
Stefán Teitur Þórðarsson knattspyrnumaður hefur skrifað undir tveggja ára samning við meistaraflokk ÍA. Hann er fæddur árið 1998 og hefur komið við sögu í ellefu leikjum í Pepsídeild karla í sumar. Í samtali við ÍA vefinn kveðst Stefán Teitur gríðarlega ánægður og spenntur að takast á við komandi verkefni með hinum strákunum.Lesa meira








