Fréttir

true

Dreginn vélarvana til lands

Veður þessa fyrstu viku strandveiðitímabilsins hefur verið afar rysjótt. Engu að síður hafa margir sætt lagi og róið þótt aðstæður hafi oft verið betri. Við slíkar aðstæður reynir á menn og búnað og hefur þurft að draga nokkra báta til hafnar. Vélarbilun kom upp í Hugrún RE í dag þegar báturinn var við veiðar á…Lesa meira

true

Meirihluti íbúa vill viðræður um sameiningu á Snæfellsnesi

Í síðasta tölublaði Skessuhorns var greint frá hvar könnunarviðræður milli sveitarfélaga á norðanverðu Snæfellsnesi standa. Viðræður þessar hafa staðið yfir milli íbúa í Stykkishólmsbæ, Helgafellssveit og Grundarfjarðarbæ og verður framhaldið á þessu ári og stefnt að íbúakosningu fyrir árslok. Sveitarstjórn Snæfellsbæjar vildi ekki taka þátt í undirbúningi hugsanlegrar sameiningar og sveitarstjórn Eyja- og Miklaholtshrepps samþykkti…Lesa meira

true

Nýtt Akranesmet hjá Ágústi á sterku móti í Bergen

Fimmtudaginn 4. maí héldu sex sundmenn frá Sundfélagi Akraness til Noregs þar sem þeir tóku þátt í sterku sundmóti í Bergen. Á mótinu syntu 624 keppendur frá ellefu löndum. Margir heimsklassa sundmenn tóku þátt og má þar nefna heimsmethafana Sarah Sjöstrom og Katinku Hosszu, Íslendingarnir okkar þau Hrafnhildur Lúthersdóttir, Aron Örn Stefánsson og Eygló Ósk…Lesa meira

true

Horfur metnar jákvæðar í rekstri Orkuveitu Reykjavíkur

Matsfyrirtækið Reitun hefur breytt horfum í lánshæfismati á Orkuveitu Reykjavíkur úr stöðugum í jákvæðar. Matseinkunnin er áfram AA3. Í tilkynningu um matið segir meðal annars: „Planinu, aðgerðaráætlun vegna fjárhagsvanda OR 2011 – 2016 er lokið og árangurinn er umtalsvert betri en þau markmið sem sett voru. Stjórnendur hafa undanfarin ár náð miklum árangri í að…Lesa meira

true

Grátlegt tap Víkings

Víkingur Ó. mætti KR í 2. umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Leikið var í Ólafsvík og úrslitin réðust ekki fyrr en á lokasekúndum leiksins. Fyrri hálfleikur var fremur tíðindalítill og einkenndist af mikilli baráttu. Víkingar fengu ágætis tækifæri á 25. mínútu leik eftir góðan samleik Kenan Turudija og Nacho Heras. Kenan bar…Lesa meira

true

Vesturland hlýtur minnst úr Húsafriðunarsjóði

Minjastofnun tilkynnti nýverið hvaða verkefni hljóta styrk úr húsafriðunarsjóði á árinu 2017. Alls voru veittir 182 styrkir, samtals að verðmæti rúmlega 168 milljónir, en sótt var um 257 styrki fyrir samtals rúmar 772 milljónir króna. Hæstu einstöku styrkirnir voru veittir til verkefna tengdum þremum friðlýstum kirkjum; Eyrarbakkakirkju, gömlu kirkjunnar á Djúpavogi og Stóru-Núpskirkju, eða fimm…Lesa meira

true

Ólgusjór tekinn upp við Snæfellsnes

Framleiðslufyrirtækið Behind the Scenes stefnir á tökur í sumar á stuttmyndinni Ólgusjó og verður myndin tekin upp á litlum báti við Snæfellsnes. Myndin er einlæg saga sem fjallar um unga elskendur sem starfa saman á litlum báti fyrir utan Snæfellsnes en yfirmaður þeirra stýrir þeim með harðri hendi í gegnum talstöð á meðan margt leynist…Lesa meira

true

Tillaga um takmarkanir í ferðaþjónustu

Á síðasta fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar var lögð fram tilllaga sem Svavar Garðarsson sendi sveitarstjórn með tölvupósti með ósk um að hún yrði borin upp á fundinum. Tillagan var svohljóðandi: ,,Vegna viðvarandi skorts á íbúðarhúsnæði í Búðardal, verði til tveggja ára í senn ekki veitt leyfi fyrir útleigu íbúðarhúsnæðis til reksturs ferðaþjónustu nema á sama tíma…Lesa meira

true

Straumlaust í hluta Reykholtsdals í dag

Rafmagnslaust verður í Reykholtsdal í Borgarfirði mánudaginn 8. maí frá klukkan 15:00-15:30 vegna tengivinnu við háspennustreng Rariki. Straumlaust verður, samkvæmt tilkynningu frá Rarik, á svæðinu frá Deildartunga til hreinsistöðvar í Reykholti.  Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9390.Lesa meira

true

Víkingur tekur á móti KR ingum í kvöld

Tveir leikir eru á dagskrá í Pepsí deild karla í fótboltanum í dag. Í fyrri leiknum tekur Stjarnan á móti Eyjamönnum á Samsung vellinum. Síðari leikurinn, sem jafnframt er sjónvarpsleikur, verður spilaður í Ólafsvík og hefst klukkan 19:15. Þar tekur Víkingur á móti KR. Bæði lið eru án stiga fyrir leikinn. KR tapaði fyrsta leik…Lesa meira