Fréttir

true

Sjómannadagsblað fylgir Skessuhorni í dag

Sjómannadagurinn er næstkomandi sunnudag og hátíðarhöld víða um land í tilefni hans einkenna helgina. Með Skessuhorni sem kom út í dag fylgir 44 síðna sérblað tileinkað sjómönnum og fjölskyldum þeirra, auk 36 síðna hefðbundins blaðs. Rætt er við yngri og eldri sjómenn og ýmsa fleiri sem tengjast útvegi. Þá er sagt frá hátíðardagskrá sem framundan er,…Lesa meira

true

Hættir rekstri TK hársnyrtistofu

„Ég hef nú ákveðið að hætta rekstri TK hársnyrtistofu og verður síðasti opnunardagurinn á föstudaginn, 3. júní,“ segir María Júlía Jónsdóttir hársnyrtimeistari í Borgarnesi í samtali við Skessuhorn. „Síðustu tvo dagana verð ég með útsölu á hársnyrtivörum og býð allt með 40% afslætti,“ segir hún. Júlía keypti rekstur Tíkó af Svanhildi Valdimarsdóttur árið 2006, en…Lesa meira

true

Samið við grunnskólakennara

Félag grunnskólakennara hefur skrifað undir nýjan kjarasamning við samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga. Gildistími nýja samningsins er frá 1. júní 2016 til og með 31. mars 2019. Munu laun hækka um 3,5% á þessu ári og aftur um 3% á næsta og þarnæsta ári. Auk þess verður eingreiðsla 1. febrúar 2019 að upphæð 51.900 krónur. „Það…Lesa meira

true

Eiga sér fyrirmyndir í fjölskyldunni

Körfuboltabræðurnir Þorgeir og Sigurður Aron Þorsteinssynir eru búsettir í Borgarnesi. Bræðurnir eru efnilegir spilarar og hafa báðir verið viðloðandi yngri landslið Íslands undanfarin ár. Þorgeir er fæddur árið 1999 og er því 17 ára gamall en Sigurður er tveimur árum yngri. Báðir leika þeir stöðu miðherja og hafa hæðina með sér. Þorgeir er 205 sentímetrar…Lesa meira

true

Mega keyra fé á Borghreppingaafrétt eftir 10. júní

Á vef Borgarbyggðar segir í tilkynningu frá afréttarnefnd Borgarhrepps, Stafholtstungna og Norðurárdals vestan Norðurár í Borgarfirði að ákveðið hefur verið að leyfa að sauðfé verði flutt í afrétt eftir 10. júní næstkomandi. Þetta er með fyrra fallinu og helgast af góðri sprettutíð í vor. Þá er spáð bíðviðri næstu daga og mun gróður þá taka…Lesa meira

true

Píratar í Borgarbyggð hittast á kaffifundum

„Píratar í Borgarbyggð byrja sumarið á því að setja á laggirnar kaffifundi alla fimmtudaga kl. 20:00 á Blómasetrinu, Borgarnesi,“ segir í fréttatilkynningu. „Á kaffifundinn mæta iðulega félagsmenn til að ræða dægurmálin, pólitíkina og ræða sín á milli hvað gæti farið betra hér í byggð og á Vesturlandi. Mikil umræða um vegamál á Vesturlandi hafa verið…Lesa meira

true

Borið hefur á skorti á dýralyfjum í vor

Matvælastofnun greinir frá því að borið hafi á skorti á dýralyfjum í landinu í vor. „Ástandið hefur verið sérstaklega slæmt varðandi sýklalyf og hafa komið tímabil þar sem sýklalyf til notkunar handa dýrum hafa verið af mjög skornum skammti. Einnig hefur borið á skorti á öðrum lyfjum, t.d. sauðfjárbóluefninu Tribovax sem var ófáanlegt á versta…Lesa meira

true

Afhenti gestabækur úr vitanum

Í vikunni sem leið var Héraðsskjalasafni Akraness afhentar gestabækur sem gestir Akranesvita hafa ritað nöfn sín í frá 24. mars 2012. Gestabækurnar eru framtak Hilmars Sigvaldasonar vitavarðar en hann opnaði sjálfur vitann fyrir gesti fyrir fjórum árum og hefur verið sívaxandi straumur fólks í hann síðan. Bækurnar eru 20 talsins og hafa í kringum 25…Lesa meira

true

Nokkur óhöpp í umferðinni

Alls urðu 13 umferðaróhöpp í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku. Meðal þeirra má nefna að bifhjólamaður á Snæfellsnesi fékk á sig vindhviðu og fauk útaf. Var hann fluttur á sjúkrahús til skoðunar. Ökumaður sem var einn í bíl missti bílinn útaf við brúna yfir Kolgrafafjörð á Snæfellsnesi, þar sem bíllinn fór nokkrar veltur. …Lesa meira

true

Batti er afar sjaldséður fiskur

Nýverið færði Eiríkur Ellertsson á Örfirisey RE Hafrannsóknastofnun afar fáséðan og sérkennilegan fisk. Þessi fiskur nefnist batti (Dibranchus atlanticus) og veiddist í botnvörpu 6. maí síðastliðinn á 695 m dýpi við Reykjaneshrygg. Fiskurinn var 15,5 cm langur. Í frétt Hafró segir að tegund þessi hafi einungis einu sinni áður veiðst við Ísland, svo vitað sé.…Lesa meira