Fréttir

true

Bíll gjörónýtur eftir eld

Slökkvilið Dalabyggðar var kallað út um hálf níu leytið í morgun ásamt lögreglu vegna elds í bíl rétt sunnan við Austurárdal í Dölum. Engin slys urðu á fólki en ökumaður, sem var á leið í próf á Akranes, komst sjálfur úr bílnum þegar eldsins varð vart. Um 30 km leið er frá Búðardal að staðnum,…Lesa meira

true

Aukið eftirlit við skóla

Lögreglan á Vesturlandi hefur nú tekið upp aukið eftirlit með umferðinni í kringum grunnskóla og leikskóla í umdæminu. Athugað er með ökuhraða og hvort að allir séu að nota réttan öryggisbúnað, jafnt börn sem fullorðnir.Lesa meira

true

TM býður til afmælisveislu í dag

Tryggingafélagið TM er 60 ára í dag, miðvikudaginn 7. desember. Í tilefni afmælisins býður félagið viðskiptavinum í Borgarnesi og Akranesi til veislu í dag frá klukkan 10-16. Í boði er kaka og kaffi en blöðrur og endurskinsmerki fyrir börnin. Umboðsskrifstofur TM eru við Dalbraut 1 á Akranesi og Borgarbraut 61 í Borgarnesi.Lesa meira

true

Björgunarsveitir taka dróna í þjónustu sína

Talsverður áhugi er beðal björgunarsveita á svæði 4 hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu, þ.e. á sunnanverðu Vesturlandi, að kaupa dróna og þjálfa mannskap til að nota slík tæki við leit og björgun. Slíkur búnaður hefur þegar sýnt sig að komi að góðum notum við ákveðnar aðstæður, til að mynda við leit á Suðurlandi sumarið 2014. Nýlega var…Lesa meira

true

Nokkur umferðaróhöpp en öll án meiðsla

Alls urðu sex umferðaróhöpp í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku, flest minni háttar og án teljandi meiðsla að því best er vitað. Erlendir ferðamenn veltu bílaleigubíl sínum á Holtavörðuheiði sl. fimmtudag eftir að hafa misst stjórn á bílnum í snjó og hálku. Sluppu þeir án teljandi meiðsla en bíllinn var óökufær og var…Lesa meira

true

Þróttur mokar snjó í Hvalfjarðarsveit

Miðvikudaginn 30. nóvember sl. skrifuðu Hvalfjarðarsveit og Vegagerðin undir snjómoksturssamning við verktakafyrirtækið Þrótt ehf. Munu starfsmenn fyrirtækisins sjá um allan snjómokstur í sveitarfélaginu til móts við Vegagerðina. Þá mun Þróttur sjá um allan mokstur heimreiða sem í boði er skv. viðmiðunarreglum um snjómokstur í sveitarfélaginu. Frá þessu er greint á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar, en þar birtist…Lesa meira

true

Gagnleg ráð og ábendingar vegna eldvarna og slysahættu um hátíðirnar

Kannanir hafa sýnt að eldvarnir eru ófullnægjandi á mörgum heimilum og íbúarnir því berskjaldaðir fyrir eldsvoðum. Hættan er mest þegar líður að jólum þegar skreytingum fjölgar. Svo um sjálfar hátíðirnar þarf að passa upp á enn fleira, svo sem raforkunotkun, ástand reykskynjara, logandi kerti og margt fleira. Í ljósi þess að nú gengur í garð…Lesa meira

true

Vesturlandsliðin fá heimaleiki í bikarnum

Nú í hádeginu var dregið í átta liða úrslit Maltbikarsins, bikarkeppni KKÍ. Í pottinum í bikarkeppni kvenna voru tvö Vesturlandslið; ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar Snæfells sem báru sigurorð af Val í 16 liða úrslitum og Skallagrímur, sem sat hjá í fyrstu umferð bikarkeppninnar þennan veturinn. Bæði liðin fengu heimaleik þegar dregið var upp úr pottinum.…Lesa meira

true

Versnandi læsi í náttúruvísindum hér á landi

Út er komin PISA skýrsla 2015 en hún sýnir námsárangur ungmenna í 10 bekk grunnskóla í samanburði við jafnaldra þeirra erlendis. Þetta er í sjötta skipti sem Ísland er þátttakandi í PISA rannsókninni. Niðurstöður nú sýna að ekki er marktæk lækkun á lesskilningi og stærðfræðilæsi íslenskra nemenda á milli áranna 2012 og 2015. Hins vegar…Lesa meira

true

Sýslumaður býðst til að embætti hans verði þinglýsingastjóri

Ólafur K. Ólafsson sýslumaður á Vesturlandi hefur með bréfi til innanríkisráðuneytisins formlega lýst yfir vilja embættisins til að taka að sér þinglýsingar á landsvísu. Til umsagnar í ráðuneytinu eru drög að frumvarpi til breytinga á lögum um þinglýsingar (rafrænar þinglýsingar) og gefinn kostur á að senda ráðuneytinu athugasemdir. Meginbreyting frumvarpsins felst í að rafrænar þinglýsingar…Lesa meira