Fréttir

true

Skagamenn áfram í bikarnum

ÍA tók á móti 2. deildar liði KV í 32 liða úrslitum Borgunarbikars karla í knattspyrnu fyrr í kvöld. Leiknum lauk með 1-0 sigri ÍA. Eina mark leiksins kom strax á 5. mínútu og það gerði Þórður Þorsteinn Þórðarson. Fyrirgjöf frá vinstri rataði í gegnum vítateginn og á fjærstöngina þar sem Þórður var mættur og kláraði færið.…Lesa meira

true

„Það þurfa allir á góðu netsambandi að halda“

Ólína Gunnlaugsdóttir á Ökrum er eigandi og framkvæmdastjóri Samkomuhússins á Arnarstapa. Undanfarið hefur internetið verið henni hugleikið. Hún segir að netið sé orðið hluti af daglegu lífi fólks, sjálfsagður hlutur. Ferðamenn séu hættir að spyrja hvort það sé þráðlaust net á staðnum en biðji þess í stað bara um aðgangsorðið. „Ég man ekki eftir neinum…Lesa meira

true

Gæðingamót Faxa og Skugga 4. júní

Gæðingamót hestamannafélaganna Faxa og Skugga verður haldið í Borgarnesi laugardaginn 4. júní næstkomandi. Keppt verður í barnaflokki, unglingaflokki, ungmennaflokki, B flokki gæðinga og A flokki.  Einnig í 150 m. skeiði ef þátttaka næst og verður tímataka handvirk. “Mótið er einvörðungu ætlað félagsmönnum og hestum Faxa og Skugga. Skráning er í gegnum Sportfeng og er Skuggi…Lesa meira

true

Níu sóttu um skólastjórastöðu TOSKA

Umsóknarfrestur um stöðu skólastjóra Tónlistarskólans á Akranesi rann út 12. maí síðastliðinn. Níu manns sóttu um starfið: Alexandra Chernyshova, Birgir Baldursson, Birgir Þórisson, Daníel Arason, Gestur Guðnason, Guðbjörg Leifsdóttir, Guðmundur Óli Gunnarsson, Ragnar Jónsson og Sveinn Sigurbjörnsson. Þessa dagana er verið að vinna úr umsóknunum. Bæjarstjórn mun síðan taka ákvörðun um ráðningu skjólastjóra tónlistarskólans í…Lesa meira

true

Snæfell semur við tvo leikmenn

Tveir leikmenn hafa samið við körfuknattleiksdeild Snæfells og munu leika með karlaliði félagsins í Domino‘s deild karla á komandi vetri. Leikmennirnir eru annars vegar Rúnar Þór Ragnarsson frá Kverná. Hann er fæddur árið 1993 og leikur stöðu miðherja. Rúnar lék á síðasta vetri með liði Grundfirðinga í 3. deildinni. Hins vegar hefur verið endurnýjaður samningur…Lesa meira

true

Viðbygging risin við gamla bókasafnið á Akranesi

Eins og Skessuhorn hefur áður greint frá er verið að breyta gamla bókasafnshúsinu við Heiðarbraut 40 á Akranesi í íbúðarhúsnæði. Hefur sú vinna staðið yfir undanfarið ár. Framkvæmdum í sjálfu bókasafnshúsinu er lokið, allar íbúðir tilbúnar og aðeins ein óseld. Þessa dagana er unnið við viðbyggingu hússins. Hún er risin, var reist úr forsteyptum einingum,…Lesa meira

true

Skagakonur mæta Haukum í bikarnum

Dregið var í 16 liða úrslit Borgunarbikars kvenna í knattspyrnu í gær. Leikdagar verða helgina 11.-12. júní. Þegar dregið er í 16 liða úrslit bikarsins er úrvalsdeildarliðum bætt í pottinn. Þá kom í ljós að ÍA mætir Haukum á Ásvöllum í Hafnarfirði og fer leikurinn fram sunnudaginn 12. júní. Aðrar viðureignir verða eftirfarandi: Bikarmeistarar Stjörnunnar heimsækja…Lesa meira

true

Viðsnúningur hjá Búmönnum

Í september á síðasta ári var kjörinn nýr formaður stjórnar samvinnufélagsins Búmanna, stjórn endurnýjuð að hluta og öll varastjórn endurnýjuð. „Þegar stjórnin tók við var félagið í frjálsu falli. Það var í greiðslustöðvun og ekkert annað blasti við en gjaldþrot félagsins. Ný stjórn hafði það erfiða verk fyrir höndum að bjarga félaginu frá gjaldþroti,“ var meðal…Lesa meira

true

Sjómannadagsblað Skessuhorns í næstu viku

Í næstu viku verður hið árlega Sjómannadagsblað Skessuhorns gefið út. Komið verður víða við í efnistökum. Allar góðar ábendingar eru þó vel þegnar frá lesendum um efni sem gæti átt heima í blaðinu. Skemmtilegar veiðimyndir af sjó eða jafnvel úr höfnum, veiðisögur, reynslusögur eða hvaðeina er vel þegið og óskast sent á ritstjórn sem fyrst.…Lesa meira

true

Skagakonur töpuðu fyrir Selfyssingum

Þriðja umferð Pepsi deildar kvenna í knattspyrnu var leikin í gær. ÍA tók á móti Selfossi og mátti sætta sig við 0-2 tap. Leikið var í Akraneshöll, en leikurinn var færður inn með skömmum fyrirvara vegna veðurs. Talsvert mikið rok var á Akranesvelli og vart boðlegt að leika þar knattspyrnu við slíkar aðstæður. Nokkuð jafnræði…Lesa meira