Fréttir

true

Bílvelta við Akrafjallsveg

Betur fór en á horfðist þegar bílvelta varð við Akrafjallsveg laust fyrir klukkan 17 síðdegis í gær. Tveir voru í bílnum, ökumaður og farþegi. Ökumaður missti stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að hann fór út af, yfir troðning sem liggur þar meðfram veginum og hafnaði á hvolfi úti í skurði. Vegfarandi sem varð vitni…Lesa meira

true

Víkingskonur lágu fyrir Selfossi

Víkingur Ó. mætti liði Selfoss í annarri umferð 1. deildar kvenna í knattspyrnu á föstudagskvöld. Leikið var á Ólafsvíkurvelli og máttu heimakonur sætta sig við tap, 0-4. Gestirnir frá Selfossi áttu algjöra draumabyrjun í leiknum. Þær komust yfir strax á 11. mínútu með marki frá Barbáru Sól Gísladóttur og aðeins fjórum mínútum síðar skoraði Karitas…Lesa meira

true

Baráttusigur ÍA í Breiðholtinu

ÍA sigraði ÍR með tveimur mörkum gegn einu þegar liðin mættust í annarri umferð 1. deildar kvenna í knattspyrnu á föstudag. Leikið var í Breiðholtinu í Reykjavík. Um mikinn baráttuleik var að ræða. Heimaliðið mætti ákveðið til leiks og beitti góðri hápressu. Náðu þær á köflum að neyða Skagakonur til að beita löngum spyrnum og…Lesa meira

true

Biðla til almennings og fyrirtækja um stuðning við afrekssjóð sundfólks

Sundfélag Akraness biðlar til fyrirtækja og velunnara félagsins um stuðning til kostnaðarsams uppbyggingarstarfs. Mikil aðsókn hefur verið bæði í sundskóla félagsins og einnig í starfsemi yngri hópanna. Í elstu aldurshópunum er sundfólk sem keppir fyrir hönd félagsins en þar á meðal er afreksfólk sem keppir fyrir Íslands hönd á mörgum mótum, bæði hér á landi…Lesa meira

true

Ferðablaðið Travel West Iceland komið út

Nú í byrjun mánaðarins kom hið árlega ferðablað um Vesturland út. Útgefandi er Skessuhorn. Það nefnist „Travel West Iceland 2017-2018 – Ferðast um Vesturland“ og er gefið út á ensku og íslensku. Ljósmyndir og kort af einstökum svæðum og þéttbýlisstöðum prýða blaðið og eru auglýsendur í hverjum efniskafla staðsettir á kort eftir númerum. Blaðið er…Lesa meira

true

Eyjamenn sigruðu Víking í Ólafsvík

Fjórða umferð Pepsideildar karla hófst í gær í Ólafsvík með leik Víkings og Eyjamanna. Fyrir leikinn höfðu bæði lið aðeins unnið einn leik það sem af er móti. Leikurinn var bragðdaufur og fátt var um fína drætti en baráttan þó mikil. Leiknum lauk með nokkuð öruggum 3-0 sigri Eyjamanna sem með sigrinum lyftu sér upp…Lesa meira

true

Sóttu vélarvana rækjubát

Um klukkan 7:30 í gærmorgun barst björgunarsveitinni Lífsbjörg í Snæfellsbæ útkall þar sem beðið var um að sækja togbátinn Dag SK-17 sem gerður er út á rækju á Breiðarfirði af Dögun á Sauðárkróki. Dagur er 363 brúttótonna skip og var hann staðsettur níu sjómílur norðvestur af Rifi þegar hann varð vélarvana. Veður var með besta…Lesa meira

true

Viðbragðsaðilar munu alltaf að hluta koma úr röðum sjálfsboðaliða

Spurningunni; Er viðbragðskerfið á Íslandi sprungið vegna fjölgunar ferðamanna, var reynt að svara á ráðstefnu sem haldin var á Akureyri um síðustu helgi sem m.a. Landsbjörg og Háskólinn á Akureyri stóðu fyrir. Fyrr rétt um sjö árum var fjöldi ferðamanna sem til landsins kom innan við hálf milljón en áætlaður fjöldi á þessu ári er…Lesa meira

true

Lífland innkallar áburð

Lífland hefur innkallað áburðartegundina LÍF 21-6-9,5+Se, vegna of hás kadmíumsinnihalds. Í tilkynningu Matvælastofnunar kemur fram að kadmíum mældist 71 mg/kg fosfórs samkvæmt niðurstöðum efnagreininga, en kadmíum má mest vera 50 mg/kg fosfórs. Einungis eru komnar niðurstöður úr efnamælinum tveggja áburðartegunda og reyndist hin tegundin LÍF 20,6-11-9+Se í lagi. Um óleyfilega vöru er að ræða og…Lesa meira

true

Landsbjörg kaus sér nýja stjórn

Landsþing Slysavarnafélagins Landsbjargar fór fram á Akureyri um helgina. Alls voru um sex hundruð félagar Landsbjargar staddir á Akureyri um helgina en auk hefðbundinna þingstarfa fóru fram björgunarleikar félagsins þar sem att er kappi í gamni og alvöru í ýmsum björgunarstörfum. Má nefna fjallabjörgun, skyndihjálp og að bakka gamalli dráttarvél með kerru. Á þinginu var…Lesa meira