Fréttir

true

Hestaleigan Dalahestar tekin til starfa

Á laugardaginn tók hestaleigan Dalahestar til starfa í Búðardal. Fyrirtækið er með aðstöðu í gamalli hlöðu að Fjósum, í útjaðri þorpsins. Að Dalahestum standa Carolin Baare-Schmidt og Valdís Gunnarsdóttir. Þær munu annars vegar bjóða upp á samveru með hestunum í beitarhaganum, þar sem gestum gefst kostur á að láta teyma undir sér og hins vegar…Lesa meira

true

Framkvæmdir við Vesturgötu ganga þokkalega

Nú standa yfir nokkuð umfangsmiklar framkvæmdir á Vesturgötu á Akranesi. Jarðvegsskipti verða í götunni milli Stillholts og Merkigerðis og hún malbikuð eftir það. Samhliða þeim verkefnum verða lagnir sem liggja í götunni og gangstéttum endurnýjaðar eða endurbættar þar sem það á við. Þegar Skessuhorn heyrði í Guðmundi Guðjónssyni eiganda Skóflunnar sem sér um verkið sagði…Lesa meira

true

Lionsmenn öflugur í bílastæðamerkingum

Ein af helstu fjáröflunarleiðum Lionsklúbbs Borgarness undanfarin ár hefur verið að selja fasteignaeigendum merkingar á bílastæði. Tekið er við pöntunum og mæta síðan vaskir Lionsmenn á svæðið; mæla, merkja, hreinsa undirlag og mála. Í gærkvöldi vann hópur þeirra að merkingum bílastæða við Bónushúsið í Borgarnesi. Gengið var ákveðið til verks. Sumir mældu bílastæðin, meðan aðrir…Lesa meira

true

Kvennahlaup ÍSÍ verður hlaupið á sunnudaginn

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram á sunnudaginn, 18. júní. Hlaupið verður á fjölmörgum stöðum hérlendis sem og erlendis, þar af á tíu stöðum á Vesturland; Akranesi, Hvalfjarðarsveit, Borgarnesi, Hvanneyri, Reykholti, Grundarfirði, Ólafsvík, Lýsuhóli, Búðardal og Reykhólum. Markmið Kvennahlaupsins hefur frá upphafi verið að vekja áhuga kvenna á reglulegri hreyfingu. Kvennahlaupið er einn útbreiddasti og fjölmennasti…Lesa meira

true

Albert og Tryggvi spiluðu með í tapleik U-21 landsliðsins

Um liðna helgi lék íslenska U-21 árs landslið karla í knattspyrnu vináttuleik við U-21 árs lið Englands. Leikurinn fór fram á St. George‘s Parks í Englandi og lauk með 3-0 sigri Englands. Lið Englands er mjög sterkt og má þar finna fastamenn í liðum í efstu deild en liðið hefur leik á Evrópumótinu á föstudaginn…Lesa meira

true

“Hefði þurft að bera barnaeignir undir stórfjölskylduna”

Halldóra Hallgrímsdóttir eignaðist sinn seinni son með manninum sínum í janúar 2015. Henni gekk brösulega að finna dagforeldrapláss á Akranesi fyrir strákinn eftir að fæðingarorlofi lauk og hefur reyndar ekki fundið neitt ennþá. Strákurinn er nú orðinn tveggja og hálfs árs gamall og hefur enn ekki fengið leikskólapláss en kemst inn í leikskóla á Akranesi…Lesa meira

true

Stofnar fyrirtæki til að geta varið meiri tíma með syni sínum

Í haust er stefnt að því að opna nýtt fyrirtæki á Akranesi sem mun bera nafnið Sansa. Stofnandi þess er Þórður Már Gylfason og segir hann fyrirtækið muna sérhæfa sig í því að sansa heimilismat fyrir þá sem kaupa þjónustuna. „Þetta er fyrirtæki í anda þjónustu sem fólk kannast við undir merkinu Eldum rétt. Fólk…Lesa meira

true

Fjöliðjan á Akranesi tekur nýtt gróðurhús í notkun

Frá því 2015 hefur á lóð Fjöliðjunnar við Dalbraut á Akranesi verið unnið að því að reisa gróðurhús fyrir starfsfólk. Nú er gróðurhúsið tilbúið og notkun á því hafin. Helga Ólafsdóttir stuðningsfulltrúi í Fjöliðjunni heldur utan um starfsemi í gróðurhúsinu. Helga kveðst afar ánægð með að starfsemi sé hafin í húsinu. „Allt frá fyrsta degi…Lesa meira

true

Staðfest að Jómfrúarsigling nýrrar ferju verður á morgun

Nú hefur verið staðfest að ný Faxaflóaferja mun sigla jómfrúarsiglingu sína frá Reykjavík til Akraness á morgun, fimmtudag, klukkan fimm síðdegis. Ferjan er komin til landsins og er nú unnið að því að merkja hana en hún mun ekki heita Akraborgin eins og orðrómur hafði verið um. Við komuna til Akraneshafnar á morgun segir Gunnlaugur…Lesa meira

true

Opnunarmót frisbígolfvallar – Búðardalur Open

Á þjóðhátíðardaginn 17. júní verður haldið opnunarmót frisbígolfvallar sem nýverið var settur upp í Búðardal. Mótið hefur fengið titilinn „Búðardalur Open“ í anda stórmóta í golfheiminum. Sindri Geir Sigurðarson heldur utan um mótshaldið og fer skráning fram í gegnum netfangið sindrigeir98@gmail.com Mótið er einstaklingskeppni fyrir 6 ára og eldri en foreldrum er velkomið að aðstoða…Lesa meira