Fréttir

true

Undirbúningsfundur annað kvöld – Brákarhátíð verður 24. júní

„Opinn undirbúningsfundur fyrir Brákarhátiðina verður haldinn í Landnámssetrinu miðvikudaginn 31. maí kl. 20.Við hvetjum alla sem langar til að koma að dagskránni, hafa hugmyndir um eitthvað nýtt sem gaman væri að gera eða vilja á einhvern hátt leggja sitt af mörkum, að mæta á fundinn. Forsvarsmenn félagasamtaka sem áður hafa tekið þátt í dagskránni eru…Lesa meira

true

Góð þátttaka og glæsihross á gæðingamóti

Gæðingamót hestamannafélaganna Faxa og Skugga fór fram síðstliðinn laugardag í Borgarnesi. Mótið var jafnfram úrtaka fyrir Fjórðungsmót Vesturlands sem haldið verður á sama stað seinnipartinn í júní. Bæði Skuggi og Faxi mega senda sex keppendur í hvern flokk á FM. Skráning á mótið var mjög góð og margar flottar sýningar. Efstu hestar í hverjum flokki…Lesa meira

true

Ráðherrar svöruðu fyrirspurnum um sjávarrof og sjóvarnir

Fyrir skemmstu bárust svör þriggja ráðherra við spurningum Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur alþingismanns VG í Norðvesturkjördæmi um sjávarrof, sjávarflóð og sjóvarnir. Sjávarrof hefur valdið landeyðingu víða um land og orði til þess að minjar um búsetu og lífsbaráttu genginna kynslóða eru horfnar eða í hættu og í sumum tilvikum á þetta einnig við um mannvirki sem…Lesa meira

true

Mark á lokamínútunni réði úrslitum

Víkingur Ó. mætti Þrótti R. í þriðju umferð 1. deildar kvenna í knattspyrnu í gær. Leikið var í Reykjavík. Víkingsliðið kom mun ákveðnara til leiks og réði ferðinni í upphafi, án þess þó að skapa sér afgerandi marktækifæri. Eftir því sem leið á komst Þróttur betur inn í leikinn og það voru þær sem áttu…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík tapaði gegn Breiðabliki

Í Kópavogi á sunnudag kepptu lið Breiðabliks og Víkings Ólafsvíkur í fimmtu umferð Pepsideildar karla í knattspyrnu. Mikil eftirvænting var fyrir leiknum og þá sérstaklega í ljósi þess að Milos Milojevic, nýráðinn þjálfari Breiðabliks, stýrði liðinu í fyrsta sinn í leiknum en hann hóf tímabilið sem þjálfari Víkings Reykjavíkur. Það var slæmur kafli í fyrri…Lesa meira

true

Skagamenn sóttu þrjú stig til Vestmannaeyja

Um síðustu helgi var leikin fimmta umferð í Pepsideild karla í knattspyrnu. Í Vestmannaeyjum fór fram leikur ÍBV og ÍA. Fyrir leikinn voru Eyjamenn með sjö stig en Skagamenn sátu stigalausir á botni deildarinnar. Skagamenn voru því í erfiðri stöðu fyrir leikinn og ræddu knattspyrnuspekingar það fyrir leikinn að Skagamenn yrðu að sigra ætluðu þeir…Lesa meira

true

Naumt tap í stórleik umferðarinnar

ÍA tók á móti HK/Víkingi í stórleik 1. deildar kvenna í knattspyrnu á laugardag, en því var spáð fyrir tímabilið að bæði lið yrðu í toppbaráttu í deildinni í sumar. Þrátt fyrir að gestirnir hafi verið meira með boltann í upphafi leiks voru Skagakonur sprækari á upphafsmínútunum. Mátti engu muna að þær kæmust yfir strax…Lesa meira

true

Hundaeigandi sviptur dýrum sínum

Matvælastofnun hefur tekið tvo hunda og átta hvolpa úr vörslu eiganda. Ástæða vörslusviptingar er óviðunandi aðbúnaður og umhirða, sinnuleysi og vanþekking til að halda dýr. Umdæmisskrifstofu Matvælastofnunar á Suðvesturlandi barst í vor ábending um tík á lausagangi. Hún var örmagna og við það að gjóta. Haft var upp á eiganda tíkurinnar sem hafði ekki gert…Lesa meira

true

Varp í hættu vegna hækkunar vatnsborðs Skorradalsvatns

Síðustu daga hefur vatnshæð Skorradalsvatns verið að hækka. Á þremur dögum, frá föstudegi til sunnudags, hefur vatnsyfirborðið hækkað um sex sentimetra og var á sunnudagsköld samkvæmt mæli Veðurstofunnar við úthlaup vatnsins 62,12 cm. Orka náttúrunnar hefur gefið það út að vatnsstaðan skuli ekki vera hærri en 62,18 cm. Í raun er Skorradalsvatn vatnsmiðlun fyrir Andakílsárvirkjun…Lesa meira

true

Skagamenn eru Vesturlandsmeistrar í boccia

Árlegt Vesturlandsmót félags eldri borgara í boccia fór fram í Borgarnesi síðastliðinn laugardag. Þetta mun vera í ellefta skipti sem mótið er haldið en a.m.k. sex sveitarfélög hafa skipst á að hýsa það. Til leiks mættu að þessu sinni 16 sveitir; fjórar frá Akranesi, Borgarbyggð og Stykkishólmi og tvær sveitir frá Snæfellsbæ og Húnaþingi vestra.…Lesa meira