Fréttir

true

Aðskotahlutur fannst í Tuborg Classic

Matvælastofnun hefur í samráði við heilbrigðiseftirlitið byrjað innköllun á einni lotu af hálfs líters bjórdósum vegna aðskotarhlutar sem fannst í einni dós. Um er að ræða glerbrot eða hart plast. Í tilkynningu frá Mast segir að eftirfarandi upplýsingar auðkenni vöruna sem innköllunin einskorðast við: Tuborg Classic, lotunúmer: 02L17263 002359. Pökkunardagur: 20.09.17 og merkt best fyrir:…Lesa meira

true

Jóhannes Karl tekur við þjálfun ÍA

Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari HK, verður næsti þjálfari hjá uppeldisfélagi sínu ÍA, en liðið féll eins og kunnugt er úr Pepsídeildinni í haust og spilar því í Inkassodeildinni, 1. deild næsta sumar. Jóhannes Karl stýrði HK í fjórða sæti Inkassodeildarinnar í sumar. Eftir tímabilið var hann valinn þjálfari ársins í deildinni af þjálfurum og fyrirliðum.…Lesa meira

true

Borgarbyggð og Dalabyggð fá ljósleiðarastyrki

Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur ákveðið að verja samtals 100 milljónum króna af fjárveitingu byggðaáætlunar árið 2018 til að gera strjálbýlum sveitarfélögum hægara um vik við lagningu ljósleiðarakerfa. Markmið byggðastyrksins er að bæta samkeppnisstöðu tiltekinna sveitarfélaga gagnvart umsóknum þeirra í samkeppnispott Fjarskiptasjóðs. Að þessu sinni verður 14 sveitarfélögum boðinn styrkur, samtals að fjárhæð 90…Lesa meira

true

Sólin sendi samlita geisla á bleikt Klif

Meira að segja sólin tekur þátt í bleikum október eins og sjá má á myndinni, sem tekin var í morgunsárið einn dag í liðinni viku. Litir sólarinnar þegar hún var að koma upp voru í stíl við bleiku ljósin sem lýsa upp félagsheimilið Klif í Ólafsvík, eins og svo margar byggingar í október. Krabbameinsfélag Íslands…Lesa meira

true

Tapleikir Vesturlandsliðanna

Vesturlandsliðin í Dominosdeild kvenna, Snæfell og Skallagrímur, spiluðu bæði leiki í gærkveldi. Hvorugt þeirra náði að bæta í stigatöfluna og hafa því tvö stig hvort í deildinni. Snæfellskonur töpuðu fyrir Haukum 72:76 í leik þar sem Kristen Denise McCarthy setti 38 stig og var stigahæst í liðinu. Á sama tíma léku konurnar í Skallagrími við…Lesa meira

true

Borgnesingar áberandi í Þriggjalandamaraþoninu

Um nýliðna helgi tók 23ja manna hópur frá Hlaupahópnum Flandra í Borgarnesi þátt í svonefndu Þriggjalandamaraþoni, sem fram fór í Þýskalandi, Austurríki og Sviss. Fimm úr hópnum hlupu heilt maraþon (42,2 km), sex hlupu hálft maraþon (21,1 km) og átta tóku þátt í svokölluðu kvartmaraþoni (10,9 km), ýmist gangandi eða á hlaupum. Fjórir til viðbótar…Lesa meira

true

Keppnistímabilið í klifri hafið

Keppnistímabilið í klifri hófst um liðna helgi með Haustfagnaði Klifurhússins, en um tuttugu klifrarar frá ÍA tók þátt á mótinu. Í flokki krakka 11-12 ára sigraði Sylvía Þórðardóttir í stúlknaflokki og Hjalti Rafn Kristjánsson og Rúnar Sigurðsson höfnuðu í öðru og þriðja sæti. Brimrún Eir Óðinsdóttir keppti í 16-19 ára flokki og hafnaði í öðru…Lesa meira

true

Ljósberinn veittur fyrirtæki og stofnunum í Borgarbyggð

Ljósberinn er viðurkenning sem velferðarnefnd Borgarbyggðar veitir stofnunum og fyrirtækjum í sveitarfélaginu sem stuðla að atvinnuþátttöku fatlaðra. Á Sauðamessu, sem haldin var í Borgarnesi síðastliðinn laugardag, var eftirtöldum fyrirtækjum veitt viðurkenningin Ljósberinn: Pósturinn í Borgarnesi, Safnahús Borgarfjarðar, Leikskólinn Ugluklettur, Brákarhlíð, Íþróttamiðstöðin í Borgarnesi, Leikskólinn Klettaborg, Golfklúbbur Borgarness, Ráðhús Borgarbyggðar, Menntaskóli Borgarfjarðar, Grunnskólinn í Borgarnesi og…Lesa meira

true

Sjö hundruð ár frá vígslu fyrstu kirkjunnar á Ingjaldshóli

Messað var í Ingjaldshólskirkju síðastliðinn sunnudag. Þar var þess minnst að fyrsta kirkjan á Ingjaldshóli, sem vitað er um vígsludag, var vígð fyrir 700 árum, eða 13. október. Það var Dóra Sólrún Kristinsdóttir, djákni frá Rifi, sem predikaði í messunni og þjónaði fyrir altari ásamt sóknarprestinum séra Óskari Inga Ingasyni. Við athöfnina á sunnudag lásu…Lesa meira

true

„Var alltaf draumur að koma heim aftur og starfa í Borgarfirði“

Kristín Þórhallsdóttir frá Laugalandi í Borgarfirði lærði til dýralæknis í Kaupmannahöfn og útskrifaðist árið 2013. Hún hóf að starfa sem dýralæknir 2012, samhliða vinnu við lokaverkefni sitt, og hefur starfað undanfarin ár á Dýralæknamiðstöðinni á Hellu. Á síðasta ári flutti hún heim á æskuslóðir sínar ásamt fjölskyldu sinni og hefur nú opnað stofu á Laugalandi.…Lesa meira