Fréttir

true

Námskeið fyrir nýliða í gæðastýrðri sauðfjárrækt

Matvælastofnun mun í næsta mánuði halda undirbúningsnámskeið fyrir þá sem hyggjast sækja um aðild að gæðastýringu í sauðfjárrækt, en krafist er að þátttakendur í gæðastýrðri sauðfjárrækt hafi sótt slíkt námskeið. Námskeiðið verður haldið mánudaginn 20. júní klukkan 10-17 á Hvanneyri. Gert er ráð fyrir að halda annað námskeið í nóvember og verður það auglýst þegar…Lesa meira

true

Ítrekað sakfelld fyrir umferðarlagabrot

Héraðsdómur Vesturlands hefur sakfellt konu á fertugsaldri fyrir ítrekað umferðarlagabrot. Það var Lögreglustjórinn á Vesturlandi sem lagði fram kæru. Hafði konan lagt bifreið sinni á gangstétt við verslunina Nettó í Borgarnesi og síðan ekið henni ótryggðri. Þá þótti konan auk þess óhæf til að stjórna bifreiðinni vegna áhrifa ólöglegra ávana- og fíkniefna og var hún svipt ökuréttindum.…Lesa meira

true

Innkalla Ora fiskibollur í karrísósu

Matvælastofnun hefur fengið tilkynningu frá fyrirtækinu Ora um að það hafi, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, ákveðið að innkalla Ora fiskibollur í 850 gr umbúðum. Ástæða innköllunarinnar er sú að mistök urðu við hitun vörunnar og telst hún því ekki örugg til neyslu. Lotunúmer hinnar gölluðu vöru er:  L1A0912 0070 og best fyrir…Lesa meira

true

Hlaupið í dag með friðarkyndil á Snæfellsjökul

Farið verður með logandi friðarkyndilinn upp á Snæfellsjökul klukkan 13 í dag í Sri Chinmoy heimseiningar friðarhlaupinu. Fólk verður á hlaupum um Íslandi þessa vikuna áður en logandi friðarkyndillinn verður sendur áfram til Slóvakíu, en öll lönd í Evrópu og yfir 100 lönd í allt taka þátt í þessu kyndilboðhlaupi, sem indverski friðarfrömuðurinn Sri Chinmoy…Lesa meira

true

Boruðu eftir vatni til að nota á varmadælur

Í síðustu viku voru þeir félagar hjá Vatnsborun Árna Kópssonar mættir með borinn Óðinn til hjónanna Sigrúnar Fjólu Vigfúsdóttur og Böðvars Jónssonar á Hellissandi. Tilgangurinn var að bora eftir vatni hjá þeim hjónum en þau eru nýflutt til landsins frá Noregi eftir að hafa búið þar í 14 ár. Ætlunin er að nota vatnið úr…Lesa meira

true

Héldu skólaþing í Stykkishólmi

Laugardaginn 21. maí var Skólaþing Stykkishólmsbæjar haldið þar sem lögð voru fram drög að endurskoðaðri skólastefnu bæjarins. Bæjarstjórn skipaði stýrihóp í haust til að vinna að skólastefnunni og Ingvar Sigurgeirsson, prófessor við Kennaradeild Háskóla Íslands var fenginn til stýra vinnunni. Undanfarna mánuði hefur Ingvar haldið fundi með nemendum Grunnskólans og Tónlistarskólans, leikskólabörnum, starfsfólki skólanna þriggja,…Lesa meira

true

Fjögur þúsund tonn af nautgripakjöti

Samkvæmt yfirliti frá búnaðarmálaskrifstofu Matvælastofnunar hafa rétt rúmlega fjögur þúsund tonn af nautgripakjöti verið framleidd síðastliðna tólf mánuði, maí 2015 til apríl 2016. Er það aukning sem nemur 16,8% miðað við sama tímabil frá árinu á undan. Salan á sama tímabili var 3.970 tonn, sem er aukning um 15,1% frá fyrra ári. Þetta kemur fram…Lesa meira

true

Píratar héldu aðalfund sinn í Grundarfirði

Aðalfundur Pírata á Vesturlandi var haldinn síðastliðinn laugardag í Grundarfirði. Staðurinn var valinn til heiðurs nýjasta aðildarfélagi flokksins, Pírötum í Grundarfjarðarbæ. Á fundinum var hefðbundin dagskrá aðalfundar auk þess sem ný stjórn var kosin. Formaður var kosinn í forgangskosningu, til að tryggja að sá sem nyti mest stuðnings meðal félagsmanna hlyti oddvitasætið. Stjórnin var kosin…Lesa meira

true

Lentu þyrlu á toppi Kirkjufells

Kirkjufell við Grundarfjörð er líklega eitt af þekktari fjöllum landsins enda gríðarlega vinsæll viðkomustaður ljósmyndara og náttúruunnenda. Einnig eru margir sem leggja í gönguferðir í kringum fjallið og svo enn aðrir sem ganga upp á það. Sú fjallganga er ekki fyrir lofthrædda enda oft ansi bratt þegar fólk er að fikra sig upp hlíðarnar. Afar…Lesa meira

true

Gleði á æskulýðsdegi hestamannafélaganna

Æskulýðsdagur hestamannafélaganna á Vesturlandi var haldinn í Borgarnesi á laugardaginn. Að sögn þeirra sem mættu var dagurinn skemmtilegur og þá sérstaklega fyrir krakkana. Var öllum börnum á Vesturlandi boðið að taka þátt og komu krakkar m.a. fram í búningum. Teymt var undir þeim yngstu. Sýnd voru glæsileg atriði sem krakkar úr landshlutanum hafa æft í…Lesa meira