Fréttir

true

Söngbræður færa stórveislu sína í stærra hús

Karlakórinn Söngbræður stefnir á árlega stórveislu og söngskemmtun kórsins laugardaginn 14. janúar næstkomandi klukkan 20. Vegna mikillar aðsóknar undanfarin ár, þar sem mun færri hafa komist að en vildu, hefur verið ákveðið að veislan verði að þessu sinni haldin í Félagsheimilinu Þinghamri á Varmalandi, en ekki í Logalandi. Matseðillinn verður þó óbreyttur, en í boði…Lesa meira

true

Nefnd til að bæta rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla

Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað nefnd til að gera tillögur um breytingar á lögum og/eða aðrar nauðsynlegar aðgerðir til að bæta rekstrarumhverfi og tryggja að hér á landi fái þrifist fjölbreyttur markaður frjálsra fjölmiðla með með tilliti til mikilvægs hlutverks þeirra fyrir lýðræðisþróun og samfélagsumræðu. Nefndin er skipuð í framhaldi af því að…Lesa meira

true

Hjúkrunarstarfsmenn koma fram sem Handymen

Handymen er starfsmannahljómsveit Sjúkrahússins á Akranesi. Hana skipa Halldór sjúkraflutningsmaður og smiður, Fritz skurðlæknir, Ólafur Frímann sjúkraflutningamaður og málari og Haraldur geðlæknir. Þeir ætla að blása til dansleiks á Gamla Kaupfélaginu á Akranesi næstkomandi föstudagskvöld klukkan 23:30. Aðgangur er ókeypis, segir í tilkynningu á Facebook síðu um viðburðinn.Lesa meira

true

Björn lætur af störfum rekstrarstjóra hjá Vegagerðinni

Björn Jónsson lét af störfum sem rekstrarstjóri hjá Vegagerðinni á Snæfellsnesi nú um áramótin eftir 31 árs farsælt starf sem héraðsstjóri og síðar rekstrarstjóri. Var af því tilefni boðið til veislu til að þakka honum fyrir störf sín og kveðja. Björn hefur unnið hjá eða fyrir Vegagerðina stóran hluta starfsævinnar. Hann er fæddur á Múla…Lesa meira

true

Skagastúlka er fyrsti Vestlendingur ársins

Fyrsta barn ársins sem fæðist á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi kom í heiminn í gærkvöldi, 2. janúar klukkan 18:18. Það er myndar stúlka sem vóg 3.508 grömm og er 51 sentímetri að lengd. Fyrsti Vestlendingur ársins er Akurnesingur en foreldrar hennar eru María Sigríður Kjartansdóttir og Gunnar Þóroddsson. Stúlkan er þeirra fjórða barn, en fyrsta…Lesa meira

true

Umhleypingatíð framundan

Útlit er fyrir umhleypingasama tíð næstu daga á landinu. Vaxandi sunnanátt verður á morgun, víða 8-15 m/sek. Snjókoma og síðar slydda eða rigning og hiti 1 til 5 stig sunnan- og vestantil, en yfirleitt þurrt norðan- og austanlands og hlýnar þar smám saman. Á fimmtudag er gert ráð fyrir sunnanátt 15-25 m/s og talsverðri eða…Lesa meira

true

Snæfell semur við erlendan leikmann

Eins og greint var frá fyrir jól var samningi Snæfells við Sefton Barrett rift með samþykki bæði leikmannsins og félagsins. Sefton leiddi liðið í öllum tölfræðiþáttum, var með 21 stig, 11,3 fráköst og 3,1 stoðsendingu að meðaltali í leik eftir fyrri umferð Domino‘s deildar karla. Ingi Þór Steinþórsson þjálfari hafði hins vegar gagnrýnt hugarfar leikmannsins…Lesa meira

true

Friðarkerti lýstu upp Ólafsvíkurenni

Sú skemmtilega hefð hjá Björgunarsveitinni Lífsbjörg í Snæfellsbæ um áramót að koma friðarkertum fyrir í klettunum meðfram þjóðveginum undir Ólafsvíkurenni var endurvakin nú í ár. En þetta hefur ekki verið gert í nokkurn tíma. Lýsti björgunarsveitarfólk upp leiðina á mjög fallegan hátt og skapaði skemmtilega stemningu.Lesa meira

true

Hestamenn tóku á hús

Félagar í Hestamannafélaginu Dreyra á Akranesi voru með lokasmölun hrossa úr flóanum á gamlársdag. Eftir að stóðið var komið í Æðarodda var dregið í sundur og hrossin sett á hús. Á annað hundrað hross komu úr þessari síðustu smölun. Eftir það var komið saman í félagsheimilinu þar sem búið var að útbúa hressingu fyrir fólkið.…Lesa meira

true

Blóði safnað á Akranesi í dag

Blóðbankabíllinn verður við Ráðhúsið, Stillholti 16-18 á Akranesi í dag, þriðjudaginn 3. janúar frá kl. 10:00-17:00. Blóðbankinn segir að lágmark 70 blóðgjafa þurfi á dag til að viðhalda lágmarksbirgðum og hvetur fólk til að mæta.Lesa meira