Fréttir

true

Fjör og frábær veiði við opunun Norðurár

„Þetta var skemmtilegur fiskur og tók vel í. Það er gaman að byrja sumarið svona,“ sagði Kristinn Sigmundsson söngvari en hann var ásamt öðrum stórsöngvara, Kristjáni Jóhannssyni, við opnun Norðurár í gær. Kristinn veiddi 94 sentimetra fisk á fluguna Hauginn og er það fyrsti lax veiðisumarsins á land. „Já, þetta var barátta og hann var…Lesa meira

true

Bílslys í Hvalfjarðargöngunum

Harður árekstur tveggja bíla varð í Hvalfjarðargöngunum klukkan tvö í dag. Göngunum var lokað og er umferð beint um Hvalfjörð. Samkvæmt fyrstu fréttum voru fimm slasaðir og var viðbragðsáætlun virkjuð á Landspítalanum, en það er gert þegar fjórir eða fleiri slasast. Fimm sjúkrabílar og tækjabíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins voru kallaðir út auk viðbragðsaðila af Vesturlandi. Samkvæmt heimildum…Lesa meira

true

Þreyttir ferðalangar tjölduðu úti á vegi

Jón Hannes Kristjánsson ökukennari setti nokkuð sérstaka mynd inn á Facebook síðu sína í morgun. Myndin er tekin upp á Bröttubrekku en þar má sjá að einhverjir hafa ákveðið að tjalda á miðjum veginum. Gera má ráð fyrir að fólkið í bílnum hafi verið orðið þreytt og þá er vissulega ekki sniðugt að keyra. Það er…Lesa meira

true

Búið að opna nemendasýningu á Malarrifi

Nemendur Grunnskóla Snæfellsbæjar, Lýsuhólsskóla, ásamt Þjóðgarðinum Snæfellsjökli, opnuðu í gær sýningu í Salthúsinu á Malarrifi í Þjóðgarðinum Snæfellsjökli. Sýningin var síðasta skólavetur að beiðni þáverandi þjóðgarðsvarðar, Guðbjargar Gunnarsdóttur. Guðbjörg óskaði eftir því að fá inn í Salthúsið verkefni sem höfðuðu til barna og væru unnin af börnum. Rósa Erlendsdóttir, deildarstjóri Grunnskóla Snæfellsbæjar, Lýsuhólsskóla, segir að í…Lesa meira

true

Endurskoðaðar verklagsreglur fagráðs eineltismála

Menntamálaráðherra undirritaði 17. maí síðastliðinn nýjar endurskoðaðar verklagsreglur um starfsemi fagráðs eineltismála í grunnskólum. Foreldrar og aðrir aðilar skólasamfélagsins, svo sem nemendur, starfsfólk og stjórnendur grunnskóla, auk annarra sem starfa með börnum í skóla-, frístunda- eða tómstundastarfi, geta óskað eftir aðkomu fagráðsins ef ekki tekst að finna fullnægjandi lausn innan skóla eða sveitarfélags, þrátt fyrir…Lesa meira

true

Gunnar hættur skólastjórn

Gunnar Svanlaugsson sleit Grunnskólanum í Stykkishólmi í síðasta skifti í gær, en hann hefur eins og kunnugt er ákveðið að hætta skólastjórn og snúa sér að fararstjórn. Berglind Axelsdóttir tekur við starfi hans. Sturla Böðvarsson bæjarstjóri þakkaði Gunnari fyrir vel unnin störf í áranna rás. Í ræðu kvaddi Gunnar elstu nemendur sína og bauð þá…Lesa meira

true

Ætlaði ekki að verða antík um borð

Jón Snorrason í Grundarfirði fór ungur til sjós, enda segir hann fátt annað hafa komið til greina. Hann fæddist og ólst upp í Hrísey og byrjaði 14 ára gamall á handfærum, en fór svo á línu og net á trillum úr eyjunni. Þetta var árið 1958, en þremur árum síðar tók líf hans nýja stefnu…Lesa meira

true

Frábært að starfa með sjómönnum

Sjómannadagurinn er dagur sjómanna, en líf og störf sjómanna eru víðar en úti á sjó og fiskveiðar og sjómennska hafa áhrif langt inn fyrir landssteinana. Nægir þar að horfa til fjölskyldna sjómannanna, en þar að auki skapa fiskveiðar fjölmörg störf í landi, bæði við úrvinnslu hráefnis og eins þjónustu við sjávarútveginn. Það var róleg og…Lesa meira

true

Sigruðu í skotkeppni vetrarins

Skotfélag Vesturlands hefur staðið fyrir svokallaðri „Silhouette“ mótaröð eftir áramót í inniaðstöðu félagsins í Brákarey í Borgarnesi. Hún fer þannig fram að skotið er frá öxl standandi á 25 metra færi með 22. cal rifflum. Skotið er á mörk sem eru með mismunandi lagi og fæst stig fyrir að hitta einhversstaðar í markið. Skotið er…Lesa meira

true

Stundin okkar tekin upp á Akranesi

Í fyrradag fóru fram upptökur á efni í sjónvarpsþáttinn Stundina okkar sem sýndur er á RUV. Akranes var fyrsta stopp aðstandenda þáttanna í hringferð þeirra um landið. „Við munum heimsækja 27 staði víðs vegar um landið í sumar og hitta fjögur börn á hverjum stað á aldrinum sex til tólf ára. Við munum skoða staðina með…Lesa meira