Fréttir

true

Lýsa miklum vonbrigðum með ákvörðun bæjarstjórnar

Samtökin Betra Akranes hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna ákvörðunar bæjarstjórnar Akraness í fyrrakvöld um að samþykkja nýtt deiliskipulag á Breið sem heimilar stækkun fiskþurrkunar HB Granda á Akranesi. „Betra Akranes lýsir yfir vonbrigðum með ákvörðun bæjarstjórnar Akraness sem samþykkti á fundi sínum 24. maí 2016 að leyfa breytt deiliskipulag á athafnasvæði HB-Granda á Breið…Lesa meira

true

Millidómstig verður til á Íslandi

Lagafrumvörp Ólafar Nordal innanríkisráðherra um stofnun millidómstigs var samþykkt á Alþingi í dag. Með breytingunum verður til nýr áfrýjunardómstóll, Landsréttur. Mun hann hafa aðsetur í Reykjavík. Gert er ráð fyrir að lögin taki gildi 1. janúar 2018. Þetta kemur fram á vef innanríkisráðuneytisins. Verður því sú grundvallarbreyting á íslenskri réttarskipan að stað tveggja dómstiga áður…Lesa meira

true

Gallup kannaði fylgi forsetaframbjóðenda

Gallup framkvæmdi netkönnun dagana 19. til 25. maí um fylgi frambjóðenda til embættis forseta Íslands. Í úrtaki voru 1.429 og svöruðu 57,2% spurningunni. 3% segjast ætla að skila auðu en 12,4% tóku ekki afstöðu. Niðurstaðan var sú að Guðni Th Jóhannesson sagnfræðingur mældist með 57% fylgi. Davíð Oddsson ritstjóri nýtur stuðnings 22% og Andri Snær…Lesa meira

true

Atvinnuleysi var 4,9% í apríl

Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 198.800 manns á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í apríl 2016, sem jafngildir 84,1% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 188.900 starfandi og 9.800 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 79,9% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 4,9%. Samanburður mælinga fyrir apríl 2015 og 2016 sýnir…Lesa meira

true

Lagadagur á Bifröst

Lagadagur Nomos, félags laganema við Háskólann á Bifröst, verður haldinn laugardaginn 28. maí næstkomandi. Á deginum verður meðal annars kynnt nýtt meistaranám í viðskiptalögfræði við Háskólann á Bifröst, sem nú er í mótun, en auk þess eru áhugaverð erindi og málstofa á dagskrá. Skráning er ókeypis og er dagurinn öllum opinn. Dagskráin verður sem hér…Lesa meira

true

Níu verða á framboðslistanum

Innanríkisráðuneytið hefur gefið út auglýsingu um hverjir verði í framboði til kjörs forseta Íslands 25. júní næstkomandi. Níu verða í framboði en eitt framboð var dæmt ógilt þar sem skorti á fjölda meðmælenda. Ákvörðun sú byggir á lögum um framboð og kjör forseta Íslands, nr. 36/1945, með síðari breytingum. Forsetaframbjóðendur verða:   Andri Snær Magnason,…Lesa meira

true

Óku eftir Google Map og festust á Haukadalsskarði

Erlend hjón lentu í hremmingum á þriðjudagskvöldið þegar þau ætluðu frá Ólafsvík og norður til Akureyrar.  Hjónin óku sem leið lá um Dali og treystu á Google Map til að finna stystu leiðina til Akureyrar. Þau voru á fjórhjóladrifnum bíl og voru komin langleiðina upp á skarðið þegar þau festu bílinn í snjó en ekki…Lesa meira

true

Ríkisstjórinn lætur af störfum

„Ég er fyrsti og eini ríkisstjórinn sem Skagamenn hafa átt,“ segir Guðný Ársælsdóttir, verslunarstjóri Vínbúðarinnar á Akranesi, þegar blaðamaður Skessuhorns tók hana tali í liðinni viku. Nú um mánaðamótin lætur Guðný af störfum eftir 34 ár í Vínbúðinni, en hún hefur verið verslunarstóri þar frá upphafi. Hún segir miklar breytingar hafa orðið á starfinu og…Lesa meira

true

Ný flotbryggja í Borgarneshöfn

Faxaflóahafnir hafa nú látið koma fyrir nýrri flotbryggju í höfninni í Borgarnesi. Skessuhorn sagði í vetur frá dýpkunarframkvæmdum við bryggjuna og nú er búið að koma nýju bryggjunni fyrir. Bryggjan mun auðvelda mjög útgerð smærri báta í Borgarnesi. Þó hafa staðkunnugir áhyggjur af sandburði sem berst á svæðið ofan úr ánum og firðinum. Sandur hleðst…Lesa meira

true

Staða fjarskipta og vegakerfis óviðunandi að mati stjórnenda

Staða vegakerfisins á Vesturlandi er ekki góð og fer versnandi að mati forsvarsmanna í fyrirtækjum á Vesturlandi sem tóku þátt í könnun sem SSV þróun og ráðgjöf framkvæmdi í desember síðastliðnum. Spurt var um ýmsa þætti í rekstri fyrirtækja, svo sem menntun starfsfólks og aðra áhrifaþætti í umhverfi þeirra. Niðurstaðan birtist í fréttabréfinu Glætu, hagvísi…Lesa meira