
Akranes mætir í kvöld liði Fjarðabyggðar í úrslitaþætti Útsvars, spurningakeppni sveitarfélaganna sem sýnd er á RÚV. Skagamenn sigruðu Hafnfirðinga 65-46 í undanúrslitum en Fjarðabyggð bar sigurorð af liði Grindavíkur með 63 stigum gegn 39. Lið Akraness skipa þau Örn Arnarson, Vilborg Þórunn Guðbjartsdóttir og Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir. Úrslitaviðureignin hefst í beinni útsendingu kl. 20:05 í kvöld.…Lesa meira








