en þá logaði eldur á öðrum stað í skógræktinni. Þráinn Ólafsson slökkviliðsstjóri metur að um…Lesa meira

Á tíunda tímanum í morgun varð alvarlegt umferðarslys á þjóðveginum á Kjalarnesi. Gert er ráð fyrir miklum töfum á umferð, en þó er reiðvegur nýttur til að beina bílum eftir sem eru á suðurleið þannig að umferð mjakast áfram. Vesturlandsvegur í norðurátt er hins vegar lokaður við Þingvallaafleggjarann. Lögregla og slökkvilið gefa ekki upp aðrar…Lesa meira

Verkefni Lögreglunnar á Vesturlandi voru margvísleg yfir jól og áramót. Tveir ökumenn voru handteknir grunaðir um að aka undir áhrifum fíkniefna. Annar þeirra var tekinn á aðfangadegi og hinn 30. desember og fundust þá einnig fíkniefni í bifreiðinni og fékk ökumaðurinn að gista í fangageymslu í kjölfarið. Töluvert var um ferðamenn sem hringdu í lögregluna…Lesa meira

Í gær, nýjársdag, sneri lestrarátak Ævars vísindamanns aftur í fjórða skiptið. Að sögn Ævars Þórs hafa síðustu þrjú ár samanlagt verið lesnar rúmlega 177 þúsund bækur í átakinu og segir hann því spennandi að sjá hvernig til tekst í þetta skiptið. Sú nýlunda verður höfð á í ár að krakkar í unglingadeild mega taka þátt…Lesa meira

Skömmu fyrir áramót veitti Menningarsjóðurinn Fegurri byggðir, Sjóminjasafninu í Sjómannagarðinum á Hellissandi viðurkenningu og styrk að upphæð 200.000 krónur. Stjórn Sjóminjasafnsins með Þóru Olsen í fararbroddi hefur unnið mikið starf í uppbyggingu á húsnæði safnsins ásamt því að settar hafa verið upp metnaðarfullar sýningar. Markmið menningarsjóðsins er að veita viðurkenningar og styrki til framfara- og…Lesa meira

Starfsleyfi hefur verið veitt fyrir matarsmiðju, sem fengið hefur nafnið Matarlind, í Sólbakka í Borgarnesi. Um er að ræða matarsmiðju sem hugsuð er fyrir fólk sem vill framleiða eigin matvæli til að selja en hefur ekki viðurkennt eldhús undir framleiðsluna. Eru það Ljómalind og SSV sem standa að verkefninu. Matarlindin er vel tækjum búin en…Lesa meira

Fyrsta barn ársins á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi kom í heiminn að kvöldi nýársdags klukkan 22:16. Var það myndar stúlka sem vó 3.822 grömm og er 52 sentímetrar að lengd. Stúlkan er búsett í Reykjavík en foreldrar hennar eru þau Karlotta Maria Scholl úr Borgarnesi og Morgan Walford sem kemur frá Ameríku. Stúlkan er fyrsta…Lesa meira

Átakið Á allra vörum afhenti skömmu fyrir áramót Kvennaathvarfinu söfnunarfé sem safnaðist í haust. Um 78 milljónir króna söfnuðust í landssöfnuninni Á allra vörum með frjálsum framlögum og sölu á varasettum. Auk fjármunanna skilaði söfnunin gjöfum og öðrum framlögum að andvirði 12 milljónum króna. Í ár var kastljósinu beint að málefni tengdu Kvennaathvarfinu og safnað…Lesa meira