Fréttir

true

Skipalíkön verða til sýnis á netaverkstæði GRun

Á netaverkstæði Guðmundar Runólfssonar hf í Grundarfirði verður afar merkileg sýning opin yfir sjómannadagshelgina. Þar verða skipalíkön eftir listamanninn og fyrrverandi skipstjórann Grím Karlsson til sýnis og kennir þar ýmissa grasa eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Þarna má finna skip sem gerð hafa verið út frá Grundarfirði ásamt gersemum eins og Breiðafjarðar-Svani sem þjónaði…Lesa meira

true

Ekki komist hjá siðferðislega þættinum í umræðunni um skatta

Málþing um skattasiðferði fyrirtækja fór fram á vegum Nomos, félags laganema við Háskólann á Bifröst, síðastliðinn laugardag. Mikil vakning hefur orðið í samfélaginu á undanförnum vikum um skattasniðgöngu í kjölfar þeirra upplýsinga sem birtust í Panama-skjölunum. Á málþinginu tók meðal annarra til máls Soffía Eydís Björgvinsdóttir, stundakennari í skattarétti við lögfræðisvið Háskólans á Bifröst og…Lesa meira

true

Krefjast þess að námslánafrumvarp fari á dagskrá Alþingis

„Þar sem frumvarp um námslán og námsstyrki var tekið af dagskrá Alþingis í dag, fundum við í Félagi stúdenta við Háskólann á Akureyri okkur knúin til að setja fram ályktun fyrir hönd nemenda við HA. Eins vitum við til þess að HÍ og HR eru á sömu skoðun hvað þetta mál varðar og því viljum…Lesa meira

true

Gerði tónlistarmyndband við lag Védísar

Kvikmyndagerðarkonan Dögg Mósesdóttir úr Grundarfirði er þekkt fyrir kvikmyndahátíð sína Northern Wave sem hún heldur á hverju hausti í heimabæ sínum. Dögg segir að nú hafi hún opnað fyrir umsóknir fyrir stuttmyndir og tónlistarmyndbönd fyrir hátíðina. En Dögg fæst við ýmislegt fleira. „Ég var sjálf að gefa út nýtt tónlistarmyndband fyrir tónlistarkonuna Védísi Hervöru, en…Lesa meira

true

Örn í Heiðarskóla verðlaunaður fyrir framúrskarandi störf

Menntavísindasvið Háskóla Íslands veitti nýverið fimm kennurum viðurkenningar fyrir framúrskarandi störf. Verðlaunin eru afrakstur kynningarátakisins „Hafðu áhrif“ sem menntavísindasvið stóð fyrir á vormánuðum en þar gafst landsmönnum kostur á að tilnefna eftirminnilega kennara á vefsíðunni hafduahrif.is. Sögum þjóðþekktra einstaklinga var safnað á vef átaksins og í stuttum myndböndum sögðu þeir frá kennurum sem hafa haft…Lesa meira

true

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram á laugardaginn

Nú á laugardaginn 4. júní fer hið árlega Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fram. Hlaupið verður á yfir 100 stöðum hérlendis og erlendis og eins og venjulega má búast við að þúsundir kvenna komi saman til að njóta hreyfingar og góðs félagsskapar.  Ekki spillir fyrir að veðurspáin á laugardaginn er frábær fyrir allt landið. Það stefnir í…Lesa meira

true

Syngja íslensk þjóðlög fyrir ferðamenn

Hjónin Valgerður Jónsdóttir og Þórður Sævarsson bjóða í sumar upp á nýjung í ferðaþjónustu á Akranesi. Um er að ræða þjónustuna „Travel Tunes Iceland,“ þar sem þau hjónin bjóða upp á viðburði þar sem þau flytja íslenska tónlist fyrir ferðafólk. Að sögn Valgerðar er verkefnið í samstarfi við Byggðasafnið í Görðum. „Við höfðum samband við…Lesa meira

true

Dregið í Borgunarbikar kvenna

Dregið var í 16 liða úrslit Borgunarbikars kvenna í knattspyrnu í síðustu viku. Leikdagar verða helgina 11.-12. júní. Þegar dregið er í 16 liða úrslit bikarsins er úrvalsdeildarliðum bætt í pottinn. Í ljós kom að ÍA mætir Haukum á Ásvöllum í Hafnarfirði og fer leikurinn fram sunnudaginn 12. júní. Aðrar viðureignir eru eftirfarandi: Bikarmeistarar Stjörnunnar…Lesa meira

true

Hringferðin kom við í Snæfellsbæ

Undanfarið hafa þrír ungir tónlistarmenn verið á ferð um landið og haldið tónleika á mörgum stöðum. Kalla þau tónleikaferðina sína Hringferðina. Þarna eru á ferðinni þau Mummi, Alda Dís og Aron og héldu þau tónleika í Snæfellsbæ síðastliðinn sunnudag í Félagsheimilinu Klifi. Þau Alda Dís og Mummi eru síður en svo ókunnug í Snæfellsbæ en…Lesa meira

true

Iðn – verknám á vinnustað fyrir nemendur Grunnskólans í Borgarnesi

Grunnskólinn í Borgarnesi fór af stað með verkefnið „Iðn – verknám á vinnustað“ síðasta haust. Verkefnið er viðbót við þær valgreinar sem standa tveimur elstu árgöngum skólans til boða. Verkefnið var í grunninn hugmynd frá Önnu Dóru Ágústsdóttur kennara í hönnun og smíði. Hún sótti um styrk til Sprotasjóðs svo hægt væri að hrinda verkefninu…Lesa meira