Fréttir

true

Hörkukeppni og mikil tilþrif í torfærunni

Sjötta og síðasta umferð Íslandsmótsins í torfæru var haldin í gryfjunum við Fellsenda við rætur Akrafjalls á sunnudaginn. Fjöldi áhorfenda lagði leið sína á keppnina, enda aðstæður til torfæruaksturs með besta móti; skýjað og örlítil gola. Keppnishald var í höndum Torfæruklúbbs Suðurlands. Fjallað er um keppnina í máli og myndum í Skessuhorni vikunnar.Lesa meira

true

Ökklabrotnaði á göngu

Laust fyrir klukkan 8:00 í gærkvöldi var tilkynnt um um ökklabrotinn göngumann á gönguleiðinni milli Hellna og Arnarstapa. Björgunararsveitarmenn úr björgunarsveitinni Lífsbjörgu fóru á vettvang ásamt sjúkraflutningamanni. Göngumaðurinn var fluttur á sexhjóli í sjúkrabíl og komið undir læknishendur upp úr klukkan níu í gærkvöld.Lesa meira

true

Gengið hefur vel í jöklaferðum þrátt fyrir óhagstætt veður

Aron Jóhannes Leví Kristjánsson keypti rekstur ferðaþjónustufyrirtækisins Snæfellsjökull Glacier Tours í maí síðastliðnum. Aron er frá Rifi og hefur alla sína ævi starfað sem sjómaður. Hann ákvað að breyta til síðasta vor og hasla sér völl í ferðaþjónustunni. „Ég fór fyrsta túrinn með pabba þegar ég var barn en tók fyrsta sumarið mitt á grásleppu…Lesa meira

true

Enginn ölvunarakstur á heilli viku

Alls var 41 ökumaður stöðvaður fyrir of hraðan akstur í við umferðareftirlit lögregluþjóna Lögreglunnar á Vesturlandi í vikunni sem leið. Ellefu umferðaróhöpp urði í umdæminu í undangenginni viku. Í tveimur tilfellum urðu slys á fólki. Ekið var á konu á Borgarbraut í Borgarnesi og slasaðist hún illa á fæti. Þá slösuðust tveir þegar ökumaður missti…Lesa meira

true

Slegið á orðróm um annað apótek

Sá almannarómur hefur gengið manna á milli á Akranesi að fyrirtækið Lyf og heilsa hafi í hyggju að opna að nýju lyfjaverslun í verslunarkjarnanum við Dalbraut 1. Sú fiskisaga komst á kreik eftir að boðað var að snyrtistofunni Dekur yrði lokað, en áframleigusamningi Lyfja og heilsu við fyrirtækið hafði þá verið sagt upp. Lyf og…Lesa meira

true

Á góðri stund í Grundarfirði

Bæjarhátíðin „Á góðri stund“ verður haldin í Grundarfirði um helgina eins og síðustu ár. Þetta er nítjánda árið í röð sem að hátíðin er haldin og verður hún með svipuðu sniði og áður. Aldís Ásgeirsdóttir er framkvæmdarstjóri hátíðarinnar annað árið í röð en hátíðin heppnaðist einstaklega vel á síðasta ári. „Þetta veltur svolítið á veðrinu…Lesa meira

true

Reykhóladagar eru að bresta á

Byggðarhátíðin Reykhóladagar hefst á morgun, fimmtudaginn 27. júlí og stendur fram á sunnudag, 30. júlí. Bryndís Soffía Jónsdóttir, starfandi tómstundafulltrúi Reykhólahrepps, segir undirbúning hátíðarinnar hafa gengið vel fyrir sig. „Það hefur gengið mjög smurt að undirbúa Reykhóladagana og raða saman dagskránni. Það er mikill samhugur í fólki og allir sem að þessu koma tilbúnir að…Lesa meira

true

Fær hlýjar móttöku sóknarbarna

Nýverið var séra Hjálmar Jónsson, fyrrum sóknarprestur í Dómkirkjunni og alþingismaður, ráðinn sóknarprestur í Staðastaðarprestakalli til fjögurra mánaða. Hjálmar er einn reynslumesti prestur landsins en hefur að mestu leyti starfað sem prestur í fjörutíu ár ef frá eru talin árin hans á Alþingi. Ástæðan fyrir skipun Hjálmars til bráðabirgða í sóknina, er sú að séra…Lesa meira

true

Ókeypis ritföng í grunnskóla á Akranesi

Skóla- og frístundaráð Akraneskaupstaðar samþykkt á fundi sínum í gær að frá og með hausti 2017 muni sveitarfélagið leggja öllum grunnskólanemendum á Akranesi til ritföng og stílabækur, foreldrum að kostnaðarlausu. Ráðið áætlar að árlegur kostnaður yrði fjórar milljónir, eða 4000 krónur á hvern nemanda. Í fundargerð skóla- og frístundaráðs segir: „Með ákvörðun sinni vill skóla-…Lesa meira