Fréttir

true

Pólskukennsla í grunnskólum á Snæfellsnesi

Í Grunnskóla Grundarfjarðar er sú nýbreytni að nemendum með pólsku að móðurmáli býðst nú kennsla í sínu tungumáli. Agniazka Imgront sér um kennsluna en sami háttur er hafður á í Grunnskóla Snæfellsbæjar og í Stykkishólmi. Agniezka kenndi pólsku við Grunnskóla Snæfellsbæjar í fyrravetur en nú í vetur kennir hún við þessa þrjá skóla í Grundarfirði,…Lesa meira

true

Lambakjöt markaðssett fyrir erlenda neytendur

Í kjölfar mikillar fjölgunar erlendra ferðamanna á Íslandi hefur þörfin fyrir aðgengilegri framsetningu á íslensku lambakjöti í verslunum verið aðkallandi. Hefur hægagangur í þeirri markaðssókn verið harðlega gagnrýndur. Nú hefur verkefnið Icelandic Lamb, í samvinnu við Krónuna, Kjarval og Norðlenska, brugðist við og kynnt nýja vörulínu. Ætlunin er að ná til þeirra ferðamanna sem kjósa…Lesa meira

true

Vinnur skartgripi úr bláskel

Anna Rún Kristbjörnsdóttir er ungur hönnuður frá Bóndhól í Borgarfirði. Hún hefur tekið upp listamannanafnið BláRún og býr nú til skartgripi úr bláskel. „Ég er búin að vera að þróa þetta í nokkur ár en fór ekki af stað af neinni alvöru fyrr en í fyrrahaust, þegar ég ákvað að setja þetta í framleiðslu,“ segir…Lesa meira

true

Sauðfjárbændur boða til aukaaðalfundar

Boðað hefur verið til aukafundar Landssamtaka sauðfjárbænda, 19. september nk. í Bændahöllinni við Hagatorg í Reykjavík. Á fundinum verður farið yfir tillögur Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur landbúnaðarráðherra að aðgerðum vegna erfiðrar stöðu í sauðfjárrækt. Töluverð óvissa ríkir í hópi sauðfjárbænda um framtíð greinarinnar. Bændur standa frammi fyrir því að þurfa innan fárra vikna að taka ákvörðun…Lesa meira

true

Leggja til að nyrsti hluti Langasands verði endurheimtur

Tveir menn sem eiga rætur sínar á Akranesi skrifa í Skessuhorn vikunnar grein þar sem þeir leggja til róttækar breytingar varðandi fyrirhugaða landnýtingu á fyrrum athafnasvæði Sementsverksmiðjunnar á Akranesi. Þeir Már Karlsson verkfræðingur og Ormar Þór Guðmundsson arkitekt leggja til að Skagamenn endurheimti  þann hluta Langasands sem hvarf undir sementsþróna á sínum tíma þegar verksmiðjan…Lesa meira

true

Tíu ár frá stofnun Menntaskóla Borgarfjarðar

Síðastliðinn föstudag var boðið til veislu í Hjálmakletti í Borgarnesi, en þá var þess minnst að tíu ár eru liðin frá því Menntaskóli Borgarfjarðar hóf starfsemi. Guðrún Björg Aðalsteinsdóttir skólameistari bauð gesti velkomna og stýrði dagskrá. Sagði hún frá því að 22. ágúst 2007 hafi skólinn verið settur í fyrsta skipti og var það gert…Lesa meira

true

Jarðvegsvinna að hefjast vegna blokkarbyggingar við Stillholt

Starfsmenn verktakafyrirtækisins Þróttar á Akranesi voru í dag að grafa holur í væntanlegt grunnstæði fyrir íbúðablokk við Stillholt 21 á Akranesi. Nú í framhaldinu verður síðan farið í jarðvegsskipti og framkvæmdir við bygginguna. Þarna mun samkvæmt upplýsingum frá tæknisviði Akraneskaupstaðar fyrirtækið Skagatorg ehf. byggja 37 íbúða blokk, sambærilega þeirri sem fyrirtækið byggði einnig á næstu…Lesa meira

true

Verið að tryggja áframhald fiskmarkaðar á Akranesi

Orðrómur hefur verið uppi um að til stæði að loka útibúi Fiskmarkaðs Íslands á Akranesi. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri segir að þótt vissulega hafi staðið tæpt með framtíð markaðarins síðan í ágúst, þá sjái hann fram á farsæla lausn og að áfram verði rekinn markaður, en með breyttu verkfyrirkomulagi. Það megi þakka  frumkvæði Gísla Gíslasonar…Lesa meira

true

Fjölbrautaskóli Vesturlands er fertugur

Fjölbrautaskólinn á Akranesi, síðar Fjölbrautaskóli Vesturlands (FVA), fagnar 40 ára starfsafmæli í ár. FVA var stofnaður formlega árið 1987 með undirritun samnings milli 32 sveitarfélaga á Vesturlandi og menntamálaráðuneytis um rekstur sameiginlegs framhaldsskóla. Byggt var á grunni Fjölbrautaskólans á Akranesi sem tók til starfa 12. september 1977 þegar Gagnfræðaskólinn á Akranesi og Iðnskólinn á Akranesi…Lesa meira

true

Stendur réttarvaktina á 93. aldursári

Eyjólfur Andrésson í Síðumúla var staddur í Þverárrétt síðastliðinn mánudag líkt og undanfarin ár og áratugi. Sjálfur hætti hann búskap fyrir ríflega tveimur áratugum, en mætir engu að síður í réttina og hefur sitt fasta hlutverk að vera hliðvörður þegar rekið er inn í almenninginn og að reka á eftir fénu við innreksturinn. Eyjólfur kveðst…Lesa meira