Fréttir

true

Heilbrigðisstofnun Vesturlands barst höfðingleg gjöf

Helga G. Jónsdóttir hefur gefið Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi veglegan tækjabúnað að verðmæti ein milljón króna. Gjöfin er til minningar um foreldra Helgu, séra Jón M. Guðjónsson og Lilju Pálsdóttur. Handlækningadeild fékk fullkomna hjartarafsjá (monitor) á hjólum sem notuð verður til að fylgjast með sjúklingum eftir stórar skurðaðgerðir. Þá fékk lyflækningadeild tvö hjálpartæki; háa göngugrind…Lesa meira

true

Ein lægð á dag kemur skapinu í …allskonar

Fremur umhleypingasamt veður verður það sem eftir lifir árs, samhliða því að röð lægða gengur yfir landið. Einna skaplegast gæti veðrið þó orðið að kvöldi gamlársdags, þótt veðurfræðingar gjaldi varhug við að fullyrða um það þar sem einar fjórar lægðir eru ókomnar þangað til. Í dag er eins og landsmenn hafa orðið varir við; sunnan-…Lesa meira

true

Hvasst og hálka á fjallvegum

Víða er greiðfært um vegi á Vesturlandi, en Vegagerðin varar þó við hálku á Svínadal. Óveður er á Bröttubrekku, Svínadal og á norðanverðu Snæfellsnesi og af þeim sökum slæmt ferðaveður. Í veðurspá dagsins kemur fram að nú eru öflug hitaskil að ganga yfir landið. Samfara þeim verður staðbundið rok eða jafnvel ofsaveður á Vestur- og…Lesa meira

true

Fjögur ungmenni sluppu úr brennandi bíl

Eldur kviknaði í bíl rétt við bæinn Brautarholt í Dölum á sjöunda tímanum í gærkveldi. Fjögur ungmenni voru í bílnum og komust þau sjálf út þegar eldsins varð vart og sakaði ekki. Slökkvilið Dalabyggðar fór á staðinn og slökkti eldinn en bíllinn er gjörónýtur. Þetta er annað skiptið í desember sem slökkviliðið er kallað út…Lesa meira

true

Northern Wave hlaut samfélagsstyrk

Samfélagssjóður Landsbankans úthlutaði nýverið samfélagsstyrkjum að upphæð 15 milljónum króna. Alls hlutu 32 verkefni styrki að þessu sinni. Öll eru þau fjölbreytt en eiga það sameiginlegt að gagnast fólki á öllum aldri og víða um land. Samfélagsstyrkjum Landsbankans er ætlað að styðja mannúðar- og líknarmál, menntamál, rannsóknir og vísindi, forvarnar- og æskulýðsstarf, sértæka útgáfustarfsemi og…Lesa meira

true

Vakt vegna frétta og tilkynninga á vef

Jólablað Skessuhorns var jafnframt síðasta blað ársins. Næst kemur blaðið út miðvikudaginn 4. janúar 2017. Starfsfólk Skessuhorns undirbýr vinnslu nýársblaðs dagana 28., 29. og 30. desember, sem og 2. og 3. janúar. Ef fólk þarf að koma áríðandi tilkynningum á vef Skessuhorns í dag er bent á að senda tölvupóst á netfangið magnus@skessuhorn.is eða hringja…Lesa meira

true

Asahláku og roki spáð í fyrramálið og framan af degi

Búist er við sunnan stormi eða roki á morgun með talsverðri rigningu og asahláku. Fólk er því hvatt til að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón. Í og við fjalllendi er hætt við vatnsaga og krapa- og aurflóðum úr giljum og rásum. Einnig má búast við talsverðum vatnavöxtum í ám sunnan- og vestantil á…Lesa meira

true

Snjóþekja og hálka á vegum

Í dag verður víða þokkalegasta veður fram eftir degi en vaxandi suðaustanátt með slyddu og síðan rigningu er spáð á sunnan- og vestanverðu landinu síðdegis. Búast má við snjókomu á Hellisheiði, Lyngdalsheiði og Mosfellsheiði síðdegis og fram á kvöld, einnig á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku, en úrkoman færist yfir í slyddu og síðan rigningu þegar líður á kvöldið.…Lesa meira

true

Gleðileg jól!

Skessuhorn – Fréttaveita Vesturlands, sendir lesendum sínum til sjávar og sveita ósk um gleðileg, friðsöm og falleg jól.Lesa meira

true

Úrslit í ljósmyndasamkeppni Skessuhorns

Ljósmyndasamkeppni Skessuhorns meðal grunnskólanema í 8. – 10. bekk skóla á Vesturlandi var haldin í fyrsta sinn nú í desember. Gátu þátttakendur sent inn ljósmyndir í gegnum tölvupóst eða samfélagsmiðilinn Instagram undir myllumerkinu #skessujól. Þema myndanna var „aðventan“ og barst fjöldi skemmtilegra mynda í keppnina. Vinningshafi í keppninni er Unndís Ida Ingvarsdóttir, 13 ára nemandi…Lesa meira