Fréttir

true

Blómasetrið komið í jólabúninginn

Það er ys og þys í Blómasetrinu Kaffi-Kyrrð í gamla sýslumannshúsinu við Skúlagötu 13 í Borgarnesi þegar ljósmyndari Skessuhorns kíkti þar við nýlega. Þar rekur Svava Víglundsdóttir og fjölskylda hennar blómabúð, gjafavöruverslun og notalegt kaffihús er innaf versluninni. Samhliða því að gestir koma í verslunina eru ferðamenn sífellt að reka inn nefið enda margir á…Lesa meira

true

Lesbókin Café verður opnuð við Akratorg innan tíðar

Þær Hafdís Bergsdóttir og Hildur Björnsdóttir hafa selt rekstur kaffihússins Skökkin Café við Kirkjubraut 2 á Akranesi. Kaupendur eru Christel Björg Rudolfsdóttir Clothier og Guðleifur Rafn Einarsson. Hyggjast þau innan tíðar opna nýtt kaffihús á sama stað við Akratorg undir nafninu Lesbókin Café, en nafnið Lesbókin hefur lengi loðað við húsið. „Við ætlum bara að…Lesa meira

true

Kaup sveitarsjóðs á íbúðarhúsi hluti af starfslokasamningi

„Að gefnu tilefni telur sveitarstjórn rétt að fram komi að Hvalfjarðarsveit hefur keypt fasteignina að Lækjarmel 7 í Hvalfjarðarsveit,“ segir í tilkynningu sem birt var í dag á vef Hvalfjarðarsveitar. Tilefni þessarar yfirlýsingar er umræða á spjallsíðu íbúa sveitarfélagsins þar sem nokkrir íbúar hafa lýst furðu sinni á að sveitarsjóður hafi keypt einbýlishús sem fyrrum…Lesa meira

true

Útvarp Óðal ómar frá morgni til kvölds

Árlegt jólaútvarp Nemendafélags Grunnskóla Borgarness, Útvarp Óðal, stendur yfir þessa vikuna. Dagskráin hófst  á mánudagsmorgun og stendur alla daga til klukkan 23. Henni lýkur svo síðdegis á morgun með kveðju útvarpsstjóra og veislu fyrir alla þá sem að útvarpinu hafa komið. Dagskrá Útvarps Óðals er fjölbreytt og koma nemendur úr öllum árgöngum skólans að dagskrárgerð.…Lesa meira

true

Gott rekstrarár hjá Golfklúbbnum Leyni

Aðalfundur Golfklúbbsins Leynis á Akranesi var haldinn 6. desember síðastliðinn. Þórður Emil Ólafsson formaður fór yfir skýrslu og starf klúbbsins á liðnu ári, gjaldkeri fór yfir reikninga og kynnti rekstraráætlun ársins 2017. Rekstur GL gekk vel rekstrarárið 2016 og var veltan tæpar 80 milljónir samanborið við tæpar 90 milljónir árið 2015. Felst munurinn í að…Lesa meira

true

Varamaður tekur sæti á þingi

Hafdís Gunnarsdóttir, sem skipar fjórða sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, tók nú í vikunni sæti á þingi. Leysir hún Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur af í veikindaforföllum dóttur hennar. Hafdís býr á Ísafirði og starfar sem forstöðumaður liðveislu hjá Ísafjarðarbæ.Lesa meira

true

Minnast Jakobs á Varmalæk í Safnahúsinu

Á miðvikudaginn í liðinni viku, 7. desember, hefði Jakob Jónsson bóndi á Varmalæk orðið 100 ára, en hann lést árið 2004. Jakob á víða spor í borgfirskri sögu þar sem hann lagði ýmis konar samfélagslegum verkefnum lið um ævina. Hann var fæddur á Varmalæk í Bæjarsveit. Foreldrar hans voru Jón Jakobsson og Kristín Jónatansdóttir. Jakob…Lesa meira

true

Valinn í úrtaksæfingar U17

Einn vestlenskur knattspyrnumaður var nýverið valinn til að taka þátt í úrtaksæfingum U17 ára landsliðs karla. Það er Brynjar Snær Pálsson í Borgarnesi og félagmaður í Skallagrími. Æfingarnar fara fram undir stjórn Halldórs Björnssonar dagana milli jóla og nýárs.Lesa meira

true

Jólablað Skessuhorns í vinnslu

Jólablað Skessuhorns verður síðan gefið út í næstu viku, miðvikudaginn 21. desember. Sem fyrr verður það stútfullt af spennandi efni. Starfsfólk markaðsdeildar er nú í óða önn að taka niður auglýsingapantanir, en gott er ef pantanir gætu legið fyrir í síðasta lagi á morgun, föstudaginn 16. desember. Minnt er á símann 433-5500 og netföngin lisbet@skessuhorn.is…Lesa meira

true

Á bernskuslóðum í Ísrael – frásögn í Snorrastofu

Í kvöld, fimmtudag, flytja Bergur Þorgeirsson forstöðumaður Snorrastofu og Sigríður Kristinsdóttir frásögn og sýna myndir frá ferð sem þau fóru í nóvember til Ísraels. Bergur á bernskuminningar frá landinu helga en þar dvaldi hann með foreldrum sínum í tæp þrjú ár frá fimm ára aldri, 1963-1966. Með ferðalaginu rættist langþráður draumur hans um að endurnýja…Lesa meira