Fréttir

true

Makríllinn mættur í Breiðafjörðinn

Það voru margir sem voru samankomnir á bryggjusporðinum í Ólafsvík seinni partinn í gær þegar spurðist út að makríllinn væri mættur. Arnór Ísfjörð Guðmundsson, sem var að veiða ásamt börnum sínum, sagði í samtali við Skessuhorn að makríllinn hafi komið síðdegis. „Það er bara mok hér,“ sagði Arnór og bætti við að það væri ekki…Lesa meira

true

Hótel Bifröst fær Vakann fyrst vestlenskra hótela

Hótel Bifröst í Borgarfirði fékk í síðustu viku gæðaviðurkenningu Vakans. Flokkast hótelið nú sem þriggja stjörnu hótel samkvæmt viðurkenndum gæðaviðmiðum Vakans. Hótel Bifröst er jafnframt fyrst vestlenskra hótela til að ná þessari vottun. Hótelið hóf umsóknarferlið hjá Vakanum árið 2015. „Með þátttöku í Vakanum kristallast vilji okkar til að veita gestum okkar framúrskarandi þjónustu sem…Lesa meira

true

Ein besta byrjun í Grímsá til fjölda ára

„Þetta er meiriháttar byrjun en núna er komnir á milli 80 og 90 laxar á land vítt og breytt úr ánni. Byrjunin er ein sú besta í Grímsá til fjölda ára,“ sagði Jón Þór Júlíusson við Grímsá í Borgarfirði en veiðin fór verulega vel af stað þetta sumarið. „Á opnunardaginn í síðustu viku veiddust um…Lesa meira

true

Leki kom upp í báti í Rifshöfn

Í morgun var björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæfellsbæ kölluð út vegna leka sem komið hafði upp í Sæljósi GK. Báturinn var þá bundinn við bryggju í Rifi. Leki kom síðast upp í bátnum 16. mars á þessu ári, en þá var hann á veiðum sjö sjómílur frá landi og var einn skipsverji þá um borð. Greiðlega…Lesa meira

true

Norðurálsmótið er farið af stað

Nú í hádeginu var Norðurálsmótið sett á Akranesi, en því lýkur á sunnudaginn. Klukkan rétt rúmlega ellefu hófst skrúðganga frá ráðhúsinu við Stillholt sem öll liðin á mótinu tóku þátt í. Fyrir göngunni fóru nokkrir nemendur í Tónlistarskóla Akraness með trommuslætti. Mikil gleði og eftirvænting var hjá bæði knattspyrnumönnunum og foreldrum þeirra fyrir helginni. Skrúðgangan…Lesa meira

true

Herskipalest sigldi inn á Hvalfjörð

Flokkur herskipa með varðskipið Týr í broddi fylkingar auk norsks kafbáts sigldu í halarófu inn Hvalfjörð í morgun og að gömlu herstöðinni í Hvítanesi, við sunnanverðan fjörðinn. Auk sjö skipa var þyrla Landhelgisgæslunnar á sveimi og þyrla af einu herskipanna. Íbúum á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi var mörgum talsvert brugðið þegar flotinn sigldi í halarófu inn…Lesa meira

true

Ný upplýsingaskilti um lífríkið á Langasandi

Við göngustíginn meðfram Langasandi á Akranesi er búið að koma fyrir upplýsingandi skiltum um lífríkið við ströndina. Það er Akraneskaupstaður sem kostar gerð skiltanna en framleiðandi þeirra er Jóhann Ísberg. Teikningar er eftir Jón Baldur Hlíðberg og sýna þær fugla og fiska, krabba og gróður sem vænta má að finna á göngu um sandinn. Að…Lesa meira

true

Skortur á fólki í Vinnuskólann verður til að Borgarbyggð lánar út garðáhöld

Sveitarfélagið Borgarbyggð hefur ákveðið að ráðast í tilraunaverkefni með íbúum sem felst í því að þeir geta fengið lánuð garðáhöld til að fegra í kringum húsin sín. Fyrirkomulagið er með þeim hætti að hægt er að nálgast og skila garðáhöldunum hjá flokksstjórum Vinnuskólans við UMSB húsið við Skallagrímsgötu 7a í Borgarnesi þrisvar á dag; klukkan…Lesa meira

true

17,6% atvinnuleysi meðal ungt fólks í maí

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru 193.000 starfandi og 10.800 án vinnu og í atvinnuleit í maímánuði. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 80,5% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 5,3%. Samanburður mælinga fyrir maí 2016 og 2017 sýnir að atvinnuþátttaka lækkaði um 0,9 prósentustig. Fjöldi starfandi minnkaði um 600 manns og hlutfall starfandi af mannfjölda lækkaði…Lesa meira

true

Jónas Sig og ritvélarnar starta Ólafsvíkurvöku

Jónas Sig og hljómsveit hans, Ritvélar framtíðarinnar, mun spila í Rifi við upphaf Ólafsvíkurvöku um aðra helgi. Hljómsveitin ætlar að endurtaka leikinn frá því í fyrrasumar og fara í útilegutúr hringinn í kringum landið. Að þessu sinni verða fleiri dagar og fleiri staðir sem komið verður við á. „Eftirvæntingin er mikil enda finnst þessari hljómsveit…Lesa meira