Fréttir

true

Gæðingamót Skugga og Faxa og úrtaka fyrir Fjórðungsmót

Hestamannafélögin Skuggi og Faxi standa fyrir Líflandsgæðingamóti sem jafnframt verður úrtökumót fyrir Fjórðungsmót Vesturlands sem haldið verður í sumar í Borgarnesi. Líflandsmótið fer fram næstkomandi laugardag, 27. maí, á vallarsvæði Skugga í Borgarnesi. Boðið verður uppá A-flokk gæðinga, B-flokk gæðinga, ungmennaflokk, unglingaflokk og barnaflokk. Skráningargjald í A-flokk, B-flokk og ungmennaflokk er 3000 krónur og í…Lesa meira

true

Vorverkin hafin á skíðasvæðinu

Félagsmenn í Skíðaráði Snæfellsness voru önnum kafnir við frágang þegar að fréttaritari Skessuhorns leit við hjá þeim á dögunum í brekkunum í Grundarfirði. Þá var verið að ganga frá í skíðaskálanum, taka niður diska í lyftunni og fara yfir búnaðinn eftir veturinn. Á myndinni frá vinstri eru þau Haukur Árni Hjartarson, Guðmundur Pálsson, Hólmfríður Hildimundardóttir…Lesa meira

true

Borgarbyggð verður þrettánda heilsueflandi samfélagið

Í gærkvöldi var haldinn fjölmennur íbúafundur í Hjálmakletti í Borgarnesi þar sem til umfjöllunar var heilsuefling. Skrifað var undir samning þess efnis að Borgarbyggð verður 13. sveitarfélagið hér á landi til að verða Heilsueflandi samfélag. Áður en ritað var undir samkomulag þess efnis voru haldin þrjú áhugaverð erindi. Íris Grönfeldt íþróttafræðingur fór yfir hvað Borgarbyggð…Lesa meira

true

ÍA mætir Gróttu í bikarnum

Dregið var í 16 liða úrslitum Borgunarbikars karla í knattspyrnu nú í hádeginu. ÍA var eitt vestlenskra liða í pottinum, en Skagamenn báru sigurorð af Fram í ótrúlegum leik á Akranesi á miðvikudagskvöld, 4-3. Skagamenn drógust á móti 1. deildar liði Gróttu og mætast liðin á Akranesvelli þriðjudaginn 30. maí næstkomandi. Bikarmeistarar Vals taka á…Lesa meira

true

Láki Tours í útrás til Hólmavíkur

Hvalaskoðunarfyrirtækið Láki Tours í Grundarfirði mun vera með hvalaskoðun frá Hólmavík á Ströndum í sumar. Ferðirnar hefjast 15. júní næstkomandi og mun heimamaðurinn Már Ólafsson verða skipstjóri. Láki II mun sigla um Steingrímsfjörð og nágrenni en mjög mikið er af hnúfubak á svæðinu. Steingrímsfjörður er þekktur fyrir mikið hvala- og fuglalíf og mikla náttúrufegurð. Fyrir…Lesa meira

true

Bongóblíða í kortunum

Veðurstofan spáir hæglætisveðri og hátt í tuttugu stiga hita um helgina. Ekkert meira um það, nú er bara að njóta veðursins kæru landsmenn.Lesa meira

true

Þúsundum rúmmetra af aur hleypt út í ána

Meðfylgjandi myndir tók Guðrún Guðmundsdóttir í gær við uppistöðulón Andakílsvirkjunar. Þar er búið að hleypa vatni úr uppistöðulóni virkunarinnar og þúsundum rúmmetrum af aur hleypt út. Eins og kemur fram í frétt Skessuhorn.is fyrr í dag lét Orka náttúrunnar tæma lónið og við það gróf áin sig niður og tók með sér þúsundir rúmmetra af…Lesa meira

true

Spinneræði ríður yfir landið – nú eru leikföngin fáanleg í KBB

Blaðamaður Skessuhorns var staddur í Borgarnesi í gær og hitti þar Jómund Hjörleifsson í Kaupfélagi Borgfirðinga, sem lék sér að svokölluðum spinner.  Spinnerar eru nýjasta æðið sem gripið hefur um sig hér á landi meðal yngri kynslóðarinnar, sem og víða um lönd. Spinnerar eru leikföng sem virka þannig að haldið er um miðju leikfangsins og…Lesa meira

true

Líkur taldar á að meiriháttar tjón hafi verið unnið á lífríki Andakílsár

Útlit er fyrir að Orka náttúrunnar, eigandi Andakílsvirkjunar, hafi unnið stórtjón á lífríki Andakílsár fyrr í þessari viku þegar hleypt var gríðarlegu magni af aur og uppsöfnuðum setlögum úr uppistöðulóni ofan virkjunarinnar og niður í ána. Eðlilegt hefði verið að mokað hefði verið upp úr lóninu og efninu ekið burtu, en það var ekki gert.…Lesa meira

true

Víkingar luku leik í bikarnum í gær

Í vikunni fór fram 32-liða í Borgunarbikar karla í knattspyrnu. Aðeins ein viðureign í 32-liða úrslitum var milli liða í efstu deild en Víkingur Ólafsvík fékk heimaleik gegn Valsmönnum og var sá leikur leikinn í gær. Það var ljóst fyrir leikinn að Víkingum beið erfitt verkefni í ljósi þess að Valsmenn hafa verið það lið…Lesa meira