Fréttir

true

Leitað að bestu aðventumyndinni

Ljósmyndasamkeppni Skessuhorns er nú í fullum gangi en þar geta nemendur í 8. – 10. bekk á Vesturlandi sent inn myndir á Instagram undir myllumerkinu #skessujól. Þátttakendur hafa frjálsar hendur hvað varðar myndefni, vinnslu myndanna og svo framvegis en þema myndanna á að vera „aðventan“. Þátttakendum er þó bent á að mikilvægt er að myndin…Lesa meira

true

Malbikað í desember

Í huga margra er desembermánuður hvítur og heldur kaldur en undanfarið hafa hitatölur frekar minnt á vor- eða haustmánuði. Föstudaginn 2. desember voru skilyrði góð til malbikunarvinnu í Búðardal en þar unnu menn að því að leggja nýjan gangstíg við Vesturbraut þar sem nýverið var sett upp hraðahindrun. Kolur ehf. hefur umsjón með verkinu og…Lesa meira

true

Grænfáninn afhentur á Hvanneyri áttunda sinni

Síðastliðinn fimmtudag var Grænfáninn afhentur Hvanneyrardeild Grunnskóla Borgarfjarðar áttunda sinni. Grænfáninn er umhverfisviðurkenning sem veitt er annað hvert ár sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum á undangengnum tveimur árum. Er það liður í alþjóðlegu verkefni sem nefnist Skólar á grænni grein. Til að öðlast Grænfánanna þurfa skólarnir að uppfylla sjö skref, sem…Lesa meira

true

Garðyrkjubændurnir á Laugalandi eru ræktendur ársins

Hjónin Þórhallur Bjarnason og Erla Gunnlaugsdóttir á Laugalandi í Borgarfirði voru valin ræktendur ársins af Sölufélagi garðyrkjumanna síðastliðinn föstudag. Þórhallur og Erla sérhæfa sig í agúrkurækt og er ársframleiðslan í kringum 350 tonn. Gunnlaugur Karlsson framkvæmdastjóri Sölufélags garðyrkjumanna segir ástæðuna fyrir valinu hafa verið að á Laugalandi hafi verið frábærir ræktendur alla tíð og nú…Lesa meira

true

Komin í úrslit í Jólalagakeppni Rásar 2

Jólalag feðgina frá Einarsnesi í Borgarfirði er komið í úrslit í Jólalagakeppni Rásar 2, sem nú er haldin í 14. sinn. Alls bárust rúmlega 60 frumsamin jólalög í keppnina og valdi sérstök dómnefnd sjö þeirra í úrslit. Óðinn Sigþórsson í Einarsnesi er höfundur lags og texta í laginu „Nóttin kemur“ en dóttir hans, Kristín Birna…Lesa meira

true

Rúna Ösp talsetur fyrir sögupersónuna Punky

Rúna Ösp Unnsteinsdóttir, tvítug kona frá Grundarfirði, hefur verið ráðin til að tala inn á teiknimyndir um sögupersónuna Punky. Teiknimyndirnar um Punky fjalla um litla stúlku sem er með Downs heilkennið og hvernig hún tekst á við lífið og tilveruna. Teiknimyndirnar eru fræðandi og kenna börnum um hversu frábært það er að enginn er eins.…Lesa meira

true

Verðboðum í þjónustubyggingu hafnað

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar nýverið var fjallað um verðtilboð sem bárust í þjónustubyggingu á Breiðinni. Tvö boð bárust, frá Rudolf B Jósefssyni slf. að upphæð 8.731.000 og frá Trésmiðjunni Akri að upphæð 6.315.527 kr. Kostnaðaráætlun verksins hljóðar upp á rúmar 3,9 milljónir og hafnaði skipulags- og umhverfisráð því ofangreindum verðboðum með tilliti til…Lesa meira

true

Bíll gjörónýtur eftir eld

Slökkvilið Dalabyggðar var kallað út um hálf níu leytið í morgun ásamt lögreglu vegna elds í bíl rétt sunnan við Austurárdal í Dölum. Engin slys urðu á fólki en ökumaður, sem var á leið í próf á Akranes, komst sjálfur úr bílnum þegar eldsins varð vart. Um 30 km leið er frá Búðardal að staðnum,…Lesa meira

true

Aukið eftirlit við skóla

Lögreglan á Vesturlandi hefur nú tekið upp aukið eftirlit með umferðinni í kringum grunnskóla og leikskóla í umdæminu. Athugað er með ökuhraða og hvort að allir séu að nota réttan öryggisbúnað, jafnt börn sem fullorðnir.Lesa meira

true

TM býður til afmælisveislu í dag

Tryggingafélagið TM er 60 ára í dag, miðvikudaginn 7. desember. Í tilefni afmælisins býður félagið viðskiptavinum í Borgarnesi og Akranesi til veislu í dag frá klukkan 10-16. Í boði er kaka og kaffi en blöðrur og endurskinsmerki fyrir börnin. Umboðsskrifstofur TM eru við Dalbraut 1 á Akranesi og Borgarbraut 61 í Borgarnesi.Lesa meira