Fréttir

true

Skemmtiferðaskip kemur á Akranes á næsta ári

Skemmtiferðaskipið Le Boreal mun stoppa á Akranesi 30. júlí á næsta ári. Þetta eru tíðindi fyrir ferðaþjónustu á Akranesi þar sem Le Boreal mun verða fyrsta skemmtiferðaskipið sem á viðkomu á Akranesi en slík skip hafa hinsvegar reglulega á undanförnum árum átt viðkomu í Reykjavík, Grundarfirði, Stykkishólmi, Ísafirði, Akureyri og víðar í stærri höfnum. Skipið…Lesa meira

true

Brautskráð frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Síðastliðinn föstudag var 21 nemandi brautskráður frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Af félagsfræðabraut brautskráðust Arna Dögg Hjaltalín, Berglind Muller, Hilmar Orri Jóhannsson, Matthías Fred Eggertsson, Sandra Rut Steinarsdóttir og Sæþór Sumarliðason. Af náttúrufræðibraut brautskráðust Agnes Eik Sigurjónsdóttir, Aldís Ásgeirsdóttir, Anna Kara Eiríksdóttir, Gréta Sigurðardóttir, Íris Dögg Skarphéðinsdóttir, Jóhann Kristófer Sævarsson, Katrín Eva Hafsteinsdóttir, Kristófer Jacobson…Lesa meira

true

Brautskráð frá Fjölbrautaskóla Vesturlands

Síðastliðinn laugardag voru 37 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Dröfn Viðarsdóttir aðstoðarskólameistari flutti annál vorannar 2016 og Sævar Sigurðsson nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema. Kristinn Bragi Garðarsson hlaut viðurkenningu skólans fyrir bestan árangur á stúdentsprófi á vorönn 2016. Við athöfnina fluttu Halla Margrét Jónsdóttir, Símon Orri Jóhannson, Jóna Alla Axelsdóttir og Ari…Lesa meira

true

Dramatík í lokin

Í gær fór fram leikur ÍA og Víkings Reykjavíkur í sjöttu umferð Pepsi deildar karla. Leikurinn var mikilvægur fyrir bæði lið til að spyrna sér frá botni deildarinnar. Gunnlaugur Jónsson breytti leikkerfi Skagamanna frá síðasta deildarleik úr 4-4-2 í 3-5-2. Leikurinn fór býsna fjörlega af stað og voru það Skagamenn sem skoruðu fyrsta mark leiksins…Lesa meira

true

Leyfi gefið til byggingar gróðrarstöðvar

Jón Guðmundsson garðyrkjufræðingur á Akranesi hefur skrifað undir samning um afnot af landi á Miðvogslækjarsvæði á Akranesi og hyggst byggja þar gróðrarstöð. Lóðin sem um ræðir er tæplega þrír hektarar að flatarmáli og við Þjóðveg 15. Skilgreindur er byggingarreitur fyrir starfsmannaaðstöðu á lóðinni, garðyrkjustöð og land til ræktunar. Í frétt um samninginn á vef Akraneskaupstaða…Lesa meira

true

Borgfirðingar í öðru sæti á Ringómóti

Ringómót var haldið 22. maí síðastliðinn í íþróttahúsinu á Hvolsvelli. Sex lið mættu til keppni en spiluð var ein umferð, alls 15 leikir þar sem allir kepptu við alla. Keppendur voru 26 en þau lið sem tóku þátt í mótinu voru frá Glóð í Kópavogi (tvö lið), einnig tvö lið frá UMSB í Borgarfirði og…Lesa meira

true

Sjómanndagsblað Snæfellsbæjar 2016

  Pétur Steinar Jóhannsson í Ólafsvík er sem fyrr ritstjóri Sjómannadagsblaðs Ólafsvíkur sem  gefið verður út fyrir sjómannadaginn. Gefum Pétri orðið um efni blaðsins hjá honum að þessu sinni: „Efni Sjómannadagsblaðsins að þessu sinni er m.a. viðtal við Hermann Magnússon sjómann í Ólafsvík og konu hans Svanhildi Pálsdóttur en hann er 70 ára á þessu ári…Lesa meira

true

Lambakjöt er þjóðarréttur Íslendinga

Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem unnin var fyrir Kokkalandsliðið af Gallup þá telja Íslendingar að lambakjöt sé þjóðarréttur Íslendinga. Nærri 74% landsmanna álíta að lambakjöt og lambakjötsréttir séu þjóðarréttur Íslendinga. Rannsóknin var netkönnun framkvæmd á tímabilinu 22. mars – 1. apríl 2016. Úrtakið í könnuninni var 1418 manns á öllu landinu, 833 svöruðu eða 58,7%. Það…Lesa meira

true

Uppfært – Einn slasaður eftir að húsbíll fauk á hliðina

Síðdegis í dag varð umferðaróhapp á þjóðveginum milli bæjanna Grundar og Kvernár í Grundarfirði. Þar er nú bálhvasst og slæmt ferðaveður. Samkvæmt heimildum Skessuhorns fauk húsbíll á hliðina með fjóra erlenda ferðamenn innanborðs. Sjúkrabíll og tækjabíll slökkviliðs voru kallaðir á vettvang. Einn mun hafa slasast alvarlega. Var hann fluttur til móts við þyrlu Landhelgisgæslunnar sem lenti á móts við Vegamót…Lesa meira

true

Boðar blandað námsstyrkjakerfi að norrænni fyrirmynd

Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra mun í næstu viku leggja fram frumvarp um heildarendurskoðun laga um Lánasjóð íslenskra námsmanna. Meðal helstu breytinga í frumvarpinu má nefna að námsmenn í fullu námi geta fengið 65.000 krónur á mánuði í beinan styrk. Áfram verður þó veitt námsaðstoð í formi lána á hagstæðum kjörum. Samkvæmt frumvarpinu verður námsstyrkurinn greiddur í allt…Lesa meira