
Handverkshátíðin 2017 fór fram á Hrafnagili í Eyjafirði frá fimmtudegi og lauk í dag. Þar mættu 150 sýnendur sem settu upp fjölbreytta og skemmtilega sýningu og veðrið lék við mannskapinn. Árlega er valinn handverksmaður ársins á sýningunni. Að þessu sinni komu verðlaunin í hlut Hraundísar Guðmundsdóttur á Rauðsgili í Borgarfirði. Hún framleiðir og selur ilmkjarnaolíur.…Lesa meira








