Fréttir

true

Jóhannes Finnur tekur við formennsku í FEBAN

Aðalfundur Félags eldri borgara á Akranesi og nágrenni (FEBAN) var haldinn í síðustu viku. Þar bar meðal annars til tíðinda að Ingimar Magnússon lét af formennsku í félaginu og við tók Jóhannes Finnur Halldórsson hagfræðingur, en hann hafði undanfarið ár setið í stjórn sem varaformaður. Nýr í stjórn kom Júlíus Þórarinsson. Áfram eru í aðalstjórn…Lesa meira

true

Byggt við brugghús til að geta tekið á móti hópum í bjórsmökkun

Þessa dagana standa yfir framkvæmdir við Brugghús Steðja í Borgarfirði, en um 150 fermetrar hafa verið byggðir aftan við sjálft brugghúsið. Þó nóg sé að gera í bjórframleiðslu segir Dagbjartur Arilíusson í Steðja að ekki sé verið að stækka brugghúsið. „Þetta er einfaldlega gert til að við getum betur tekið á móti stórum hópum sem…Lesa meira

true

Segir fermingarbörnum ekki hafa fækkað

Séra Þorbjörn Hlynur Árnason er prófastur Vesturlands-prófastsdæmis og starfandi sóknarprestur í Borgarprestakalli. Aðspurður um fermingarstörf kirkjunnar undanfarin ár segist hann almennt séð vera ánægður. „Ég er ánægður með áhuga barnanna og mér finnst slæmt að heyra þá klisju að börn séu að fermast upp á gjafir eða veislur. Það er alls ekki tilfellið,“ segir sr.…Lesa meira

true

Írskir vetrardagar – menningardagskrá á Akranesi

Írskir vetrardagar verða haldnir á Akranesi dagana 17. til 20. mars. Það var menningar- og safnanefnd Akraneskaupstaðar sem samþykkti á liðnu ári að undirbúa nýjung í menningarlífi bæjarins og halda Írska vetrardaga. „Markmiðið er að tengjast Írlandi enn frekar, meðal annars í gegnum bókmenntir og tónlist. Fimmtudagurinn 17. mars, dagur heilags Patreks eða St. Patrick‘s…Lesa meira

true

Grímsá hristir af sér klakaböndin

Talsverður framburður stórgerðra jaka fer nú niður Grímsá í Borgarfirði, en áin líkt og aðrar borgfirskar ár, er nú í leysingunum að hreinsa af sér ísinn eftir veturinn. Meðfylgjandi mynd til vinstri tók Sveinbjörn Eyjólfsson formaður Veiðifélags Grímsár og Tunguár í hádeginu í dag, þegar hann vitjaði um hross sín og veiðilendurnar í leiðinni. Til…Lesa meira

true

Jákvæð rekstrarafkoma Dalabyggðar á síðasta ári

Ársreikningur Dalabyggðar var lagður fram til fyrri umræðu á fundi sveitarstjórnar í gær, þriðjudaginn 15. mars. Þar kemur fram að rekstrartekjur sveitarfélagsins á síðasta ári námu 755,2 milljónum króna fyrir A og B hluta en rekstrargjöld 691 milljón. Rekstrarniðurstaða án fjármagnsliða var jákvæð um 35,1 milljónir en fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur námu 15,1 milljónum. Rekstrarniðurstaða Dalabyggðar…Lesa meira

true

“Grátlegt að missa góðan afla vegna rifinnar nótar”

Skipverjar á Víkingi AK komu með um þúsund tonn af loðnu til vinnslu á Akranesi í gærkvöldi. Að sögn Alberts Sveinssonar skipstjóra var þetta mjög góður afli ekki síst vegna þess að hann samanstóð að 85% af hrognafullri kvenloðnu. Albert sagði að það hefði engu að síður skyggt á ánægjuna í veiðiferðinni að eftir að…Lesa meira

true

Framleiddu úrvalsmjólk allt síðasta ár

Föstudaginn 11. mars var haldinn sameiginlegur deildarfundur þriggja deilda Auðhumlu svf. í Snæfellsness- og Mýrasýsludeild, Borgarfjarðardeild og Hvalfjarðardeild. Fundurinn var haldinn að Hótel Hamri í Borgarnesi. Egill Sigurðsson, stjórnarformaður Auðhumlu, Garðar Eiríksson framkvæmdastjóri Auðhumlu, Ari Edwald forstjóri MS og Björn Baldursson mjólkurbússtjóri á Selfossi fóru yfir rekstur Auðhumlu og MS á síðalstliðnu ári. Fram kom…Lesa meira

true

Uppfært – Lenti á vegklæðningu og hafnaði utan vegar

Skemmdir urðu á vegklæðningu á tveimur stöðum á Snæfellsnesi í rokinu síðastliðið sunnudagskvöld. Í Kolgrafafirði fauk klæðning af. Sambærilegt óhapp varð á veginum við Búlandshöfða nema þar rúllaði klæðningarefnið upp í hrauka á um hundrað metra vegarkafla. Óheppinn ökumaður sem ók inn á svæðið lenti á vegklæðningunni og fór bíllinn í loftköstum út fyrir veg og…Lesa meira

true

Brúa bilið milli skólastiga

Síðastliðinn föstudag var haldinn sameiginlegur íþróttadagur í Akraneshöll. Þar hittust elstu börn í leikskólum og 1. bekkingar í grunnskólum á Akranesi og spreyttu sig á ýmsum æfingum. Á annað hundrað börn tóku þátt í íþróttadeginum í ár og skemmtu sér konunglega. Starfsfólk skólanna hafði útbúið fjölbreyttar stöðvar um alla Akraneshöll og var börnunum skipt í…Lesa meira