
Jeppa var ekið aftan á fólksbíl við neðri afleggjarann að Rifi á Snæfellnesi um hádegisbil í dag. Þrennt var flutt til læknisskoðunar á Heilsugæslustöðina í Ólafsvík. Lítið sá á jeppanum en fólksbíllinn var óökufær og fluttur burt á palli.Lesa meira

Jeppa var ekið aftan á fólksbíl við neðri afleggjarann að Rifi á Snæfellnesi um hádegisbil í dag. Þrennt var flutt til læknisskoðunar á Heilsugæslustöðina í Ólafsvík. Lítið sá á jeppanum en fólksbíllinn var óökufær og fluttur burt á palli.Lesa meira

Í gær var leikið í áttundu umferð fyrstu deildar kvenna í knattspyrnu. Á Akranesvelli mættust Vesturlandsliðin ÍA og Víkingur Ólafsvík en bæði hafa þau átt í vandræðum með stigasöfnun það sem af er sumri. Víkingur var fyrir leikinn í næstneðsta sæti með fjögur stig og ÍA í áttunda með sjö stig. Leikur gærdagsins var hin…Lesa meira

Arnaud de Meester er belgískur ofuríþróttamaður sem nú er staddur hér á landi. Hann hóf í morgun þríþraut sem er harla óvenjuleg og kallar hana 666-Challange. Þar mun hann synda sex kílómetra, hjóla sexhundruð kílómetra og endar síðan á 60 kílómetra hlaupi. Allar þessar þrautir ætlar hann að yfirvinna á Vesturlandi og ætlar til þess…Lesa meira

Nú geta framteljendur nálgast álagningarseðla skatts á þjónustuvefnum skattur.is. Seðlar verða síðan bornir út með landpósti til þeirra sem ekki afþökkuðu þá á pappír. „Með örfáum undantekningum verða inneignir lagðar inn á bankareikninga föstudaginn 30. júní. Engar ávísanir verða sendar út og þurfa þeir sem ekki hafa tilkynnt um bankareikning því að sækja inneignir sínar…Lesa meira

„Það er okkur mikill heiður og sönn ánægja að fá í sölu Vatnsvæði Lýsu á Snæfellsnesi en þessi fallega perla er frábær silungsveiðikostur og í bestu árum hafa veiðst hátt í 200 laxar á sumri,“ segja þau Stefán Sigurðsson og Harpa Þórðardóttir sem hafa nú tekið Vatnasvæði Lýsu á Snæfellsnesi á leigu í sumar. „Veiði…Lesa meira

Í kvöld, miðvikudaginn 28. júní, ver Gunnar Reynisson meistararitgerð sína, „Analysis of movement in tölt and pace in the Icelandic horse“ [Hreyfigreiningar á tölti og skeiði í íslenska hestinum]. Þetta er meistaraverkefni í hestafræði frá Auðlinda- og umhverfisdeild Landbúnaðarháskóla Íslands. Leiðbeinendur eru Dr. Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri Rangárþyngs ytra, og Dr. Þorvaldur Kristjánsson, ábyrgðarmaður hrossaræktar. Prófdómari…Lesa meira

„Framlög ríkisins til Náttúrustofu Vesturlands hafa skerst verulega frá því sem var þegar starfsemin var mótuð og skipulögð. Raun lækkun framlaga er um 40% sem gerir starfsemina mjög erfiða miðað við þau nauðsynlegu verkefni sem blasa við vegna rannsókna og vöktunar á viðkvæmum svæðum Vesturlands og Breiðafjarðar,“ segir í bókun sem stjórn Náttúrustofu Vesturlands samþykkti…Lesa meira

Dagana 30. júní til 2. júlí næstkomandi verður haldið vinabæjamót í Borgarbyggð. Sveitarfélagið Borgarbyggð og Borgarfjarðardeild Norræna félagsins hafa haft veg og vanda að undirbúningi mótsins. Tæplega 60 gestir frá vinabæjum Borgarbyggðar mun mæta á mótið. Vinabæirnir eru: Ullensaker í Noregi, Falkenberg í Svíþjóð, Odsherred í Danmörku og Eysturkommuna í Færeyjum. „Flestir gestanna er á…Lesa meira

Húlladúllan Unnur María Bergsveinsdóttir heimsækir sinn gamla heimabæ í Borgarnesi fyrstu vikuna í júlí með sirkussmiðju fyrir börn og unglinga á aldrinum 8 – 14 ára. Þátttakendur geta þar kynnst töfrum sirkuslistanna á skemmtilegu viku löngu námskeiði. „Við munum húlla, djöggla slæðum, boltum og hringjum, leika okkur að þyrilstöfum og sveiflusekkjum, læra fimleikakúnstir, láta eins…Lesa meira

Spilliforrit, sem líklega beitir nýju afbrigði af hugbúnaði sem þekktur er undir nafninu „Petya“ herjar nú á tölvukerfi í nokkrum löndum, svo sem Danmörku, Bretlandi, Úkraínu og Rússlandi. Spilliforritið er gagnagíslataka, það er gögn viðkomandi tölvu eru dulrituð og krafist er lausnargjalds svo afkóða megi gögnin. Vísbendingar eru um að þetta afbrigði noti sömu smitleið…Lesa meira