
Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari HK, verður næsti þjálfari hjá uppeldisfélagi sínu ÍA, en liðið féll eins og kunnugt er úr Pepsídeildinni í haust og spilar því í Inkassodeildinni, 1. deild næsta sumar. Jóhannes Karl stýrði HK í fjórða sæti Inkassodeildarinnar í sumar. Eftir tímabilið var hann valinn þjálfari ársins í deildinni af þjálfurum og fyrirliðum.…Lesa meira








