Fréttir

true

Teddi lögga kominn í frí og hættir í vor

Theódór Kr. Þórðarson yfirlögregluþjónn er hættur störfum fyrir Lögregluna á Vesturlandi. Hann er reyndar fyrst á leið í frí þar til í marsmánuði, en þá mun hann formlega láta af störfum eftir rétt tæplega fjörtíu ára þjónustu. Theódór varði því síðasta fimmtudegi í að taka til á skrifstofunni, tína muni í kassa, ganga frá skjölum…Lesa meira

true

Andrea Björnsdóttir er Vestlendingur ársins 2016

Frá upphafi útgáfu hefur Skessuhorn staðið fyrir útnefningu á Vestlendingi ársins. Valið fer þannig fram að kallað er eftir tilnefningum íbúa um þá sem þykja verðugir þess að hljóta þetta sæmdarheiti fyrir árangur í starfi eða leik. Að þessu sinni bárust tilnefningar um 22 einstaklinga. Vestlendingur ársins 2016 er Andrea Þ. Björnsdóttir á Eystri-Leirárgörðum í…Lesa meira

true

Karfan af stað eftir jólafrí

Keppni í Íslandsmótinu í körfuknattleik hefst að nýju eftir jólafrí á næstu dögum. Þannig hefst síðari umferð Domino‘s deildar karla á morgun, fimmtudaginn 5. janúar. Skallagrímur tekur á móti Haukum og Snæfell fær ÍR í heimsókn. Keppni í 1. deild karla hefst sömuleiðis á morgun þegar ÍA tekur á móti botnliði Ármanns. Domino‘s deild kvenna…Lesa meira

true

Söngbræður færa stórveislu sína í stærra hús

Karlakórinn Söngbræður stefnir á árlega stórveislu og söngskemmtun kórsins laugardaginn 14. janúar næstkomandi klukkan 20. Vegna mikillar aðsóknar undanfarin ár, þar sem mun færri hafa komist að en vildu, hefur verið ákveðið að veislan verði að þessu sinni haldin í Félagsheimilinu Þinghamri á Varmalandi, en ekki í Logalandi. Matseðillinn verður þó óbreyttur, en í boði…Lesa meira

true

Nefnd til að bæta rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla

Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað nefnd til að gera tillögur um breytingar á lögum og/eða aðrar nauðsynlegar aðgerðir til að bæta rekstrarumhverfi og tryggja að hér á landi fái þrifist fjölbreyttur markaður frjálsra fjölmiðla með með tilliti til mikilvægs hlutverks þeirra fyrir lýðræðisþróun og samfélagsumræðu. Nefndin er skipuð í framhaldi af því að…Lesa meira

true

Hjúkrunarstarfsmenn koma fram sem Handymen

Handymen er starfsmannahljómsveit Sjúkrahússins á Akranesi. Hana skipa Halldór sjúkraflutningsmaður og smiður, Fritz skurðlæknir, Ólafur Frímann sjúkraflutningamaður og málari og Haraldur geðlæknir. Þeir ætla að blása til dansleiks á Gamla Kaupfélaginu á Akranesi næstkomandi föstudagskvöld klukkan 23:30. Aðgangur er ókeypis, segir í tilkynningu á Facebook síðu um viðburðinn.Lesa meira

true

Björn lætur af störfum rekstrarstjóra hjá Vegagerðinni

Björn Jónsson lét af störfum sem rekstrarstjóri hjá Vegagerðinni á Snæfellsnesi nú um áramótin eftir 31 árs farsælt starf sem héraðsstjóri og síðar rekstrarstjóri. Var af því tilefni boðið til veislu til að þakka honum fyrir störf sín og kveðja. Björn hefur unnið hjá eða fyrir Vegagerðina stóran hluta starfsævinnar. Hann er fæddur á Múla…Lesa meira

true

Skagastúlka er fyrsti Vestlendingur ársins

Fyrsta barn ársins sem fæðist á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi kom í heiminn í gærkvöldi, 2. janúar klukkan 18:18. Það er myndar stúlka sem vóg 3.508 grömm og er 51 sentímetri að lengd. Fyrsti Vestlendingur ársins er Akurnesingur en foreldrar hennar eru María Sigríður Kjartansdóttir og Gunnar Þóroddsson. Stúlkan er þeirra fjórða barn, en fyrsta…Lesa meira

true

Umhleypingatíð framundan

Útlit er fyrir umhleypingasama tíð næstu daga á landinu. Vaxandi sunnanátt verður á morgun, víða 8-15 m/sek. Snjókoma og síðar slydda eða rigning og hiti 1 til 5 stig sunnan- og vestantil, en yfirleitt þurrt norðan- og austanlands og hlýnar þar smám saman. Á fimmtudag er gert ráð fyrir sunnanátt 15-25 m/s og talsverðri eða…Lesa meira

true

Snæfell semur við erlendan leikmann

Eins og greint var frá fyrir jól var samningi Snæfells við Sefton Barrett rift með samþykki bæði leikmannsins og félagsins. Sefton leiddi liðið í öllum tölfræðiþáttum, var með 21 stig, 11,3 fráköst og 3,1 stoðsendingu að meðaltali í leik eftir fyrri umferð Domino‘s deildar karla. Ingi Þór Steinþórsson þjálfari hafði hins vegar gagnrýnt hugarfar leikmannsins…Lesa meira