Fréttir

true

Engin hjálp viðbragðsaðila þegar maður féll í sjóinn

Aðfararnótt sjómannadagsins féll maður í höfnina í Stykkishólmi. Að sögn viðstaddra var hann talsvert drukkinn. Hópur fólks var fyrir utan Sjávarpakkhúsið þegar óhappið varð og klifruðu tveir menn niður bryggjukantinn og komu honum til aðstoðar. Illa gekk að ná manninum upp úr sjónum en honum var haldið á floti á meðan aðrir tveir, sem voru…Lesa meira

true

Brautskráð frá Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri

Síðastliðinn föstudag fór brautskráning fram við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Athöfnin var í Hjálmakletti, sal Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. Dr. Björn Þorsteinsson flutti ræðu og óskaði nemendum velfarnaðar í framtíðinni. Alls útskrifuðust 35 nemendur af búfræðibraut, ellefu úr fjarnámi og 24 úr staðarnámi. Þórunn Rögnvaldsdóttir hlaut verðlaun fyrir góðan árangur á búfræðiprófi sem og góðan…Lesa meira

true

Björn Bergmann til IFK Norrköping?

Fotbolti.net greindi frá því fyrir helgi að samkvæmt áreiðanlegum heimildum væri knattspyrnumaðurinn Björn Bergmann Sigurðsson á leið til sænsku meistaranna í IFK Norrköping. Þessi 25 ára framherji kom til baka úr erfiðum meiðslum á nýloknu tímabili. Hann náði að spila 14 leiki með Wolverhampton Wanderers, eða Úlfunum, í ensku fyrstu deildinni á þessu ári en…Lesa meira

true

Víkingur í öðru sæti eftir sigur í gær

Víkingur Ólafsvík fékk Fylki í heimsókn í Pepsi deild karla síðdegis í gær. Víkingur hefur farið afar vel af stað á meðan Fylkismenn hafa verið í miklu basli og ekki enn unnið leik í Íslandsmótinu í sumar. Fylkir byrjaði leikinn af miklum krafti og komust strax í fín færi. Vindurinn spilaði sinn þátt í leiknum…Lesa meira

true

Skagamenn komnir í erfiða stöðu eftir tapleik

Það var mikið undir þegar ÍA og Þróttur léku sjöunda leik sinn í Pepsi deild karla á Akranesvelli í gærkvöldi. Fyrir leikinn voru bæði lið með fjögur stig; aðeins tveimur stigum meira en botnlið Fylkis. Fyrst dró til tíðinda í leiknum á sjöttu mínútu leiksins þegar dómarateymi leiksins þurfti að gera skiptingu. Valdimar Pálsson, dómari…Lesa meira

true

Sjö þjónustusamningar undirritaðir

Síðastliðinn föstudag undirrituðu Árni Hjörleifsson oddviti Skorradalshrepps og Gunnlaugur A Júlíusson sveitarstjóri Borgarbyggðar sjö þjónustusamninga milli sveitarfélaganna. Samningar þessir eru um þjónustu á sviði skólamála, brunavarna, félagsþjónustu og fleira. Frá þessu var greint á vef Borgarbyggðar.Lesa meira

true

Norðurálsmótið viku fyrr en vanalega

Norðurálsmótið í fótbolta fer fram um næstu helgi, dagana 10. – 12. júní. Mótið er eins og fyrri ár fyrir drengi á aldrinum sex til átta ára. Sú breyting er á að mótið í ár er haldið aðra vikuna í júní en ekki þá þriðju eins og venjan hefur verið. „Ástæðan fyrir því að við…Lesa meira

true

Lög um húsnæðismál og greiðsluþátttöku í heilsugæslu

Alþingi samþykkti í síðustu viku fjölmörg lög. Meðal þeirra voru með stuðningi allra þingflokka samþykkt fjögur húsnæðismál félags- og húsnæðismálaráðherra; um almennar íbúðir, húsnæðisbætur, húsnæðissamvinnufélög og húsaleigulög. Með þeim er lagður grunnur að nýju leiguíbúðakerfi, auknum fjárhagslegum stuðningi við leigjendur, styrkari umgjörð húsnæðissamvinnufélaga og auknum réttindum leigjenda. Velferðarnefnd afgreiddi einnig frumvarp um breytingar á lögum…Lesa meira

true

Dómur viðurkennir skaðabótaskyldu Matvælastofnunar gegn Kræsingum

Héraðsdómur Reykjavíkur kvað síðastliðinn fimmtudag upp dóm í máli Kræsinga ehf. í Borgarnesi gegn Matvælastofnun. Með dómnum er viðurkennd skaðabótaskylda Matvælastofnunar vegna tilkynningar sem birt var á heimasíðu stofnunarinnar 27. febrúar 2013 varðandi framleiðslu Gæðakokka, fyrirtækis sem var undanfari Kræsinga ehf. Í fréttinni á vef MAST var þess getið að rannsókn hefði sýnt fram á…Lesa meira

true

Einn látinn og þrír á gjörgæslu

Einn af þeim fimm sem lentu í hörðum árekstri fólksbíls og jeppa í Hvalfjarðargöngum skömmu fyrir klukkan 14 í dag, lést á vettvangi. Fjórir voru fluttir alvarlega slasaðir á Landspítalann og liggja þrír þeirra á gjörgæsludeild en sá fjórði er í rannsóknum lækna. Mikill viðbúnaður var vegna slyssins, fjöldi sjúkrabifreiða var sendur á vettvang, tækjabílar…Lesa meira