Fréttir

true

Karlakórinn Kári heldur lokavortónleika

Á Snæfellsnesi hefur í níu ár verið starfandi Karlakórinn Kári. Kórstjóri frá upphafi hefur verið Hólmfríður Friðjónsdóttir. Fyrsti kjarninn í kórnum var í Stykkishólmi auk nokkurra Grundfirðinga, en undanfarið hefur félögum fjölgað og koma þeir einnig af útnesinu, en kórfélagar nú eru 26. Samkvæmt venju heldur kórinn þrenna tónleika að vori áður en körlunum er…Lesa meira

true

Skallagrímspiltar Faxaflóameistarar

Skallagrímspiltar í 5. flokki tryggðu sér á laugardag sigur í C riðli B liða í Faxaflóamótinu. Þeir sigruðu Ægi/Hamar 6-1 í lokaleik mótsins, kræktu í sitt 19 stig í mótinu og náðu þar með eins stigs forskoti á Breiðablik 3 sem hafnaði í öðru sæti.Lesa meira

true

Ný grunnsýning sett upp í Byggðasafninu í Görðum

Byggðasafnið í Görðum á Akranesi fagnar 60 ára afmæli árið 2019. Af því tilefni stendur til að grunnsýningu safnsins verði breytt og hún uppfærð með öðrum áherslum. Með nýrri grunnsýningu leitast safnið við að skapa sér sess sem metnaðarfullt og faglegt safn, sem verður áhugavert og fróðlegt að heimsækja. Sýningunni er ætlað að endurspegla skarpari…Lesa meira

true

Vitundarvakning um ófrjósemi

Tilvera, samtök um ófrjósemi, stendur fyrir vitundarvakningu í þessari viku um ófrjósemi. Átakið nefnist 1 af 6 en áætlað er að einn af hverjum sex glími við sjúkdóminn hverju sinni. Talið er að þriðjungur skýringarinnar sé að finna hjá körlum, þriðjungur hjá konum en þriðjungur er óútskýrð ófrjósemi. „Markmið vitundarvakningarinnar er að vekja athygli á…Lesa meira

true

Latabæjarsafn opnað í Borgarnesi

Magnús Scheving íþróttaálfur og frumkvöðull hefur ánafnað sínum gamla heimabæ, Borgarnesi, bíla- og búnaðarsafn Latabæjar. Frumsýning var á safngripum á stórsýningu sem haldin var í Brákarey á laugardaginn. Tækin vöktu verðskuldaða athygli yngri kynslóðarinnar og kannski ekki síður foreldra sem notað hafa þættina sem barnapíur svo hægt væri að ryksuga og sinna húsverkum. Bílar og…Lesa meira

true

Segjast hafa nægan tíma til að aðstoða hestamenn

Þórður Sigurðsson formaður Skotfélags Vesturlands hefur sent frá sér stuðningsyfirlýsingu til hestamanna vegna undirbúnings fyrir Fjórðungsmót Vesturlands sem haldið verður í Borgarnesi í sumar. Þá er mótorsportfélagi óskað velgengni við að fá æfingasvæði fyrir starfsemi sína. Yfirlýsing Þórðar er þannig í heild sinni: „Nú þegar það er ljóst að umsókn Skotvest um landspildu til uppbyggingar…Lesa meira

true

Frískleg vorveiði á Seleyrinni

Undanfarna daga hafa veiðimenn rennt fyrir sjóbirting á Seleyrinni, sunnan við Borgarnes. Stangveiðifélag Borgarfjarðar er með Seleyrina á leigu og fá félagsmenn að veiða þar frítt. „Það hefur verið mjög góð veiði á eyrinni að undanförnu og flestir hafa verið að fá fisk þegar hann er í tökustuði. Á síðasta laugardag voru yfir 30 manns…Lesa meira

true

Foreldrar færðu tónlistarskólanum gjöf

Vortónleikar Tónlistarskóla Snæfellsbæjar fóru fram í síðustu viku. Tónleikarnir voru haldnir í Félagsheimilinu Klifi og var að venju mjög vel mætt af aðstandendum þeirra sem stunda náms í skólanum. Foreldrafélag tónlistarskólans sér um kaffisölu á tónleikum skólans. Foreldrafélagið ákvað svo á dögunum að verju hluta af ágóða af kaffisölu jóla- og vortónleika til hljóðfærakaupa. Að…Lesa meira

true

Jákvæð niðurstaða fyrsta ársfjórðungs

Niðurstaða reksturs Orkuveitu Reykjavíkur á fyrsta fjórðungi 2017 var svipuð og undanfarin ár. Hækkað mat á verðmæti raforkusölusamninga til langs tíma sem tengdir eru álverði skapaði fyrirtækinu hinsvegar mikinn bókfærðan hagnað, en hækkunin nam 5,3 milljörðum króna. „Þetta er fugl í skógi en ekki í hendi,“ segir Bjarni Bjarnason forstjóri um mikinn bókfærðan hagnað í…Lesa meira

true

Kristín Pétursdóttir til kennslu á heimaslóðum

Edda Ívarsdóttir sem verið hefur starfsmaður Umhverfisskipulags Landbúnaðarháskóla Íslands hefur tekið að sér starf borgarhönnuðar hjá Reykjavíkurborg. Í hennar stað hefur verið ráðin til eins árs Kristín Pétursdóttir landslagsarkitekt. Kristín er fædd 1980 og uppalin á Hvanneyri. Hún lauk mastersprófi í landslagsarkitektúr frá NMBU, Norwegian University of Life í Ási Noregi árið 2013. Áður hafði…Lesa meira