Fréttir

true

Gert ráð 500 milljóna króna tekjuafgangi Borgarbyggðar næstu fjögur árin

Á fundi í sveitarstjórn Borgarbyggðar í síðustu viku var fjárhagsáætlun næsta árs til síðari umræðu og afgreiðslu sem og tillaga að fjögurra ára fjárhagsáætlun 2017-2020 fyrir Borgarbyggð og undirfyrirtæki. Gunnlaugur A Júlíusson sveitarstjóri kynnti tillöguna og þær breytingar sem hafa orðið á henni frá fyrri umræðu. Í tillögunni er gert ráð fyrir að á árinu…Lesa meira

true

Vel gengur með reiðhallarbyggingu í Ólafsvík

Vinna við reiðhöllina í Snæfellsbæ gengur mjög vel og hafa félagar í hesteigendafélaginu Hring verið duglegir undanfarið. Þeim barst góður liðsstyrkur um síðustu helgi. Þá mættu félagar úr Lionsklúbbi Ólafsvíkur og aðstoðuðu þá við smíðina. Var um þessa hlegi klárað að setja járnið á þak byggingarinnar. Veðrið hefur einnig verið hesteigendum hliðhollt því þó bæði…Lesa meira

true

Enn er tekið við tilnefningum um Vestlending ársins

Enn á ný mun Skessuhorn gangast fyrir vali á Vestlendingi ársins. Í lok hvers árs hefur verið kallað eftir tilnefningum frá almenningi um einstakling sem verðskuldað gæti þetta sæmdarheiti fyrir framgöngu sína í starfi og/eða leik. Skilyrði er að sá sem tilnefndur er sé búsettur á Vesturlandi. Jafnframt er óskað eftir einni setningu þar sem…Lesa meira

true

Rökkurró í Hofsstaðaskógi

Foreldrafélögin á sunnanverðu Snæfellsnesi héldu í samvinnu við Sagnaseið og Svæðisgarðinn á Snæfellsnesi, Rökkurró í Hofsstaðaskógi 11. desember síðastliðinn. Boðið var upp á kaffi, heitt kakó og piparkökur. Farið var í skemmtilega leiki, sungið og dansað. Að sjálfsögðu mætti Stekkjastaur, dansaði og söng nokkur lög með krökkunum, en að endingu fengu svo allir krakkarnir mandarínur…Lesa meira

true

Fjárhagsáætlun Grundarfjarðarbæjar gerir ráð fyrir afgangi

Fjárhagsáætlun A- og B-hluta sjóða Grundarfjarðarbæjar fyrir árið 2017 var samþykkt á  fundi bæjarstjórnar 8. desember síðastliðinni.  Í henni er gert ráð fyrir að heildartekjur sveitarfélagsins verði 973,5 m.kr. á næsta ári. Laun eru áætluð 506,7 m.kr. og önnur rekstrargjöld 331,4 m.kr. Afskriftir verða 49,3 m.kr. Rekstrarniðurstaða er því jákvæð um 85,6 m.kr. fyrir fjármagnsliði.…Lesa meira

true

Sjómenn felldu samningana

Sjómenn hafa í atkvæðagreiðslu fellt með miklum mun kjarasamninga sem skrifað var undir 11.-15. nóvember síðastliðinn. Ótímabundið verkfall stéttarfélaganna hefst því á ný í kvöld kl. 20:00. Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar á milli SFS og Félags vélstjóra og málmtæknimanna (VM) mun liggja fyrir næstkomandi föstudag, 16. desember.Lesa meira

true

Krapasnjór á fjallvegum

Krapasnjór og snjókoma er nú á Holtavörðuheiði og hálkublettir og éljagangur á Bröttubrekku og Vatnaleið. Aðrar leiðir á Vesturlandi eru að mestu greiðfærar. Lægð kemur úr suðaustri í dag og fer norður yfir landið. Suðvestan- og vestanlands snjóar í hægum vindi ofan 100-150 m og slyddukrapi verður á láglendi. Lægðinni fylgir bleyta á öllu landinu.…Lesa meira

true

Þingmaður varar við ástandi Vesturlandsvegar

“Nú er það svo að það eru komnar mjög djúpar rásir í veginn og í miklu vatnsveðri, eins og hefur verið núna í haust og vetur þá eru þessar rásir mjög varasamar. Þeir sem fara um veginn í þessu veðri verða helst að keyra úti í vegakanti til að hafa almennilega stjórn á bílnum. Einnig…Lesa meira

true

Stýrivextir lækkaðir í fimm prósent

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands lækkaði í morgun vexti bankans um 0,25 prósentustig. Meginvextir Seðlabankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 5,0%. Í yfirlýsingu nefndarinnar nefndinni segir að ákvörðunin um að lækka vexti sé tekin með hliðsjón af síðustu spá auk nýrra upplýsinga. „Gengi krónunnar hefur hækkað um 1,5% frá síðasta fundi nefndarinnar og er…Lesa meira

true

Framkvæma á Akranesi án nýrra langtímalána

Bæjarstjórn Akraness samþykkti á fundi sínum í gær samhljóða fjárhagsáætlun bæjarsjóðs fyrir árið 2017 og þriggja ára áætlun til 2020. Meðal helstu framkvæmda á næstu árum verður niðurrif og í framhaldinu uppbygging á Sementsreit. Þá verður farið í endurgerð og lagfæringar á nokkrum götum og byggingu nýs fimleikahúss í nágrenni við annað hvort íþróttahúsið á…Lesa meira