Fréttir

true

Fjölmennt haustþing Kennarafélags Vesturlands

Á hverju hausti heldur Kennarafélag Vesturland haustþing sitt. Þingið er vettvangur fyrir kennara í landshlutanum að hittast, miðla þekkingu sinni, kynnast hverjum öðrum og mynda tengsl. Haustþingið í ár var afar vel sótt, en um 230 kennarar og skólastjórnendur af öllu Vesturlandi sóttu þingið sem haldið var í Grundaskóla á Akranesi síðastliðinn föstudag. Fluttir voru…Lesa meira

true

Sótt um byggðakvóta á Akranes

Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á Akranesi hefur fyrir hönd Akraneskaupstaðar ritað Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur starfandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra bréf þar sem óskað er eftir að byggðakvóta verði úthlutað á Akranes. Vísað er til sérstöðu bæjarfélagsins og þeirrar hefðar sem þar er fyrir útgerð og vinnslu. Á síðasta ári var landaður bolfiskur á Akranesi einungis 4,8%…Lesa meira

true

VR vill uppfærslu persónuafsláttar í kröfugerð fyrir komandi samninga

Í síðustu viku samþykkti stjórn Verslunarmannafélags Reykjavíkur, stærsta stéttarfélags landsins, að markmið félagsins í komandi kjarasamningum verði að krefjast þess að lægstu laun verði gerð skattfrjáls. Það markmið ætti að nást með því að hækka persónuafslátt þannig að hann verði endurskoðaður til samræmis við launavísitölu frá árinu 1990 og þetta ákvæði verði sömuleiðis bundið í…Lesa meira

true

„Árangur Íslendinga í íþróttum má rekja til vinnusemi og ósérhlífni“

Hann segist ekki kunna annað en þjálfa körfubolta. Ólst upp við íþróttir frá blautu barnsbeini og var byrjuður fyrir tvítugt að vinna við þjálfun körfubolta. Það hefur verið starf hans æ síðan. Í dag er hann aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins í körfubolta sem náði þeim árangri að komast í annað skipti í sögunni í úrslitakeppni EM…Lesa meira

true

Í línuróðri með Guðbjarti vestan við Malarrif

„Viltu koma í einn róður,“ spurði Emil Freyr Emilsson skipstjóri á línubátnum Guðbjarti SH frá Rifi, fréttaritara Skessuhorn á sunnudagskvöldið síðasta. „Já, ekkert mál,“ var svarið, „en ég fæ þá að hafa myndvélina með.“ Emil samþykkti það með ánægju og bætti við: „Ég var nú að koma úr klippingu svo ég myndast vonandi vel.“ Slegist…Lesa meira

true

Píratar opna fyrir skráningu frambjóðenda

„Pírötum er ánægja að tilkynna að opnað hefur verið fyrir skráningar frambjóðenda í prófkjörum um allt land. Við erum framsækin lýðræðishreyfing og félagsmenn okkar fá alltaf að ákveða hverjir standa í stafninum,“ segir í tilkynningu frá flokknum. „Við leitum að hugrökku baráttufólki sem getur tekið þátt í að leiða Ísland inn í framtíðina. Allir geta…Lesa meira

true

„Grunur um aðskotahlut í spínati“

Matvælastofnun sendi í dag frá sér tilkynningu með ofangreindri fyrirsögn. Þar segir að stofnunin hafi „fengið upplýsingar frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur um að Innnes ehf. hafi innkallað Azora spínat vegna gruns um aðskotahlut (húsamús).“ Þá segir að um sé að ræða innköllun í varúðarsjónarmiði með tilliti til neytendaverndar. Vöruheiti salatsins sem um ræðir er Azora spínat.…Lesa meira

true

Íslenska bakaralandsliðið keppir í Stokkhólmi um helgina

Íslenska bakaralandsliðið tekur þátt í Norðurlandakeppni í bakstri sem fram fer í Stokkhólmi um næstu helgi. Í landsliðinu eru sex ungir bakarar sem hafa á undanförnum mánuðum æft sig í gerð ýmis konar brauðmetis og gerð skrautstykkis. Landsliðið keppir á vegum Landssambands bakarameistara, LABAK, við lið frá Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi og Noregi. Keppt er í…Lesa meira

true

Valdís Þóra á leið á fimmta stórmót tímabilsins

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Goflklúbbnum Leyni, snýr aftur til leiks nú í vikunni þegar hún hefur leik á Costa del Sol Open á Spáni, en mótið hefst á morgun. Mótið er hluti af Evrópumótaröð kvenna og verður þetta hennar fimmta mót sem hún tekur þátt í á þessu tímabili. Eins og staðan er í…Lesa meira

true

Sýningar á Biggest Loser hefjast á morgun

Sýningar á fjórðu þáttaröð Biggest Loser Ísland hefjast í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans á morgun, fimmtudaginn 21. september. Þáttaröðin hefur á liðnum árum fengið mikið áhorf, en í þáttunum er fylgst með keppendum há harða baráttu við aukakílóin. Þáttaröðin var sem kunnugt er tekin upp í Borgarfirði á liðnu sumri og höfðu keppendur aðsetur…Lesa meira