Fréttir

true

„Þetta verður svakaleg kraftlyftingaveisla“

Íslandsmeistaramótin í réttstöðulyftu, bekkpressu og klassískri bekkpressu fara fram nú um helgina í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Keppt verður í bekkpressu á morgun, laugardag, fyrst í klassískri bekkpressu frá klukkan 10 að morgni og síðan bekkpressu með útbúnaði frá klukkan 15. Á sunnudeginum verður síðan keppt í réttstöðulyftu. Það mót hefst klukkan 12 á…Lesa meira

true

Tónlistarhátíðin Tene-Rif markaði lok sumarstarfs í Frystiklefanum

Um liðna helgi fór tónlistarhátíðin Tene-Rif fram í Frystiklefanum í Rifi. Heppnaðist hún mjög vel og fór framúr væntingum skipuleggjenda. 110 miðar seldust á hátíðina og voru um 90 manns á hvoru kvöldi. Á föstudagskvöldið komu fram Rómantíski ástardúettinn, Karlakórinn Heiðbjört, Þrír, Dísa Jakobs og Emmsjé Gauti sem lokaði kvöldinu. Á laugardagskvöldið voru það Gunna…Lesa meira

true

Afar vel gengur að leggja ljósleiðara í Reykhólahreppi

Vinna við lagningu ljósleiðara í dreifbýli Reykhólahrepps gengur afar vel, að sögn Ingibjargar Birnu Erlingsdóttur sveitarstjóra. „Að mínu mati gengur þetta vonum framar,“ segir hún í samtali við Skessuhorn. „Farið var af stað seint í maí, þegar komið var undir mánaðamót. Þá var farið frá Miðhúsum og út Reykjanes. Þar er búið að leggja niður…Lesa meira

true

Tónlistarskóli Borgarfjarðar er fimmtugur í dag

Tónlistarskóli Borgarfjarðar er fimmtíu ára í dag, fimmtudaginn 7. september. Í tilefni afmælisins var boðið til hádegissnarls í húsnæði skólans að Borgarbraut 23 í Borgarnesi. Þar voru flutt stutt ávörp, gefnar gjafir og eðli málsins samkvæmt voru leikin lög og söngvar sungnir. Opið hús er í tónlistarskólanum í dag þar sem gestum og gangandi býðst…Lesa meira

true

Bændur smala í heiðanna ró

Víða um land eru göngur nú að hefjast, bændur og búalið heldur til fjalla og smalar fé til rétta. Um næstu helgi og vikurnar í kjölfarið verður réttað um allt land. Meðfylgjandi mynd tók Íris Þórlaug Ármannsdóttir bóndi á Kjalvararstöðum í Borgarfirði í morgun við Reykjavatn, suðaustan Arnarvatnshæða. Þessir leitarmenn úr Hálsasveit og Reykholtsdal héldu…Lesa meira

true

Skólabörn spretta úr spori

Norræna skólahlaupið verður sett á morgun. Um er að ræða árlegt verkefni sem grunnskólum á Norðurlöndunum býðst að taka þátt í. Markmiðið með Norræna skólahlaupinu er að hvetja nemendur til að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Á síðasta ári tóku rúmlega 15 þúsund grunnskólanemendur frá 63 skólum á Íslandi…Lesa meira

true

Ísland verður í FIFA 18

Samningar hafa náðst milli tölvuleikjaframleiðandans EA SPORTS og Knattspyrnusambands Íslands um að íslenska karlalandsliðið verði með í FIFA 18, en leikurinn er einn sá vinsælasti í heimi. Eru þetta ánægjulegar fréttir fyrir þá tugi þúsunda spilara sem spila leikinn hérlendis og að sjálfsögðu FIFA spilara um allan heim sem hafa hrifist af gengi íslenska landsliðsins undanfarin…Lesa meira

true

Tímamót á Staðarfelli – litið yfir farinn veg

Segja má að hinn sögufrægi staður, Staðarfell í Dölum, standi á tímamótum. Þar hefur undanfarin 37 ár verið rekið meðferðarheimili á vegum Samtaka áhugafólks um áfengisvandann (SÁÁ). Nú er fyrirhugað að færa þá starfsemi í nýtt hús sem er í byggingu í Vík á Kjalarnes og lýkur um leið starfsemi SÁÁ á Staðarfelli. Staðurinn á…Lesa meira

true

Snyrtistofa Brynhildar tekin til starfa

Brynhildur Stefánsdóttir opnaði Snyrtistofu Brynhildar síðastliðinn föstudag við Stillholt 14 á Akranesi. Áður hafði Brynhildur starfað við snyrtistofuna Dekur í fjögur ár. „Dekur var lokað núna um mánaðamótin og þegar ég sá fram á að hafa ekki vinnu frá og með 1. september fór ég auðvitað að hugsa hvað ég ætti að gera í staðin,“…Lesa meira

true

Stefnt að opnun Krauma í byrjun október

Framkvæmdir við hús og lóð Krauma við Deildartunguhver hófust að nýju í júnímánuði eftir kaup Jökull Invest á 66,6% hlut í Krauma. Eins og Skessuhorn hefur áður greint frá var uppbygging mannvirkja vel á veg komin síðasta vor en varð þá bið á framkvæmdum meðan nýrra fjárfesta var leitað og lokið við fjármögnun verkefnisins, sem…Lesa meira