Fréttir

true

Kynningarfundur vegna væntanlegs Unglingalandsmóts

Eins og kunnugt er verður Unglingalandsmót UMFÍ haldið í Borgarnesi um verslunarmannahelgina, dagana 28. júlí – 1. ágúst. Vegna þess er boðað til íbúafundar í Hjálmakletti fimmtudaginn 23. júní kl. 20. „Íbúafundinum er ætlað að upplýsa íbúana um þá þætti unglingalandsmótsins sem munu koma til með að hafa áhrif á daglegt líf íbúanna meðan á…Lesa meira

true

Bongóblíða í kortunum

Veðurspástöðvar eru samdóma um að gott veður muni ríkja á landinu næstu daga. Því er spáð að hiti gæti farið yfir 20 stigin um sunnan- og austanvert landið í dag með hægum vindi og að mestu heiðskíru. Á morgun verður hæg breytileg átt eða hafgola um land allt. Inn til landsins verður því léttskýjað og…Lesa meira

true

Vélhjólaíþróttafélag Akraness sigraði í tveimur flokkum

Hópur keppenda frá Vélhjólaíþróttafélagi Akraness tók þátt í árlegu torfæruhjólakeppninni Klaustur Off-road Challenge sem haldin var í fjórtánda sinn laugardaginn 28. maí. Keppnin var haldin í landi Ásgarðs sem er rétt fyrir utan Kirkjubæjarklaustur. 248 manns tóku þátt í mótinu í ár og þar af tíu manns frá VÍFA í fjórum liðum. Keppnin er sex…Lesa meira

true

Skipalíkön verða til sýnis á netaverkstæði GRun

Á netaverkstæði Guðmundar Runólfssonar hf í Grundarfirði verður afar merkileg sýning opin yfir sjómannadagshelgina. Þar verða skipalíkön eftir listamanninn og fyrrverandi skipstjórann Grím Karlsson til sýnis og kennir þar ýmissa grasa eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Þarna má finna skip sem gerð hafa verið út frá Grundarfirði ásamt gersemum eins og Breiðafjarðar-Svani sem þjónaði…Lesa meira

true

Ekki komist hjá siðferðislega þættinum í umræðunni um skatta

Málþing um skattasiðferði fyrirtækja fór fram á vegum Nomos, félags laganema við Háskólann á Bifröst, síðastliðinn laugardag. Mikil vakning hefur orðið í samfélaginu á undanförnum vikum um skattasniðgöngu í kjölfar þeirra upplýsinga sem birtust í Panama-skjölunum. Á málþinginu tók meðal annarra til máls Soffía Eydís Björgvinsdóttir, stundakennari í skattarétti við lögfræðisvið Háskólans á Bifröst og…Lesa meira

true

Krefjast þess að námslánafrumvarp fari á dagskrá Alþingis

„Þar sem frumvarp um námslán og námsstyrki var tekið af dagskrá Alþingis í dag, fundum við í Félagi stúdenta við Háskólann á Akureyri okkur knúin til að setja fram ályktun fyrir hönd nemenda við HA. Eins vitum við til þess að HÍ og HR eru á sömu skoðun hvað þetta mál varðar og því viljum…Lesa meira

true

Gerði tónlistarmyndband við lag Védísar

Kvikmyndagerðarkonan Dögg Mósesdóttir úr Grundarfirði er þekkt fyrir kvikmyndahátíð sína Northern Wave sem hún heldur á hverju hausti í heimabæ sínum. Dögg segir að nú hafi hún opnað fyrir umsóknir fyrir stuttmyndir og tónlistarmyndbönd fyrir hátíðina. En Dögg fæst við ýmislegt fleira. „Ég var sjálf að gefa út nýtt tónlistarmyndband fyrir tónlistarkonuna Védísi Hervöru, en…Lesa meira

true

Örn í Heiðarskóla verðlaunaður fyrir framúrskarandi störf

Menntavísindasvið Háskóla Íslands veitti nýverið fimm kennurum viðurkenningar fyrir framúrskarandi störf. Verðlaunin eru afrakstur kynningarátakisins „Hafðu áhrif“ sem menntavísindasvið stóð fyrir á vormánuðum en þar gafst landsmönnum kostur á að tilnefna eftirminnilega kennara á vefsíðunni hafduahrif.is. Sögum þjóðþekktra einstaklinga var safnað á vef átaksins og í stuttum myndböndum sögðu þeir frá kennurum sem hafa haft…Lesa meira

true

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram á laugardaginn

Nú á laugardaginn 4. júní fer hið árlega Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fram. Hlaupið verður á yfir 100 stöðum hérlendis og erlendis og eins og venjulega má búast við að þúsundir kvenna komi saman til að njóta hreyfingar og góðs félagsskapar.  Ekki spillir fyrir að veðurspáin á laugardaginn er frábær fyrir allt landið. Það stefnir í…Lesa meira

true

Syngja íslensk þjóðlög fyrir ferðamenn

Hjónin Valgerður Jónsdóttir og Þórður Sævarsson bjóða í sumar upp á nýjung í ferðaþjónustu á Akranesi. Um er að ræða þjónustuna „Travel Tunes Iceland,“ þar sem þau hjónin bjóða upp á viðburði þar sem þau flytja íslenska tónlist fyrir ferðafólk. Að sögn Valgerðar er verkefnið í samstarfi við Byggðasafnið í Görðum. „Við höfðum samband við…Lesa meira