Fréttir

true

Dellan tekin alla leið þegar afmælisbarnið fékk sér slökkvibíl

Kristján Andrésson húsasmíðameistari á Hvanneyri fagnaði í liðnum mánuði sextugsafmæli sínu. Líkt og gjarnan við slík tækifæri fá menn fallega pakka, blóm og frómar óskir. Ein gjöfin var þó sýnu umfangsmest, en hana gaf Kristján sjálfum sér. Það var eitt stykki slökkviliðsbíll. Bíll þessi þjónaði upphaflega Slökkviliðinu á Keflavíkurflugvelli þar sem hann var fyrsti útkallsbíll…Lesa meira

true

Ætla að hjóla 1.300 kílómetra til styrktar krabbameinssjúkum börnum

Í sumar munu Skagahjónin Guðrún Sigríður Gísladóttir og Guðmundur S. Jónsson hjóla um 1.300 kílómetra leið á einni viku, frá Kaupmannahöfn til Parísar, þegar þau taka þátt í einu stærsta samnorræna góðgerðaverkefni Norðurlandanna; Team Rynkeby. Um samhjól er að ræða en ekki keppni, þar sem allir þátttakendur hjóla alla leiðina. Ferðin er krefjandi hjólreiðaferð en…Lesa meira

true

Þróa vöru úr hildum sauðkindarinnar

Hópur nemenda í Háskólanum í Reykjavík hefur að undanförnu unnið að þróun á húðkremi sem unnið er úr hildum íslensku sauðkindarinnar. Kremið er unnið úr virkum efnum hildanna, eða fylgjunnar. Hópurinn á bakvið „Hildir Organics“ kemur úr mismunandi deildum innan Háskólans í Reykjavík en meðal hópfélaga er Sonja Lind Eyglóardóttir í Borgarnesi. Fylgja íslensku sauðkindarinnar…Lesa meira

true

Veitingastaður við Hraunfossa verður opnaður á næstu dögum

Eins og greint var frá í Skessuhorni fyrr á þessu ári hafa undanfarið staðið yfir framkvæmdir við nýjan veitingastað við Hraunfossa í Borgarfirði. Verður hann á vegum fjölskyldufyrirtækisins Hraunfossar-Barnafoss ehf., en það er í eigu Snorra Jóhannessonar og Jóhönnu Björnsdóttur á Augastöðum, Kristrúnar dóttur þeirra og Arnar Eyfjörð Arnarsonar manns hennar. Reistur hefur verið 160…Lesa meira

true

Settist á skólabekk eftir vinnuslys

Eftir að hafa lent í vinnuslysi fyrir þremur árum stóð fyrrum sjómaðurinn Elí Þór Þórisson á krossgötum. Hann hafði starfað sem sjómaður í 17 ár þegar slysið varð en fljótlega varð honum ljóst að sjómannsferlinum var lokið. Með aðstoð Virk komst Elí í gegnum áfallið og í dag er hann í iðnnámi, líkar það vel…Lesa meira

true

Álfurinn fyrir unga fólkið

Árleg Álfasala SÁÁ hefst í dag, miðvikudaginn 10. maí, og stendur fram á sunnudaginn 14. maí.  Hún er nú haldin í 28. skipti. Álfasalan er stærsta fjáröflunarverkefni SÁÁ ár hvert.  Allur ágóði af sölunni rennur til að greiða fyrir þjónustu SÁÁ við ungt fólk, bæði afeitrun og meðferð, sálfræðiþjónustu barna eða aðra þjónustu við fjölskyldur…Lesa meira

true

Varað við veðri í dag

Versnandi veður er víða á landinu í dag. Versta hríðarveðrið verður þó á Vestfjörðum þar sem verður mjög blint í 20-25 m/s vindi, einkum á Gemlufallsheiði, Steingrímsfjarðarheiði, á Klettshálsi og Þröskuldum. Dregur úr ofankomu seinnipartinn en lægir ekki að ráði fyrr en í nótt. Dálítið snjófjúk verður á öðrum fjallvegum og norðaustan 13-18 m/s.  Í…Lesa meira

true

Brjóstabollur til styrktar krabbameinsrannsóknum

Félagsmenn í Landssambandi bakarameistara bjóða nú til sölu brjóstakollur í bakaríum um allt land um mæðradagshelgina, dagana 11.-14. maí. Salan á bollunum er til stuðnings styrktarfélaginu Göngum saman, en félagið styrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini og úthlutar styrkjum í október ár hvert. Sala á brjóstabollum er orðinn árviss viðburður í bakaríum um mæðradagshelgina og eru bakarí …Lesa meira

true

Njóta í stað þess að þjóta í Stykkishólmi

Á dögunum opnuðu frænkurnar Mæsa og Theó agnarsmátt kaffihús í húsnæði Harbour Hostel í Stykkishólmi, Slowly kaffi. Þar hyggjast þær bjóða upp á gæðakaffi og smávægilegt meðlæti fyrir kaffiþyrsta Hólmara og aðra gesti. Kaffihúsið verður opið frá því klukkan átta á morgnana á virkum dögum og fram eftir degi, eftir því sem hægt er fyrir…Lesa meira

true

Nauðsynlegt að úða gegn birkikembu í maí

Reynir Sigurðsson er einn af þeim sem býður upp á úðun garða og sumarhúsalóða og er starfssvæði hans Borgarbyggð, Akranes og svæðið sunnan Skarðsheiðar. Reynir er Hafnfirðingur að uppruna en býr nú í sumarhúsi skammt frá Borgarnesi og ferðast um með pallbíl sín og efni og tekur að sér garðaúðun. Hann er gamalreyndur í þessum…Lesa meira