Fréttir

true

Úthlutað úr Minningasjóði Björns Rúnarssonar

Úthlutað hefur verið úr Minningasjóði Björns Rúnarsson frá Þverfelli Lundarreykjadal. Björn var fæddur 30. nóvenber 1975 og lést 11. júní 1995. Megintilgangur sjóðsins er að styrkja  bráðveik og langveik börn og ungmenni. Úthlutað er úr sjóðnum á fæðingardegi Björns. Frá stofnun sjóðsins hafa 23 einstaklingar hlotið styrki. Þann 30. nóvenber  síðastliðinn var úthlutað úr sjóðnum…Lesa meira

true

Skoða möguleika á menningarsetri í Brákarey

Um þessar mundir er verið að kanna möguleika þess að koma á fót menningarsetri í Brákarey í Borgarnesi. Að því verkefni stendur Sigríður Þóra Óðinsdóttir, eða Sigþóra eins og hún er gjarnan kölluð, myndlistarkona frá Einarsnesi, ásamt Sigursteini Sigurðssyni arkitekt í Borgarnesi. „Við komum til með að vinna sameiginlega alla hugmyndavinnu. Sigursteinn sér um að…Lesa meira

true

Ný Caterpiller jarðýta í flota Borgarverks

Á meðfylgjandi mynd, sem tekin var í gær, er Guðjón Tómasson starfsmaður Borgarverks að reynsluaka nýjustu vélinni í flota fyrirtækisins. Vél þessi er af gerðinni Caterpillar D6M, 20 tonna jarðýta sem kostar hingað komin tæpar 40 milljónir króna. Þetta er jafnframt fyrsta jarðýtan hér á landi með innbyggðu gps- og slopekerfi. Þarna er Guðjón að…Lesa meira

true

Kristín kveður bæjarstjórn í dag

Í dag er síðasti fundur Kristínar Bjargar Árnadóttur sem forseti bæjarstjórnar Snæfellsbæjar. Í opnu bréf til íbúa í bæjarblaðinu Jökli segir hún ástæðuna flutning frá bæjarfélaginu. Hún hefur því sótt um lausn frá störfum bæjarfulltrúa frá og með áramótun. Sjálfstæðisflokkur skipar meirihluta í bæjarstjórn og sæti í bæjarstjórn tekur nú Júníana Óttarsdóttir kaupmaður. Hún tekur…Lesa meira

true

Rekstri Gallerí Urmuls verður hætt á áramótum

Undanfarin sjö ár tæplega, eða frá því í marsmánuði 2010, hefur List- og handverksfélag Akraness og nágrennis rekið verslunina Gallerí Urmul við Kirkjubraut 54 á Akranesi, Skagamollinu svokallaða. Þar hefur verið hægt að fá ýmiskonar handverk, allt frá lopapeysum til leirlistar. Nú hillir hins vegar undir lok verslunarinnar. „Við erum að hætta með verslunina. Hér…Lesa meira

true

Ingibjörg Huld með sýningu í Gerðubergi

Ingibjörg Huld Halldórsdóttir er borgfirskur listamaður sem um þessar mundir er með áhugaverða sýningu í Gerðubergi. Sýningin nefnist Skömmin er svo lík mér. Í sýningarskrá segir að viðfangsefni sýningarinnar sé skuggahlið persónuleikans, faldar tilfinningar, skömm og tabú. „Hér er hægt að horfast í augu við óþægilegar tilfinningar sem við reynum að halda niðri í daglegu…Lesa meira

true

Leitað að bestu aðventumyndinni

Ljósmyndasamkeppni Skessuhorns er nú í fullum gangi en þar geta nemendur í 8. – 10. bekk á Vesturlandi sent inn myndir á Instagram undir myllumerkinu #skessujól. Þátttakendur hafa frjálsar hendur hvað varðar myndefni, vinnslu myndanna og svo framvegis en þema myndanna á að vera „aðventan“. Þátttakendum er þó bent á að mikilvægt er að myndin…Lesa meira

true

Malbikað í desember

Í huga margra er desembermánuður hvítur og heldur kaldur en undanfarið hafa hitatölur frekar minnt á vor- eða haustmánuði. Föstudaginn 2. desember voru skilyrði góð til malbikunarvinnu í Búðardal en þar unnu menn að því að leggja nýjan gangstíg við Vesturbraut þar sem nýverið var sett upp hraðahindrun. Kolur ehf. hefur umsjón með verkinu og…Lesa meira

true

Grænfáninn afhentur á Hvanneyri áttunda sinni

Síðastliðinn fimmtudag var Grænfáninn afhentur Hvanneyrardeild Grunnskóla Borgarfjarðar áttunda sinni. Grænfáninn er umhverfisviðurkenning sem veitt er annað hvert ár sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum á undangengnum tveimur árum. Er það liður í alþjóðlegu verkefni sem nefnist Skólar á grænni grein. Til að öðlast Grænfánanna þurfa skólarnir að uppfylla sjö skref, sem…Lesa meira

true

Garðyrkjubændurnir á Laugalandi eru ræktendur ársins

Hjónin Þórhallur Bjarnason og Erla Gunnlaugsdóttir á Laugalandi í Borgarfirði voru valin ræktendur ársins af Sölufélagi garðyrkjumanna síðastliðinn föstudag. Þórhallur og Erla sérhæfa sig í agúrkurækt og er ársframleiðslan í kringum 350 tonn. Gunnlaugur Karlsson framkvæmdastjóri Sölufélags garðyrkjumanna segir ástæðuna fyrir valinu hafa verið að á Laugalandi hafi verið frábærir ræktendur alla tíð og nú…Lesa meira